„Ljóst að lokaspretturinn er að hefjast“

For­sæt­is­ráð­herra segir að nú þegar bólu­setn­ingar eru í aug­sýn sé ljóst að loka­sprett­ur­inn sé að hefj­ast.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Við höfum öll staðið okkur frá­bær­lega fram til þessa, sýnt ótrú­legt úthald og þol­in­mæði. Nú þurfum við klára þessa veg­ferð og leggja okkur sér­stak­lega fram og þannig tryggja að smit verði áfram í lág­marki þar til okkur hefur tek­ist að verja sam­fé­lagið með bólu­setn­ingum.“

Þetta skrifar Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra á Facebook-síðu sína í dag.

Í færsl­unni bendir hún á að í dag hafi bólu­setn­ingar haf­ist við COVID-19 í Bret­landi og segir hún að ljóst sé að bólu­setn­ing Íslend­inga muni hefj­ast í upp­hafi nýs árs. Þá var einnig birt í dag nið­ur­staða skoð­ana­könn­unar Maskínu sem sýnir að 92 pró­sent lands­manna ætla í bólu­setn­ingu og telur for­sæt­is­ráð­herra það vera gríð­ar­lega mik­il­vægt vegna þess að því fleiri sem láta bólu­setja sig því betur og hraðar verði Íslend­ingar varðir fyrir veirunni.

„Þetta eru tíma­mót í bar­átt­unni gegn veirunni og við getum óhikað litið með bjart­sýni til nýs árs. Sam­fé­lagið okkar mun þá byrja að fær­ast smátt og smátt í eðli­legt horf. Við getum farið að njóta sam­vista óhindrað og efna­hags­lífið getur spyrnt kröft­ug­lega við fótum og atvinnu­leysi byrjað að ganga niður,“ skrifar hún.

Tilkynnt var í dag að nýjar sótt­varna­reglur munu taka gildi á fimmtu­dag­inn næst­kom­andi. Börn fá meiri til­slak­anir og sund­laugar mega opna á ný. Íþrótta­æf­ingar afreks­fólks fá að hefj­ast, stórar versl­anir mega taka á móti allt að 100 manns og veit­inga­staðir mega hafa opið til klukkan 22. Sótt­varn­ar­að­gerð­irnar munu gilda til 12. jan­úar næst­kom­andi.

Katrín segir að þetta verði ekki síð­ustu aðgerð­irnar í bar­átt­unni en nú þegar bólu­setn­ingar eru í aug­sýn sé ljóst að loka­sprett­ur­inn sé að hefj­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár