Svona verða jólin: Helstu breytingar á samkomutakmörkunum

Nýjar sótt­varna­reglur taka gildi á fimmtu­dag. Börn fá meiri til­slak­anir og sund­laugar mega opna á ný. Íþrótta­æf­ingar afreks­fólks fá að hefj­ast, stórar versl­anir mega taka á móti allt að 100 manns og veit­inga­staðir mega hafa opið til kl. 22.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir og Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Fjölda­tak­mörkun mun áfram mið­ast við 10 manns þar til 12. jan­úar næst­kom­andi, með ákveðnum und­an­tekn­ingum, sam­kvæmt vænt­an­legri reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra varð­andi sótt­varna­ráð­staf­anir í sam­fé­lag­inu sem tekur gildi á fimmtu­dag, 10. des­em­ber. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Rík­is­stjórnin fund­aði um til­lögur Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis á fundi sínum í morgun og sam­þykkti ákveðnar til­slak­anir á gild­andi sótt­varna­ráð­stöf­unum í sam­fé­lag­inu.

Í minn­is­blaði sótt­varna­læknis, sem er dag­sett 6. des­em­ber, segir að sæmi­leg tök hafi náðst á far­aldr­inum en jafn­framt megi segja að staðan sé við­kvæm, þar sem brugðið geti til beggja vona. Fram kemur að nýjasta mat vís­inda­manna við Háskóla Íslands bendi til þess að svo­kall­aður smit­stuð­ull veirunnar hér á landi sé um 1,5.

„Þetta styður þá skoðun að staðan á þess­ari stundu er við­kvæm og lítið þarf til að hleypa far­aldr­inum aftur í upp­sveiflu,“ segir Þórólfur í minn­is­blað­inu. Einnig segir hann að þær sótt­varna­að­gerðir sem hafi verið í gangi hafi að hans mati skilað góðum árangri sem auð­veld­lega gæti tap­ast verði slakað yrði of mikið á yfir jóla­há­tíð­ina. 

Sund, verslun og veitingaþjónusta

Á meðal helstu breyt­inga er það að sund- og bað­staðir mega hafa opið. Rétt eins og þegar sund­laugar opn­uðu í fyrsta sinn eftir lokun í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins verður þeim heim­ilt að taka við 50 pró­sent af hámarks­gesta­fjölda.

Veit­inga­staðir mega taka á móti 15 manns í hvert rými og fá að hafa opið til kl. 22, en mega þó ekki taka á móti nýjum gestum eftir kl. 21 á kvöldin.



Allar versl­anir mega taka á móti 5 manns á hverja 10 fer­metra, en þó að hámarki 100 manns.

Börn á grunnskólaaldri undanþegin takmörkunum

Ákvæði í reglu­gerð­inni sem snúa að fjölda­tak­mörkun, nálægð­ar­tak­mörkun og grímu­skyldu munu ekki taka til barna sem fædd eru 2005 og síðar.

Þetta er tölu­vert mikil breyt­ing frá því sem nú er.

Samkvæmt þeirri reglu­gerð sem rennur út á morgun eru ein­ungis börn fædd 2015 eða síðar und­an­þegin fjölda­tak­mörkun og nálægð­ar­mörkum og ein­ungis börn fædd 2011 eða síðar und­an­þegin grímu­skyldu úti í sam­fé­lag­inu.

Afreksfólk má æfa á ný en líkamsræktarstöðvar áfram lokaðar

Íþrótta­æf­ingar full­orð­inna íþrótta­manna, sem stunda íþróttir innan vébanda ÍSÍ í efstu deildum, verða heim­ilar á ný á fimmtu­dag, bæði með og án snert­ingu. Æfingar afreks­fólks í ein­stak­lings­bundnum íþróttum verða sömu­leiðis heim­ilar.

Áfram verða æfingar sem krefj­ast snert­ingar innan bar­daga­í­þrótta þó óheim­ilar. Lík­ams­rækt­ar­stöðvar verða áfram lok­aðar.

[adspot]

Varðandi íþróttir almenn­ings, þá verður öllum heim­ilt að stunda skipu­lagðar æfingar utandyra sem krefj­ast ekki snert­ingar.

Sviðslistir heimilar á ný

Sviðs­listir, bíó­sýn­ingar og aðrir menn­ing­ar­við­burðir verða heim­ilir með allt að 30 manns á sviði, bæði æfingar og sýn­ingar. Heimilt verður að taka á móti allt að 50 sitj­andi gestum og þeim skylt að nota grímu og allt að 100 börnum fæddum 2005 og síðar. Hvorki hlé né áfeng­is­sala verður heimil. Sæti skulu núm­eruð og skráð á nafn.

Fimmtíu manns mega koma til jarðarfara

Hámarks­fjöldi í jarð­ar­farir verður 50 manns á tíma­bil­inu, frá 10. des­em­ber til 12. jan­úar.

Skólastarf að mestu óbreytt

Reglu­gerð um tak­mark­anir á skóla­haldi vegna far­sóttar verður að mestu óbreytt til ára­móta, sam­kvæmt til­kynn­ingu yfir­valda, en nýjar reglur um skóla­starf eiga að taka gildi 1. jan­úar 2021 og verða þær kynntar fljót­lega.

Þó hefur verið ákveðið að frá og með 10. des­em­ber verði ákvæði um bæði blöndun og hámarks­fjölda leik­skóla­barna felld brott. Með þessu móti eru leik­skólar sagðir geta aðlagað starf­semi sína betur yfir hátíð­irnar þar sem barna­hópar eru gjarna sam­ein­aðir milli deilda eða jafn­vel leik­skóla.

Einnig er sú breyt­ing gerð nú að lestr­ar­rými í fram­halds­skólum og háskólum geta opnað fyrir allt að 30 nem­endur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár