Gildistöku aukins gagnsæis hjá „þjóðhagslega mikilvægum fyrirtækjum“ frestað til 2021

Rík­is­stjórnin hefur lagt frum­varp fram til að auka traust á íslenskt atvinnu­líf. 30 stór fyr­ir­tæki munu þurfa þá að auka gagn­sæi rekst­urs síns veru­lega. Lögin áttu upp­runa­lega að gilda frá byrjun árs en nú hefur verið lagt til að gild­is­töku verði frestað.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir mælir fyrir frumvarpinu.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir mælir fyrir frum­varp­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Gild­is­töku hluta nýrra laga um hvað telj­ist þjóð­hags­lega mik­il­væg fyr­ir­tæki hefur verið frestað frá byrjun þessa árs til byrjun þess næsta, eða 2021. Sömu lög eiga að tryggja að aðgangur að árs­reikn­ingum og sam­stæðu­reikn­ingum allra félaga sem skila árs­reikn­ingi sínum til árs­reikn­inga­skrár verði aðgengi­legir almenn­ingi og fjöl­miðlum að kostn­að­ar­lausu á opin­beru vef­svæði. Gild­is­töku afnáms þeirrar gjald­töku verður líka frestað fram til byrjun næsta árs.

[links]Þetta kemur fram í frum­varpi Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, ráð­herra ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­unar, hefur útbýtt á Alþingi.

Drög að frum­varp­inu voru kynnt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í lok febr­úar síð­ast­lið­ins. Þar kom fram að frum­varpið hefði verið samið í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu í sam­vinnu við for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ráðu­neyti, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti og sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráðu­neyti. Því koma ráðu­neytin sem stýrt er af for­mönnum allra þriggja stjórn­ar­flokk­anna að gerð frum­varps­ins.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að flestar athuga­semdir sem bár­ust í sam­ráðs­ferl­inu hafi lotið að því að gild­is­töku­á­kvæði grein­ar­innar veitti fyr­ir­tækjum of knappan aðlög­un­ar­tíma. Því var ákveðið að fresta gild­is­tök­unni um eitt ár.

Auk þess var lagt til að fresta breyt­ing­unni um afnám gjald­töku fyrir aðgang að árs­reikn­ingum á opin­beru vef­svæði til byrjun næsta árs til að skapa svig­rúm „til að gera þær tækni­legu breyt­ingar sem nauð­syn­legar eru til að hægt sé að birta árs­reikn­inga félaga á opin­beru vef­svæði en auk þess þarf að gera ráð fyrir þeim kostn­að­ar­á­hrifum sem rík­is­sjóður verður fyrir vegna breyt­ing­anna í fjár­lögum og fjár­mála­á­ætlun.“

Tilgangurinn að auka gagnsæi

Til­gangur frum­varps­ins er að láta stærri sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, stór­iðju- og orku­fyr­ir­tæki, flug­fé­lög, fjar­skipta­fé­lög og skipa­fé­lög sem stunda milli­landa­flutn­inga verða skil­greind sem „ein­ingar tengdar almanna­hags­munum“ jafn­vel þótt þau séu ekki skráð á hluta­bréfa­markað. Gera má ráð fyrir að rúm­lega 30 fyr­ir­tæki bæt­ist við skil­grein­ing­una „ein­ing tengd almanna­hags­munum“ verði frum­varpið óbreytt að lögum en um helm­ingur þeirra eru sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki.

[adspot]Um slík fyr­ir­tæki, sem þá telj­ast kerf­is­lega mik­il­væg, gilda mun strang­ari reglur um gagn­sæi og upp­lýs­inga­gjöf en önnur. Með öðrum orðum, þau munu þurfa að sýna mun meira inn á hvað þau eru að gera en hingað til og allar kröfur sem gerðar verða til þeirra verða auknar veru­lega. Þessar breyt­ingar eiga að und­ir­strika „þjóð­hags­legt mik­il­vægi“ slíkra fyr­ir­tækja.

Breyt­ing­arnar munu ná yfir öll fyr­ir­tæki í áður­nefndum atvinnu­flokkum sem telj­ast sem stór félög eða stórar sam­stæður í skiln­ingi árs­reikn­inga­laga. Til að telj­ast til slíkra þarf fyr­ir­tæki að fara yfir mörk á að minnsta kosti tveimur af þremur við­miðum sett eru fram í lög­unum. Þau eru fyrir sam­stæðu að nið­ur­stöðu­tala efna­hags­reikn­ings sé að minnsta kosti þrír millj­arðar króna, að hrein velta sé að minnsta kosti sex millj­arðar króna eða að með­al­fjöldi árs­verka sé að minnsta kosti 250. Fyrir stór félög þarf að upp­fylla tvennt af eft­ir­far­andi þrennu: að eiga heild­ar­eignir yfir þremur millj­örðum króna, að vera með hreina veltu sem er yfir sex millj­örðum króna eða að vera með með­al­fjölda árs­verka yfir 250.

Mun ná til 30 fyrirtækja

Verði frum­varpið að lögum mun það ná til 30 fyr­ir­tækja sem eru ekki skil­greind kerf­is­lega mik­il­væg í lögum í dag. Flest þeirra eru ekki skráð á hluta­bréfa­markað og lúta því ekki þeim auknu skil­yrðum um upp­lýs­inga­gjöf sem fylgir því. Þó eru sum það, til dæmis Brim, Síminn og Eimskip.

Um helm­ingur þeirra sem bæt­ast við eru stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lands­ins (meðal ann­ars Samherji). Á meðal ann­arra fyr­ir­tækja sem falla munu þar undir eru allra stærstu fyr­ir­tækin sem stunda stór­iðju og stór­tæk raf­orku­kaup hér­lendis (til dæmis Río Tinto á Íslandi í Straums­vík, Alcoa Fjarða­láls og Norð­ur­áls), óskráð fjar­skipta­fyr­ir­tæki á borð við Nova og óskráð skipa­fé­lög á borð við Samskip.

[adspot]Frum­varpið er liður í aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar sem miða að því að auka traust á íslensku atvinnu­lífi með því að gera rík­ari kröfur um gagn­sæi í rekstri stærri óskráðra fyr­ir­tækja. Það er samið í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu í sam­vinnu við for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ráðu­neyti, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti og sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráðu­neyti. Því koma ráðu­neytin sem stýrt er af for­mönnum allra þriggja stjórn­ar­flokk­anna að gerð frum­varps­ins.

Gjaldfrjáls aðgangur að ársreikningum

Til við­bótar við ofan­greint er einnig lögð til sú grund­vall­ar­breyt­ing að árs­reikn­ingar og sam­stæðu­reikn­ingar allra félaga sem skila árs­reikn­ingi sínum til árs­reikn­inga­skrár verði aðgengi­legir almenn­ingi og fjöl­miðlum að kostn­að­ar­lausu á opin­beru vef­svæði. Í frum­varps­drög­unum segir að með breyt­ing­unni sé meðal ann­ars ætl­unin að auka aðgengi almenn­ings að upp­lýs­ingum sem félögum sé skylt að útlista í árs­reikn­ingi. „Eðlilegt þykir að almenn­ingur hafi greiðan aðgang að slíkum upp­lýs­ingum frá félögum. Greiðari aðgangur að árs­reikn­ingum er til þess fall­inn að auka aðhald með rekstri félaga, stuðla að upp­lýstri umræðu og efla þannig traust almenn­ings.“

Þeir sem hagn­ist af núver­andi fyr­ir­komu­lagi virð­ast fyrst og síð­ast vera þriðju aðilar sem selja aðgang að upp­lýs­ingum um fyr­ir­tæki sem milli­liðir. „Fjár­hags­legir hags­munir þeirra fyr­ir­tækja, sem eru örfá, geta vart trompað lýð­ræð­is­legt mik­il­vægi þess að fjöl­miðlar og almenn­ingur allur hafi frjálst, frítt og tak­marka­laust aðgengi að opin­berum upp­lýs­ingum um fyr­ir­tækin sem starfa hér­lendis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár