Loftslagsstefna Íslands verði að vera „miklu gagnsærri og skýrari“

Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands kalla eftir meiri skýr­leika varð­andi mark­mið Íslands um sam­drátt í losun fram til árs­ins 2030 og segja „óboð­legt“ að gengið verði til kosn­inga á næsta ári án þess að búið verði að lög­festa mark­mið um kolefn­is­hlut­leysi 2040.

Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands.
Árni Finnsson, for­maður Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands. Mynd: Helgi Halldórsson/Freddi

Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands skora á Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um að skýra betur hver nákvæm­lega stefna Íslands um sam­drátt í losun fram til árs­ins 2030 sé, þegar hún ávarpar leið­toga­fund um lofts­lags­mál sem Sam­ein­uðu þjóð­irnar, Bretland og Frakk­land standa að á morgun.

Samtökin kalla eftir því að Katrín setji fram tölu­leg mark­mið Íslands „refja­laust“, en ekki óljós mark­mið sem háð séu samn­ingum við Evr­ópu­sam­bandið, um til dæmis 40-46 pró­sent minni losun árið 2030 miðað við 1990, eins og for­sæt­is­ráð­herra nefndi í sam­tali við Vísi í gær.

„Lofts­lags­stefna íslenskra stjórn­valda verður að vera miklu gagn­særri og skýr­ari. Það er engin von til að stjórn­sýsla lofts­lags­mála skýrist þegar ekki er ljóst hvað stjórn­völd vilja,“ segir Árni Finnsson, for­maður sam­tak­anna í sam­tali við Kjarnann.

[adspot]

Í frétta­til­kynn­ingu sam­tak­anna er bent á að í febr­úar hafi Noregur end­ur­nýjað fyr­ir­heit sín og norsk stjórn­völd stefni nú á 50 pró­sent sam­drátt, að lág­marki, árið 2030 miðað við 1990. Á sama tíma sé margt óljóst um mark­mið Íslands og stefnu í lofts­lags­málum.

„Óboðlegt“ að ekki sé skýrt hvað kolefnishlutleysi 2040 þýði

„Það er til dæmis ekki ljóst hvað kolefn­is­hlut­leysi 2040 þýðir. Og hvað eiga emb­ættimenn þá að gera?“ spyr Árni, en auk þess að kalla eftir skýrum tölum um hvað Ísland ætli sér að minnka losun mikið segja sam­tökin að stjórn­völd verði að lög­festa mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar um kolefn­is­hlut­leysi árið 2040.[links]

Þau segja það hrein­lega „óboð­legt“ að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir fari inn í kosn­inga­bar­áttu næsta árs „án þess að kjós­endur séu nokkru nær um hvað hug­takið eða stefnan feli í sér,“ en Árni á sæti í lofts­lags­ráði, sem hefur hvatt stjórn­völd til þess að lög­festa hug­takið.

Í frétta­til­kynn­ingu sam­tak­anna segir að ef „kolefn­is­hlut­leysi árið 2040“ sé ekki skil­greint sam­kvæmt íslenskum lögum sé ekki hægt að vita hvað stjórn­völd hyggj­ast fyrir og bent er á að þónokkur ríki hafi þegar lög­fest kolefn­is­hlut­leysi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

parísarsamningurinn

Fréttirparísarsamningurinn

Ísland í far­ar­broddi með full­gild­ingu Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins

Par­ís­ar­sam­komu­lagið er tíma­móta­sam­komu­lag og mun með tím­anum geta haft mikil áhrif á líf okkar. Þetta sagði Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverf­is­ráð­herra, eftir að Par­ís­ar­samn­ing­ur­inn um aðgerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum var full­giltur á Alþingi í gær. Samn­ing­ur­inn var sam­þykktur í des­em­ber á síð­asta ári, á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York, en í honum er meðal ann­ars kveðið á um að ríki stefni að...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár