„Sögulegur sigur fyrir loftslagið“ í frönskum réttarsal

Dómstóll í París hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að franska ríkið hafi ekki gert nægi­lega mikið til að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í sam­ræmi við skuld­bind­ingar Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins. Refsing rík­is­ins á að fel­ast í því að gera betur.

Franska ríkið hefur gert ólög­lega lítið til þess að standa við skuld­bind­ingar sínar um að minnka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sam­kvæmt Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu. Þetta er nið­ur­staða dóm­stóls í París, en þar var í morgun kveð­inn upp dómur í máli sem hefur vakið mikla athygli, en um að ræða fyrstu stóru „lofts­lags­rétt­ar­höldin“ í Frakk­landi.

Samkvæmt umfjöllun franska blaðs­ins Le Monde er um sögu­lega nið­ur­stöðu að ræða, í máli sem Greenpeace, Oxfam og tvö önnur frjáls félaga­sam­tök höfð­uðu gegn franska rík­inu árið 2019 eftir að rúm­lega tvær millj­ónir höfðu for­dæmt aðgerða­leysi rík­is­ins í lofts­lags­málum með því að setja nafn sitt á und­ir­skrifta­lista.

Málið var tekið til aðal­með­ferðar í jan­úar og nú liggur nið­ur­staðan ljós fyrir. Í frétt frá Associated Press (AP) segir að dóm­stóll­inn í París hafi bæði fall­ist á að vist­kerfi væru að verða fyrir skaða vegna lofts­lags­breyt­inga af manna­völdum og varpað ábyrgð á franska ríkið.

Stjórn­völdum hefði mis­tek­ist að standa við yfir­lýst og lög­bundin mark­mið sín í lofts­lags­málum á und­an­förnum árum. Það gengur ekki, að mati dóm­stóls­ins.

[adspot]

Í frétt AP segir að Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seti hafi verið ötull tals­maður þess að meira sé gert til þess að takast á við lofts­lags­breyt­ingar á heims­vísu. Á sama tíma hafi tölu­sett árleg mark­mið Frakka um minni losun inn­an­lands ekki náðst og aðgerðum sem miða að því marki að draga frekar úr losun og upp­fylla mark­mið verið velt fram í tím­ann.

Refsingin: Að gera betur

Nið­ur­staða dóm­stóls­ins var, sam­kvæmt frétt AP, að það væri til lít­ils og ætti ekki við að láta franska ríkið greiða ein­hverjar fésektir eða miska­bætur út af mál­inu, utan einnar tákn­rænnar evru til félag­anna fjög­urra sem stóðu að mál­sókn­inni.

Þess í stað ætti franska ríkið að ein­setja sér að laga þær brotala­mir sem hafi leitt til þess að mark­mið rík­is­ins um minni losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hafi ekki náðst.

Ekki er alveg ljóst hvernig þetta mun allt enda, en dóm­stól­inn hefur sam­kvæmt frétt AP gefið sér tvo mán­uði til þess að ákvarða hvaða aðgerðir franska ríkið ætti að taka upp til þess að koma sér inn á rétta braut.

Dómurinn gæti því orðið til þess að breyta lofts­lags­stefnu lands­ins. Samtökin sem stóðu að mála­rekstr­inum kalla nið­ur­stöð­una „sögu­legan sigur fyrir lofts­lagið“ og „sigur sann­leik­ans,“ enda hafi frönsk stjórn­völd til þessa neitað fyrir að vera ekki að gera nægi­lega mikið í lofts­lags­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

parísarsamningurinn

Fréttirparísarsamningurinn

Ísland í far­ar­broddi með full­gild­ingu Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins

Par­ís­ar­sam­komu­lagið er tíma­móta­sam­komu­lag og mun með tím­anum geta haft mikil áhrif á líf okkar. Þetta sagði Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverf­is­ráð­herra, eftir að Par­ís­ar­samn­ing­ur­inn um aðgerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum var full­giltur á Alþingi í gær. Samn­ing­ur­inn var sam­þykktur í des­em­ber á síð­asta ári, á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York, en í honum er meðal ann­ars kveðið á um að ríki stefni að...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár