Ísland í fararbroddi með fullgildingu Parísarsamkomulagsins

Par­ís­ar­sam­komu­lagið er tíma­móta­sam­komu­lag og mun með tím­anum geta haft mikil áhrif á líf okkar. Þetta sagði Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverf­is­ráð­herra, eftir að Par­ís­ar­samn­ing­ur­inn um aðgerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum var full­giltur á Alþingi í gær.

Samn­ing­ur­inn var sam­þykktur í des­em­ber á síð­asta ári, á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York, en í honum er meðal ann­ars kveðið á um að ríki stefni að því ná 40 pró­sent sam­drætti í losun árið 2030 miðað við útblástur árið 1990.

Und­ir­ritun samn­ings­ins fór fram í 22. apríl á þessu ári, og skrif­uðu þá full­trúar 160 ríkja undir hann, þar á meðal Sigrún Magn­ús­dóttir. Alþingi hefur nú sam­þykkt að heim­ila full­gild­ingu samn­ings­ins.

Kallar á margvíslegar aðgerðir

Ísland hefur for­skot á margar þjóðir í heim­inum, þegar kemur að því upp­fylla meg­in­mark­miðin, einkum og sér í lagi vegna þess að orku­nýt­ing okkar byggir á nýt­ingu end­ur­nýj­an­legrar orku vatns­afls og jarð­hita. En áskor­an­irnar eru engu að síður miklar, og ljóst að mik­illa aðgerða er þörf. Sigrún hefur sjálf talað fyrir því að margt sé hægt að gera, til dæmis að raf­væða bíla- og skipa­flot­ann og auð­vitað margt fleira. En fólk verði sjálft að leggja mikið af mörkum með umhverf­is­vænum lífstíl.

Par­ís­ar­samn­ing­ur­inn myndar ramma utan um skuld­bind­ingar sem ríkin hafa sjálf­viljug sett fram með það að mark­miði að halda hækkun hita­stigs jarðar undir 2°C miðað við með­al­hita­stig jarðar fyrir iðn­væð­ingu. Jafn­framt skuli leita leiða til þess að halda hækkun hita­stigs undir 1,5°C. Samn­ing­ur­inn mun hafa áhrif á mark­mið Íslands í lofts­lags­málum, en hefur ekki að geyma bein ákvæði um tölu­legar skuld­bind­ingar ein­stakra ríkja. Ísland lagði fram áætlað fram­lag sitt í júní 2015 eftir sam­þykkt þess efnis í rík­is­stjórn, og hefur mál­inu verið fylgt eftir síðan.

Ísland í fararbroddi

„Að auki tekur samn­ing­ur­inn meðal ann­ars til aðlög­unar að lofts­lags­breyt­ingum, stuðn­ings þró­aðra ríkja við þró­un­ar­lönd, upp­töku og varð­veislu kolefnis í skógum og öðrum við­tökum og gegn­sæi. Hvert ríki skal halda traust bók­hald og gefa reglu­lega upp­lýs­ingar um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Gert er ráð fyrir að lands­á­kvörðuð fram­lög séu upp­færð á fimm ára fresti þannig að þau verði sífellt metn­að­ar­fyllri og í sam­ræmi við nið­ur­stöður og leið­sögn vís­inda, í því skyni að ná mark­miðum um að halda hækkun hita­stigs innan til­tek­inna marka,“ segir í til­kynn­ingu frá umhverf­is­ráðu­neyt­inu,.

Samn­ing­ur­inn tekur gildi þegar a.m.k. 55 ríki með 55 pró­sent af heimslosun hafa full­gilt hann. Nú hafa yfir 20 ríki full­gilt Par­ís­ar­samn­ing­inn, Ísland þar á meðal. Þessi ríki eru því í far­ar­broddi þeirra sem hafa skuld­bundið til að full­gilda samn­ing­inn. Haft er eftir Lilju Alfreðs­dóttur, utan­rík­is­ráð­herra að full­gild­ing Alþingis sé ánægju­leg. „Það er ánægju­legt að Ísland skuli vera í hópi þeirra ríkja sem stað­festa full­gild­ingu sína á Alls­herj­ar­þingi SÞ nú í vik­unni og verði þannig í hópi þeirra 55 ríkja sem verða til þess að samn­ing­ur­inn taki gildi. Ég finn sterkt fyrir áhuga þjóða heims á Par­ís­ar­samn­ingnum og hvað loft­lags­málin eru mik­il­væg öllum þeim sem láta sig varða vel­ferð í heim­inum. Það er því sér­stakt ánægju­efni að Ísland hafi lagt sitt lóð á vog­ar­skál­arnar," segir Lilja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

parísarsamningurinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár