Skin og skúrir í dönskum stjórnmálum

Danska stjórnin féll í þing­kosn­ing­unum 5. júní þrátt fyrir að fylgi Venstre, flokks Lars Løkke Rasmus­sen frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra ykist veru­lega. Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður eru hafnar, en þær gætu reynst snúnar.

Mette Frederiksen faðmar stuðningsmann á kosninganótt. Hún verður nær örugglega næsti forsætisráðherra Danmerkur.
Mette Frederik­sen faðmar stuðn­ings­mann á kosn­inga­nótt. Hún verður nær örugg­lega næsti for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur. Mynd: EPA

Stundum er sagt að það sé skrýtin tík, póli­tíkin. Undir það gæti Lars Løkke Rasmus­sen frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra Dana, og for­maður Venstre, tekið. Í þing­kosn­ing­unum 2015 fékk Venstre 34 þing­menn, missti 13. Eigi að síður tókst Lars Løkke Rasmus­sen, með stuðn­ingi Íhalds­flokks­ins, Frjáls­ræð­is­banda­lags­ins og Danska þjóð­ar­flokks­ins, að mynda stjórn. Íhalds­flokk­ur­inn og Frjáls­ræð­is­banda­lagið fengu síðar aðild að stjórn­inni, sem sat út kjör­tíma­bilið. Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn, með 37 þing­menn, vildi ekki setj­ast í rík­is­stjórn, vildi frekar stjórna úr aft­ur­sæt­inu, eins og danskir fjöl­miðlar orða það. Þessir flokkar til­heyra bláu blokk­inni svo­nefndu.

[adspot]Í nýaf­stöðnum kosn­ingum bætti Venstre við sig 9 þing­mönnum, hefur nú 43 þing­menn, en eigi að síður féll stjórnin. Í við­tali við dag­blaðið Politi­ken sagði Lars Løkke Rasmus­sen að svona væri hún nú „den her politik“, og bætti við að hann væri ekki á förum úr stjórn­málum.

Skoðanakannanir

Í kjöl­far kosn­ing­anna hefur tals­vert verið rætt um skoð­ana­kann­anir, og spár, sem fram fóru í aðdrag­anda kosn­ing­anna. Þær reynd­ust í mörgum til­vikum all fjarri lagi og stjórn­mála­skýrendur kenna það mis­mun­andi aðferðum. Allar kann­anir höfðu sýnt að Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn og Frjáls­ræð­is­banda­lagið myndu tapa umtals­verðu fylgi, það gekk eftir. Kann­an­irnar sýndu fylgi Sós­í­alde­mókrata mjög líkt því sem raunin varð en Venstre var spáð tals­verðu tapi og sömu­leiðis Íhalds­flokknum. Spárnar, og kann­an­irnar, varð­andi þessa tvo síð­ast­nefndu flokka reynd­ust í nær öllum til­vikum víðs fjarri því sem nið­ur­staða kosn­ing­anna leiddi í ljós. Rétt er að nefna að fram á síð­ustu stundu voru margir óákveðnir.

Sigurvegarar

„Konan sigr­aði“ sagði við­mæl­andi danska sjón­varps­ins, DR, þegar hann var spurður álits á úrslitum kosn­ing­anna. Átti þar vænt­an­lega við Mette Frederik­sen leið­toga Sós­í­alde­mókrata, stærsta flokks rauðu blokk­ar­innar svo­nefndu í dönskum stjórn­málum. Þetta svar er kannski rétt, svo langt sem það nær, en sig­ur­inn var ekki til­kom­inn vegna þess að flokkur Mette Frederik­sen hefði aukið svo fylgi sitt. Flokk­ur­inn tap­aði reyndar svolitlu fylgi, en bætti eigi að síður við sig, vegna reglna um skipt­ingu þing­sæta, einum þing­manni. Sós­íal­íski þjóð­ar­flokk­ur­inn og Radikale ven­stre, sem báðir til­heyra rauðu blokk­inni svo­nefndu í dönskum stjórn­málum bættu sam­tals við sig 15 þing­mönnum en Ein­ing­ar­list­inn, sem líka til­heyrir rauðu blokk­inni tap­aði einum þing­manni. Rauða blokkin hefur sam­tals 91 þing­mann af þeim 179 sem sæti eiga á þingi, Fol­ket­inget, og þar með meiri­hluta.

„Bláa blokkin“ missir völdin

„Völdin fær­ast til“ sagði Lars Løkke Rasmus­sen í ávarpi sínu á kosn­inga­vöku Venstre að kvöldi kjör­dags, þegar ljóst var hvert stefndi. Eins og áður var nefnt mátti Venstre flokk­ur­inn vera sáttur við sinn hlut, með 43 þing­menn. Íhalds­flokk­ur­inn tvö­fald­aði þing­manna­fjöld­ann og hefur nú 12 þing­menn. Tveir flokkar úr „bláu blokk­inni“ fengu hins­vegar herfi­lega útreið. Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn tap­aði 21 manni og hefur nú 16 þing­menn. Frjáls­ræð­is­banda­lagið tap­aði 9 mönnum og á nú aðeins 4 full­trúa á þingi.

„Völdin fær­ast til“ sagði Lars Løkke Rasmus­sen í ávarpi sínu á kosn­inga­vöku Venstre að kvöldi kjör­dags, þegar ljóst var hvert stefndi. Eins og áður var nefnt mátti Venstre flokk­ur­inn vera sáttur við sinn hlut, með 43 þing­menn. Íhalds­flokk­ur­inn tvö­fald­aði þing­manna­fjöld­ann og hefur nú 12 þing­menn. Tveir flokkar úr „bláu blokk­inni“ fengu hins­vegar herfi­lega útreið. Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn tap­aði 21 manni og hefur nú 16 þing­menn. Frjáls­ræð­is­banda­lagið tap­aði 9 mönnum og á nú aðeins 4 full­trúa á þingi.

Hvað skýrir tap þessara tveggja flokka?

Danskir stjórn­mála­skýrendur nefna nokkrar ástæður fyrir fylg­is­hruni Danska þjóð­ar­flokks­ins. Í fyrsta lagi er sú harða og stranga stefna í mál­efnum flótta­fólks og hæl­is­leit­enda, sem hefur verið eitt helsta bar­áttu­mál flokks­ins, að nokkru leyti gufuð upp og mun minna áber­andi í fréttum en áður.

Stjórn­mála­skýrendur nefna líka að hluti þeirra sem áður kusu Danska þjóð­ar­flokk­inn hafi hugs­an­lega kosið Nýja borg­ara­lega flokk­inn sem er nýr á þingi og fékk 4 þing­menn (83.201 atkvæði, 2.4% ) Annar nýr flokkur, Ströng stefna, (Stram kurs), náði ekki yfir 2% lág­markið og fékk því engan þing­mann en eigi að síður 63.114 atkvæði (1.8%).

Ummæli Piu Kjærs­gaard, for­seta þings­ins og þing­manns Danska þjóð­ar­flokks­ins, þegar hún kenndi umhverf­issinnum um tap flokks­ins í kosn­ingum til Evr­ópu­þings­ins fyrir skömmu, þar sem flokk­ur­inn missti 3 full­trúa af 4. Klimatosser, (lofts­lags­flón) var orðið sem hún not­aði. Þessi ummæli túlk­uðu margir sem við­horf Danska þjóð­ar­flokks­ins til lofts­lags­vand­ans og að tala niðr­andi um þau mál er ekki í takt við tíð­ar­and­ann. Þrátt fyrir útreið­ina virð­ist flokks­for­mað­ur­inn Kristian Thulesen Dahl traustur í sessi.

Stjórn­mála­skýrendur nefna einnig að mörgum Dönum hafi þótt nóg um stjórn­semi „aft­ur­sæt­is­bíl­stjór­ans“ í ýmsum málum og nefna þar sér­stak­lega boð­aðan fimmt­ungs nið­ur­skurð á starf­semi danska útvarps­ins, DR, sem sam­þykktur var á þing­inu, að kröfu Danska þjóð­ar­flokks­ins.

Flokkar innan „rauðu blokk­ar­innar“ hafa reyndar talað um að snúa þeirri ákvörðun við.

Varðandi tap Frjáls­ræð­is­banda­lags­ins nefna stjórn­mála­skýrendur einkum eina ástæðu. Fyrir síð­ustu kosn­ingar var helsta (sumir segja eina) bar­áttu­mál flokks­ins að fá lækk­aðan svo­nefndan hátekju­skatt, sem einkum myndi gagn­ast hinum efna­meiri. Anders Samu­el­sen for­maður Frjáls­ræð­is­banda­lags­ins sagði margoft, bæði fyrir og eftir kosn­ing­arnar 2015 að lækkun þessa skatts væri ófrá­víkj­an­legt skil­yrði fyrir stuðn­ingi flokks­ins við stjórn Venstre.

[adspot]Þegar Lars Løkke Rsmussen bauð Frjáls­ræð­is­banda­lag­inu aðild að rík­is­stjórn­inni árið 2016 lagði flokk­ur­inn kröf­una um lækkun hátekju­skatts á hill­una. „Þau eru mjúk sætin í ráð­herra­bílnum og flug­vél­unum“ sagði Ekstra blaðið en flokks­for­mað­ur­inn Anders Samu­el­sen varð utan­rík­is­ráð­herra í stjórn Lars Løkke. Margir kjós­endur litu á þetta sem svik, sem miðað við úrslit kosn­ing­anna nú, féllu ekki í gleymsk­unnar dá.

Stjórn­mála­skýrendur nefna einnig að vina- og frænd­hygli hafi verið áber­andi innan valda­hóps­ins í Frjáls­ræð­is­banda­lag­inu.

Foringjakreppa

Sl. fimmtu­dag, dag­inn eftir kosn­ingar sagði Anders Samu­el­sen af sér for­mennsku í Frjáls­ræð­is­banda­lag­inu og kvaðst hættur í póli­tík. Ekki er ljóst, þegar þetta er skrifað, hver tekur við en það er ekki um auð­ugan garð að gresja, þing­menn flokks­ins eru aðeins fjórir. Simon Emil Ammitzbøll-Bille, sem var nán­asti sam­starfs­maður Anders Samu­el­sen hefur lýst yfir að hann gefi ekki kost á sér, tveir þing­menn eru ekki taldir hæfir til for­mennsku, margra hluta vegna, og þá er eftir einn. Sá heitir Alex Vanopslagh, 27 ára Jóti. Hann hefur ekki áður setið á þingi en hefur um nokk­urra ára skeið starfað innan flokks­ins. Hvenær nýr for­maður tekur við, og hver það verður, er ekki vitað. Samkvæmt reglum flokks­ins ákveður þing­flokk­ur­inn hver skuli vera and­lit flokks­ins út á við, eins og það er kallað.

Sumir dönsku fjöl­miðl­anna hafa ekki getað setið á sér varð­andi ástandið í Frjáls­ræð­is­banda­lag­inu, væng­stýða flokknum, eins og þeir nefna hann. „það ríkir ringul­reið í skemmti­báta­klúbbnum í Rungsted“ sagði Politi­ken.

Stjórnarmyndun gæti orðið snúin

Eins og vænta mátti, í ljósi kosn­inga­úr­slit­anna, fól Margrét Þór­hildur drottn­ing Mette Frederik­sen leið­toga Sós­í­alde­mókrata umboð til mynd­unar stjórnar. Fyrir kosn­ingar hafði Mette Frederik­sen sagt að hún myndi vilja stefna að minni­hluta­stjórn Sós­í­alde­mókrata, með stuðn­ingi ann­arra flokka í „rauðu blokk­inni“, Sós­íal­íska þjóð­ar­flokknum, Radikale Venstre og Ein­ing­ar­list­anum. Mette Frederik­sen ræddi við full­trúa ann­arra flokka, sem sæti eiga á þingi, í fyrra­dag (föstu­dag). Þeim við­ræðum lýsti Mette Frederik­sen sem fyrsta skrefi í göngu sem gæti orðið löng. Full­trúar áður­nefndra þriggja flokka lögðu fram sín áherslu­at­riði, til kynn­ingar eins og einn full­trú­inn komst að orði. Mette Frederik­sen sagði að framundan væru stíf funda­höld „en við flýtum okkur þó hægt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár