Komið verður á fót miðlægri skrá um bankareikninga og eigendur þeirra

Víðtækri skrá um eig­endur banka­reikn­inga, umboðs­að­ila reikn­ings­eig­enda og leigu­taka geymslu­hólfa verður komið á verði nýtt frum­varp að lögum. Þá verður gerður listi yfir hátt­sett opin­ber störf sem telj­ast tengj­ast áhættu vegna stjórn­mála­legra tengsla.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra leggur frumvarpið fram.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra leggur frum­varpið fram. Mynd: Bára Huld Beck

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefur lagt fram drög að frum­varpi í sam­ráðs­gátt stjórn­valda sem felur meðal ann­ars í sér að komið verður á fót skrá um banka­reikn­inga og eig­endur þeirra sem eft­ir­lits­að­ilar geta nýtt við að rann­sókn brota á lögum um pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Í skránni verða einnig upp­lýs­ingar um umboðs­að­ila reikn­ings­eig­anda, raun­veru­lega eig­endur lög­að­ila sem og upp­lýs­ingar um leigu­taka geymslu­hólfa. Þá verður komið á fót lista yfir þau hátt­settu opin­beru störf sem telj­ast tengj­ast áhættu vegna stjórn­mála­legra tengsla auk þess sem skil­grein­ingu á þeim áhættu­hópi verður breytt þannig að til þess hóps telj­ist ein­stak­lingar í stjórnum stjórn­mála­flokka í stað fram­kvæmda­stjórna eins og núgild­andi lög gera ráð fyrir.

Frum­varps­drögin, sem mun breyta nýlegum lögum um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti fjár­mögnun hryðju­verka, eiga að ljúka við inn­leið­ingu á fimmtu pen­inga­þvætt­is­til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins auk þess að gera nokkrar aðrar breyt­ingar, verði Þau að lögum.. Markmið gerð­ar­innar er a koma í veg fyrir notkun á fjár­mála­kerf­inu til pen­inga­þvættis eða fjár­mögn­unar hryðju­verka.

Miðlæg skrá fyrir skrifstofu fjármálagreininga

Skráin yfir eig­endur banka­reikn­inga og leigu­taka geymslu­hólfa á að vera mið­læg og starfs­menn skrif­stofu fjár­mála­grein­inga lög­reglu, sem sinna pen­inga­þvætt­is­eft­ir­liti, munu hafa aðgang að skránni í störfum sínum.

Í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum segir að verk­efnið muni hafa kostnað í för með sér fyrir rík­is­sjóð. „Gert er ráð fyrir að kostn­að­ur­inn við kerfið falli einkum til í upp­hafi við að koma því á fót. Einnig mun rekstur kerf­is­ins auka verk­efni hins opin­bera til fram­tíðar þar sem tryggja þarf að gögn skili sér með réttum hætti auk þess að þróa þarf kerfið og við­halda því. Tilkoma skrár­innar mun á móti hafa í för með sér hag­ræði og vinnu­sparnað fyrir eft­ir­lits­að­ila með pen­inga­þvætti og þannig flýta fyrir vinnu við eft­ir­lit og rann­sóknir.“

[adspot]Mark­miðið fimmtu pen­inga­þvætt­is­til­skip­unar Evr­ópu­sam­bands­ins, sem aðild­ar­ríkjum sam­bands­ins var gert að inn­leiða fyrir 10. jan­úar síð­ast­lið­inn en EFTA-ríkin innan EES hafa rýmri tíma til að taka upp, er að koma í veg fyrir notkun á fjár­mála­kerf­inu til pen­inga­þvættis eða fjár­mögn­unar hryðju­verka.

Gerðinni er meðal ann­ars ætlað að bregð­ast við hryðju­verka­árásum í Evrópu með því að setja auknar skorður við fjár­mögnun slíkrar starf­semi. Auk þess er með henni brugð­ist við tækni­fram­förum sem fela ekki aðeins í sér tæki­færi fyrir lög­lega starf­semi heldur einnig brota­starf­semi og er í grein­ar­gerð sér­stak­lega fjallað um þjón­ustu­veit­endur sem bjóða upp á við­skipti milli sýnd­ar­fjár, raf­eyris og gjald­miðla. Þá eru með inn­leið­ing­unni settar frek­ari skorður við nafn­lausri notkun fyrir fram greiddra korta, komið á áður­nefndri skrá um banka­reikn­inga og eig­endur þeirra sem eft­ir­lits­að­ilar geta nýtt við að rann­sókn brota á lögum um pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verk og lista yfir þau hátt­settu opin­beru störf sem telj­ast tengj­ast áhættu vegna stjórn­mála­legra tengsla.

Ísland áfram á gráum lista

Ísland var sett á gráan lista sam­tak­anna Financial Action Task Force (FATF) í októ­ber í fyrra vegna þess að sam­tökin telja að varnir lands­ins gegn pen­inga­þvætti séu ekki í lagi. Á fundi sam­tak­ana í febr­úar 2020 var staða Íslands á list­anum ekki end­ur­skoðuð. Næsti mögu­leiki fyrir Íslands til að losna af gráa list­anum er í júní.

[links]Á gráa list­anum eru alls 18 ríki. Ísland er eina ríkið innan Evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins sem er á honum en á meðal ann­arra sem þar er að finna eru Alban­ía, Kam­bó­día, Bahama­eyj­ar, Pakístan, Sýr­land, Panama og Simbabve.

Í umsögn um Ísland, á und­ir­síðu sam­tak­anna þar sem talin eru upp þau lönd sem eru á gráum lista fyrir ónógar aðgerðir gegn pen­inga­þvætti, kemur fram að Ísland hafi tekið nokkrar póli­tískar ákvarð­anir um að skuld­binda sig til að auka virkni varna sinna. Á meðal þess sem gert hafi er að fjölga starfs­mönnum í þeim eft­ir­lits­stofn­unum sem hafa slíkt eft­ir­lit með hönd­um, sér­stak­lega innan skrif­stofu fjár­mála­grein­inga hjá hér­aðs­sak­sókn­ara. Þar segir að Ísland ætti að halda áfram að inn­leiða áætlun sína um að bæta úr brota­lömum þar sem þær eru að finna, meðal ann­ars með því að mæti fyr­ir­liggj­andi skorti á réttum upp­lýs­ingum um raun­veru­lega eig­endur fyr­ir­tækja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár