Leggur til að gjöld á atvinnulífið verði felld tímabundið niður vegna kórónuveirunnar

Þor­steinn Víglunds­son leggur til að atvinnu­lífið fái til­tekin gjöld nið­ur­felld um nokk­urra mán­aða skeið til að milda höggið sem fylgir útbreiðslu nýju kór­ónu­veirunnar.

Þorsteinn Víglundsson leggur til að gjöld á atvinnurekstur verði felld tímabundið niður til að mæta áhrifum af útbreiðslu kórónuveirunnar.
Þor­steinn Víglunds­son leggur til að gjöld á atvinnu­rekstur verði felld tíma­bundið niður til að mæta áhrifum af útbreiðslu kór­ónu­veirunnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þor­steinn Víglunds­son þing­maður Við­reisnar leggur til, í færslu á Facebook, að stjórn­völd grípi til tíma­bund­innar nið­ur­fell­ingar á opin­berum gjöldum á borð við trygg­inga­gjald til þess að milda efna­hags­leg áhrif af útbreiðslu nýju kór­ónu­veirunnar.

Leið­togar rík­is­stjórn­ar­flokk­anna hafa boðað til blaða­manna­fundar kl. 11:30 í dag til þess að kynna aðgerðir til að mæta áhrifum af útbreiðslu veirunnar.

„Rætt hefur verið um lengri gjald­fresti á opin­berum gjöldum, líkt og gripið var til í hrun­inu. Mun betri og áhrifa­rík­ari leið væri ein­fald­lega að fella niður til­tekin opin­ber gjöld tíma­bundið, t.d. í 2-3 mán­uði, á meðan þyngsta efna­hags­lega höggið gengur yfir. Í þeim efnum lægi beint við að fella niður trygg­inga­gjald og gistin­átta­gjald. Slík aðgerð hefði bein og tafa­laus áhrif á efna­hags­lífið og gæti komið í veg fyrir að fyr­ir­tæki grípi til umfangs­meiri upp­sagna en ella,“ skrifar Þor­steinn og bætir við að þriggja mán­aða nið­ur­fell­ing þess­ara gjalda myndi sam­svara um 26 millj­arða inn­spýt­ingu í efna­hags­lífið.

„Slík við­brögð myndu sýna kjark og áræðni stjórn­valda til að beita fjár­hags­legum styrk rík­is­sjóðs til að draga úr efna­hags­legum áhrifum veirunnar,“ skrifar Þor­steinn, sem telur hefð­bundin hag­stjórnar­úr­ræði duga skammt til þess að milda höggið sem útbreiðsla veirunnar er að valda efna­hags­líf­inu.

Þá leggur hann einnig til að kólnun hag­kerf­is­ins verði mætt með því að gefa í hvað varðar opin­bera fjár­fest­ingu, meðal ann­ars með því að hraða vega­fram­kvæmdum og öðrum mik­il­vægum inn­viða­fram­kvæmdum. Einnig leggur hann til í því sam­hengi að áform um veggjöld verði lögð til hliðar, þar sem tíma­frek umræða um þau gætu þvælst fyrir því að upp­bygg­ing vega­kerf­is­ins gæti haf­ist.

Ríkisstjórnin kynnir aðgerðir í dag

Leið­togar rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra hafa boðað til blaða­manna­fundar í Ráð­herra­bú­staðnum við Tjarn­ar­götu í dag kl. 11:30.

Þar verða kynntar aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar til að mæta efna­hags­legum áhrifum af útbreiðslu nýju kór­ónu­veirunnar og COVID-19, sjúk­dóms­ins sem veiran veldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár