Með hraða snigilsins

Í febr­úar 2008 und­ir­rit­uðu sam­göngu­ráð­herrar Dan­merkur og Þýska­lands sam­komu­lag um brú­ar­gerð yfir Femern sundið milli Rødby í Danmörku og Putt­gar­den í Þýska­landi. Þá höfðu árum saman staðið yfir umræður um ,,akveg“ yfir sundið.

Í upp­hafi var gert ráð fyrir brú, með land­fyll­ingum beggja vegna, fyr­ir­myndir þeirrar hug­myndar voru Eyr­ar­sunds­brúin milli Dan­merkur og Sví­þjóðar og Stóra­belt­is­brúin milli Sjálands og Fjóns. Eftir að ráð­herr­arnir höfðu und­ir­ritað sam­komu­lagið þurftu rík­is­stjórnir og þjóð­þing beggja landa að stað­festa það. Árið 2011, þremur árum eftir að ráð­herr­arnir und­ir­rit­uðu sam­komu­lagið skil­uðu tvö ráð­gjafa­fyr­ir­tæki skýrslum varð­andi fyr­ir­hug­aðan ,,akveg“. Nið­ur­staða beggja fyr­ir­tækj­anna var að æski­legra væri að leggja göng í stað þess að brúa. Rökin voru þau að göng hefðu minni áhrif á umhverfið, þau yrðu óháð veðri, sem skipti miklu máli því vinda­samt er á sund­inu og því mætti búast við að brú yrði lokað marg­sinnis á ári hverju. Breytt tækni gerði að verkum að til­tölu­lega litlu mun­aði á kostn­aði á göngum og brú. Allt mælti semsé með göngum og brú­ar­hug­myndin lögð á hill­una eftir að stjórn­mála­menn höfðu kynnt sér skýrsl­urnar.

Undirbúningurinn

Eftir miklar umræður, bæði á danska þing­inu og því þýska, var sam­þykkt, í febr­úar 2011, að ráð­ast í verk­efnið sem fékk heitið ,,Femern teng­ingin“. Þá fyrst var hægt að hefj­ast handa við und­ir­bún­ing þess­arar miklu fram­kvæmdar, gera nákvæma fjár­hags­á­ætlun, afla til­skil­inna leyfa o.s.frv. Allt slíkt tekur langan tíma og því ljóst að ganga­gerð­inni yrði ekki hespað af. Þegar þjóð­þing land­anna tveggja höfðu sam­þykkt verk­efnið (og sett sér­stök fram­kvæmda­lög) var til­kynnt að ef allt gengi að óskum yrði hægt að aka um göngin árið 2020. Síðar kom í ljós að þarna hafði bjart­sýnin borið raun­sæið ofur­liði.

Einskonar hólkur á botninum

Eins og áður var á minnst hefur ný tækni við lagn­ingu neð­an­sjáv­ar­ganga gert að verkum að kostn­að­ur­inn við að leggja göng er nán­ast sá sami og að byggja brú, með upp­fyll­ingum beggja vegna. Aðferðin við ganga­gerð­ina er sú að steyptir verða 89 ,,bútar“, hver um sig um það bil 200 metra langur, 40 metra breiður og 9 metra hár. Hver ,,bútur“ vegur um það bil 73.500 tonn. ,,Bútarnir“ verða steyptir á landi, vænt­an­lega í Rødby á Lálandi, og dregnir fljót­andi,á réttan stað, þar verður þeim sökkt með því að hleypa vatni inn í sér­staka botnt­anka. Þeir verða svo festir saman og mynda þannig hin 18 kíló­metra löngu göng, lengstu göng í heimi á hafs­botni. Í göng­unum verða tvær akreinar í hvora átt auk lest­ar­ganga. Innheimt verður sér­stakt ganga­gjald (líkt og gert er við brýrnar yfir Eyr­ar­sund og Stóra­belti).

Kannski í gagnið árið 2028

Ljónin í vegi þess­arar miklu fram­kvæmdar reynd­ust bæði fleiri og fyr­ir­ferð­ar­meiri en hinir bjart­sýnu ráð­herrar gerðu ráð fyrir þegar sam­komu­lagið frá árinu 2008 var end­an­lega stað­fest 2011.

Mjög fljót­lega varð ljóst að göngin yrðu ekki tekin í notkun árið 2020, danski sam­göngu­ráð­herr­ann sagði snemma árs 2013 að von­andi yrði hægt að opna göngin árið 2022. Nú er talað um að árið 2028 verði göngin til­búin og komin í gagnið. Ótal­margt hefur orðið þess vald­andi að verk­inu seinkar jafn mikið og nú er útlit fyrir. Samninga- og útboðs­mál hafa reynst mun flókn­ari og tíma­frek­ari en talið var í upp­hafi. Í því sam­bandi er rétt að hafa í huga að verk­efni af þessu tagi á sér ekki hlið­stæðu, en danski sam­göngu­ráð­herr­ann sagði nýlega í við­tali að ,,þótt margir væru óþol­in­móðir væri mik­il­væg­ara að allir kubbar í þessu mikla púslu­spili lægju á end­anum á réttum stað“.

Gjöld og tekjur

Fram­kvæmdin er sú stærsta sem Danir hafa nokkru sinni ráð­ist í en þeir fjár­magna verkið að stærstum hluta en fá í stað­inn tekj­urnar af ganga­gjald­inu sem áður var nefnt. Samkvæmt nýj­ustu útreikn­ingum mun kostn­að­ur­inn við gerð gang­anna nema um það bil 64 millj­örðum danskra króna (um það bil 1060 millj­örðum íslenskum). Það er mun hærri upp­hæð en fyrst var gert ráð fyrir. Þótt ákveðin óvissa ríki um end­an­legan kostnað við ganga­gerð­ina er óvissan um tekju­hlið­ina þó mun meiri. Enginn veit hversu margir bílar og lestir koma til með að fara um göngin. Þetta veldur dönskum stjórn­völdum áhyggjum. Ef svo færi að færri noti göngin en spár gera ráð fyrir myndi hluti reikn­ings­ins vegna lagn­ingar gang­anna enda hjá skatt­greið­endum. Dönskum skatt­greið­endum vel að merkja.

Leynilega könnunin

Fyr­ir­tækin Femern A/S og Sund og Bælt (sem ann­ast rekstur Stóra­beltis- og Eyr­ar­sunds­brúnna) létu fyrir rúmu ári vinna yfir­grips­mikla könnun varð­andi hugs­an­lega umferð um nýju göngin. 56 þús­und bíl­stjórar sem að jafn­aði aka um Stóra­belt­is­brúna og for­svars­menn flutn­inga­fyr­ir­tækja voru spurðir hvort þeir myndu nota Femern teng­ing­una þegar hún kemst í gagnið. Þrátt fyrir að Danska rík­is­út­varpið og fleiri danskir fjöl­miðlar hafi marg­sinnis óskað eftir að fá upp­lýs­ingar um nið­ur­stöður þess­arar könn­unar hefur það ekki tek­ist. Sam­göngu­ráðu­neytið hefur ekki heldur fengið að sjá nið­ur­stöð­urnar. Þegar spurt hefur verið um ástæður þess að nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar er haldið leyndum er skýr­ingin sú að aðferð­inni við könn­un­ina hafi verið ,,ábóta­vant“. Femern fyr­ir­tækið hefur til­kynnt að nú sé unnið að nýrri umferð­ar­könnun, nið­ur­stöður hennar eiga að liggja fyrir um næstu ára­mót. ,, Þetta snigl­ast áfram“ sagði danskur ráð­herra nýlega í við­tali þegar rætt var um göngin.

Munu gjörbreyta samgöngunum

Göngin munu gjör­breyta sam­göngum milli Dan­merkur og Þýska­lands. Um það eru allir sam­mála. Danski sam­göngu­ráð­herr­ann, Ole Birk Olesen sagði nýlega í við­tali að vissu­lega hefði verið æski­legt að verkið hefði ekki dreg­ist jafn mikið og raun hefur orðið en þegar spurt var hvort kannski væri óraun­hæft að ráð­ast í svo stórt verk­efni svar­aði ráð­herr­ann ,,Femern göngin munu vissu­lega hvíla á sandi en ákvörð­unin um að leggja þau, var ekki byggð á sandi“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár