Oddný og Viktor Stefán leiða Samfylkinguna í Suðurkjördæmi

Fram­boðs­listi Sam­fylk­ing­ar­innar í Suð­ur­kjör­dæmi var sam­þykkur á fundi kjör­dæm­is­ráðs í kvöld. Oddný Harð­ar­dóttir leiðir list­ann áfram og Viktor Stefán Pálsson verður í öðru sæti list­ans.

Oddný Harðardóttir leiðir lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi á ný.
Oddný Harð­ar­dóttir leiðir lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Suð­ur­kjör­dæmi á ný. Mynd: Norden.org/Johannes Jansson

Oddný Harð­ar­dóttir þing­maður, þing­flokks­for­maður og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra leiðir lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Suð­ur­kjör­dæmi til kosn­inga í haust. Í öðru sæti list­ans verður Viktor Stefán Pálsson, sviðs­stjóri hjá Mat­væla­stofnun og for­maður Ung­menna­fé­lags Selfoss og þriðja sætið skipar Guðný Birna Guð­munds­dóttir hjúkr­un­ar­stjóri heima­hjúkr­unar hjá Reykja­vík­ur­borg og bæj­ar­full­trúi í Reykja­nesbæ.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Sam­fylk­ing­unni, en sam­kvæmt henni var listi flokks­ins sam­þykktur með „yfir­gnæf­andi meiri­hluta“ á fundi kjör­dæm­is­ráðs í Suð­ur­kjör­dæmi í kvöld.

Odd­vit­inn Oddný, sem er eini þing­maður flokks­ins í kjör­dæm­inu, seg­ist leiða list­ann með stolti inn í kosn­ingar hausts­ins. „Það eru fjöl­mörg tæki­færi framundan í upp­bygg­ingu eftir heims­far­aldur og sýn okkar er skýr í þeim efnum. Rík­is­stjórnin og stjórn­ar­flokk­arnir hafa brugð­ist og ekki staðið með fólk­inu í kjör­dæm­inu sem bera þyngstu byrð­arnar í heims­far­aldr­inum. Nú þurfum við allar hendur á dekk svo ný rík­is­stjórn eftir kosn­ingar verði leidd af jafn­að­ar­mönnum,” er haft eftir henni í til­kynn­ingu flokks­ins.

Eins og Kjarninn fjall­aði um nýlega létu nokkrir, sem höfðu hug á að taka eitt af efstu sætu list­ans í Suð­ur­kjör­dæmi, óánægju sína í ljós þegar þeim var ekki boðið að setj­ast í umrædd sæti.

Páll Valur Björns­son fyrr­ver­andi þing­maður Bjartrar fram­tíðar og núver­andi vara­þing­maður Sam­fylk­ingar var einn þeirra „Það verður að segj­ast eins og er að þessi aðferð Sam­fylk­ing­ar­innar við að raða upp á lista er eig­in­lega alveg glötuð,“ skrif­aði Páll Valur á Face­book.

Njörður Sig­urðs­son, sem skip­aði annað sæti á list­anum 2017, fékk að eigin sögn boð um að vera í fjórða sæti á lista og hafn­aði því. Einnig lýsti Ást­þór Jón Ragn­heið­ar­son, sem sóst hafði eftir 2.-3. sæti á lista flokks­ins, yfir óánægju með að vera boðið sæti mun neðar á lista.

Sam­fylk­ingin fékk 9,6 pró­sent atkvæða í Suð­ur­kjör­dæmi í síð­ustu kosn­ingum og einn þing­mann kjör­inn, sem áður segir.

Efstu sæti á lista Samfylkingar í Suðurkjördæmi

  1. Oddný G. Harð­ar­dóttir, Suð­ur­nesja­bær - Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, þing­flokks­for­maður, kenn­ari, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri í Garði og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra.
  2. Viktor Stefán Pálsson, Árborg - Sviðs­stjóri hjá Mat­væla­stofnun og for­maður Ung­menna­fé­lags Selfoss
  3. Guðný Birna Guð­munds­dóttir, Reykja­nes­bær - Hjúkr­un­ar­stjóri heima­hjúkr­unar hjá Reykja­vík­ur­borg, bæj­ar­full­trúi í Reykja­nesbæ, hjúkr­un­ar­fræð­ingur og MBA nemi
  4. Inger Erla Thomsen, Grímsnes - Stjórn­mála­fræði­nemi
  5. Friðjón Ein­ars­son, Reykja­nes­bær - Formaður bæj­ar­ráðs Reykja­nes­bæjar
  6. Anton Örn Egg­erts­son, Vest­manna­eyjar - Með­eig­andi í Pít­su­gerð­inni og yfir­kokkur hjá veit­inga­staðnum Gott
  7. Margrét Stur­laugs­dóttir, Reykja­nes­bær - Atvinnu­laus fyrr­ver­andi flug­freyja Icelandair
  8. Davíð Krist­jáns­son, Árborg - Vélvirki hjá Veitum

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár