Ársreikningar stjórnmálaflokka fást ekki afhentir í heild

Rík­is­end­ur­skoðun telur sig ekki mega afhenda árs­reikn­inga stjórn­mála­flokka vegna síð­asta árs í heild. Það var fyrsta árið í rekstri flokk­anna eftir að rík­is­fram­lag til þeirra var hækkað um 127 pró­sent.

Árs­reikn­ingar stjórn­mála­flokka sem skilað er inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar fást ekki afhentir í heild sinn, þrátt fyrir að lög um fjár­mál stjórn­mála­flokka, sem kveða á um að árs­reikn­ingar skuli birtir í heild sinni, hafi tekið gildi 1. jan­úar síð­ast­lið­inn. Ástæðan er sú að í nýju lög­unum er ákvæði sem til­tekur að birt­ing árs­reikn­inga í heild sinni komi ekki til fram­kvæmda fyrr en á næsta ári, eða 2020.

Því mun Rík­is­end­ur­skoðun ein­ungis birta útdrátt úr reikn­ing­unum vegna árs­ins 2018 líkt og verið hefur hingað til og stofn­unin telur sér ekki fært að afhenda Kjarn­anum árs­reikn­ing­ana í heild sinni.

Það er fyrsta árið í rekstri flokk­anna frá því að fram­lög til þeirra úr rík­is­sjóði voru hækkuð um 127 pró­sent, að til­lögu sex flokka sem sæti eiga á Alþingi. Framlög úr rík­is­sjóði til flokk­anna átta á þingi áttu að vera 286 millj­­­ónir króna í fyrra en urðu 648 millj­­­ónir króna eftir að sú ákvörðun var tekin. Einu flokk­­arnir sem skrif­uðu sig ekki á til­­lög­una voru Píratar og Flokkur fólks­ins.

[adspot]Þegar kosið verður næst, árið 2021, munu flokk­arnir átta sem náðu inn á þing í haust­kosn­ing­unum 2017 verða búnir að fá alls úthlutað rúm­lega 2,8 millj­örðum króna úr rík­is­sjóði vegna áranna 2018-2021 til að standa straum af starf­semi sinn­i.

Vantar fullnægjandi skil frá tveimur

Stjórn­mála­flokkar lands­ins eiga að skila inn árs­reikn­ingum sínum til Rík­is­end­ur­skoð­unar fyrir 1. októ­ber ár hvert. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá stofn­un­inni hafa allir flokkar sem eiga full­trúa á Alþingi skilað reikn­ingi nema Flokkur fólks­ins auk þess sem und­ir­rit­aður reikn­ingur hefur ekki borist frá Pírötum. Ekki er hægt að fá svör við því hvort að allir flokk­arnir sem hafa skilað gerðu það fyrir 1. októ­ber þar sem starfs­mað­ur­inn sem tekur við reikn­ing­unum er ekki við sem stendur.

Rík­is­end­ur­skoðun á svo að birta útdrátt úr þessum reikn­ingum sam­kvæmt gild­andi lögum um fjár­mál stjórn­mála­flokka. Í fyrra var búið að birta slíkan útdrátt fyrir fjóra flokka þann 15. októ­ber og útdrátt úr reikn­ingi allra flokka nema Sjálf­stæð­is­flokks þann 12. nóv­em­ber. Engin útdráttur hefur verið birtur enn sem komið er vegna árs­ins 2018 á heima­síðu Rík­is­end­ur­skoð­unar. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans til Rík­is­end­ur­skoð­unar segir að verið sé að skoða reikn­ing­ana og fara yfir lista lög­að­ila og ein­stak­linga sem styrktu flokk­ana á kosn­inga­ári. „Það vill þannig til að á sama tíma er verið að bæta aðgang okkar að árs­reikn­inga­skrá Rík­is­skatt­stjóra sem mun auð­velda það eft­ir­lit en hefur aðeins tafið birt­ingu í ár. Um leið og því verk­efni lýkur verða útdrættir árs­reikn­inga sem ekki er athuga­semd gerð við, eða þarfn­ast ekki frek­ari skýr­inga, birtur á vef okkar.“

Ný lög samþykkt í fyrra

Ný lög um fjár­mál stjórn­mála­flokka voru sam­þykkt á Alþingi í des­em­ber í fyrra. Á meðal breyt­inga sem þau lög fela í sér eru að stjórn­mála­flokkar mega nú taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum. Hámarks­fram­lagið var 400 þús­und krónur en var hækkað í 550 þús­und krónur.

Auk þess var sú fjár­hæð sem ein­stak­lingur þarf að gefa til að vera nafn­greindur í árs­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­bjóð­enda hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krónur.

[adspot]Hugtakið „tengdir aðilar“ var auk þess sam­ræmt, en Rík­is­end­ur­skoðun gerði í fyrra athuga­semdir við umfram­fram­lög aðila sem voru gefin í gegnum nokkur mis­mun­andi félög í eigu sömu aðila. Þar var um að ræða félög tengd Ísfé­lags­fjöl­skyld­unni í Vest­manna­eyjum, stærstu eig­enda Morg­un­blaðs­ins, og styrki þeirra til Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Alls gáfu þrjú félög tengd henni flokknum 900 þús­und krónur árið 2017, eða 500 þús­und krónum meira en hver ein­stakur aðila mátti gefa. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn end­ur­greiddi umfram­styrk­ina.

Þá var ákveðið að láta stjórn­mála­flokk­anna skila árs­reikn­ingum sínum til rík­is­end­ur­skoð­anda fyrir 1. nóv­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og nú er. Sú grund­vall­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­is­end­ur­skoðun mun hætta að birta tak­mark­aðar upp­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­kall­aðan útdrátt, og birtir þess í stað árs­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­ur­skoð­endum.

Þessi breyt­ing á hins vegar ekki að taka gildi fyrr en á næsta ári, þrátt fyrir að nýju lögin séu þegar komin í gagnið.

Telja sig ekki mega afhenda reikninga

Kjarninn óskaði eftir því að fá árs­reikn­inga þeirra stjórn­mála­flokka sem hafa þegar skilað inn reikn­ingum í heild sinni afhenta. Það væri í anda þeirra laga sem nú gilda. Rík­is­end­ur­skoðun synj­aði þeirri beiðni.

Synjunin er rök­studd meðal ann­ars með því að þótt að ný lög um fjár­mál stjórn­mála­flokka hafi öðl­ast gildi 1. jan­úar síð­ast­lið­inn þá komi fram í þeim að ákvæði sem varði breytt reikn­ings­skil og upp­lýs­inga­skyldu flokka ekki til fram­kvæmda fyrr en á næsta ári. Rík­is­end­ur­skoðun beri „að fara eftir þeim lögum við birt­ingu upp­lýs­ingar vegna rekstr­ar­árs­ins 2018 alveg óháð því hvort sam­þykktur hafi verið annar birt­ing­ar­máti sem taki til síð­ari reikn­ings­ára.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár