Skiptastjóri félags Björgólfs Thors og Róberts stefnir Glitni

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son ábyrgist greiðslu kostn­aðar í rift­un­ar­máli félags sem á engar eignir gegn Glitni HoldCo. Hann er annar af tveimur kröfu­höfum sem lýstu sam­tals 13,9 millj­örðum króna í búið. Hinn er stefndi í mál­inu, Glitnir HoldCo.

Skipta­stjóri þrota­bús Mainsee Holding ehf. hefur stefnt Glitni HoldCo, félagi utan um eft­ir­stand­andi eignir hins fallna banka Glitis og vill rifta greiðslu á skuld Mainsee Holding við Glitni HoldCo upp á tæp­lega 6,7 millj­ónir evra sem fram fór með yfir­töku Glitnis HoldCo á hendur félag­inu Salt Invest­ment, sem í dag heitir Bellmann ehf.

[links]Eigendur þess félags eru skráðir Róbert Wessman (87,5 pró­sent), Matthías H. Johann­es­sen (1,9 pró­sent) auk þess sem Bellmann á 10,6 pró­sent hlut í sjálfu sér.

Vegna þess­arar rift­unar vill þrota­búið að Glitnir HoldCo greiði sér tæp­lega 1,1 millj­arð króna auk vaxta og máls­kostn­aðar.

Gert er ráð fyrir að sex menn verði látnir bera vitni í mál­inu: Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, Róbert Wessman, Árna Harð­ar­son, Gunnar Eng­il­berts­son, Sig­ur­geir Guð­laugs­son og Matthías H. Johann­es­sen.

Björgólfur Thor borgar

Það sem er athygl­is­vert við stefn­una er að stærsti kröfu­hafi Mainsee Holding er Glitnir HoldCo. Af þeim 13,9 millj­arða kröfum sem lýst var í búið lýsti félagið 9,1 millj­örðum króna í það. Því er verið að stefna stærsta kröfu­haf­anum.

Einn annar kröfu­hafi er til staðar, Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, sem lýsti kröfu upp á 4,7 millj­arða króna. Í stefn­unni, sem Kjarninn hefur undir höndum, segir að á skipta­fundi þann 7. sept­em­ber 2018 hafi skipta­stjóri þrota­bús­ins, Sveinn Andri Sveins­son, upp­lýst að ekki væru til fjár­munir í búinu til að höfða rift­un­ar­mál vegna greiðslu á skuld Mainsee Holding við Glitni. Til að hægt yrði að ráð­ast í máls­höfðun yrði að koma til ábyrgðar frá ein­hverjum kröfu­hafa.

[adspot]Síðan segir orð­rétt: „Lögmaður Björg­ólfs Thors óskaði bókað að hann stað­festi fyrir hönd hans að hann ábyrgist greiðslu alls kostn­aðar skipta­stjóra (þóknun og útlagður kostn­aður) vegna þess rift­un­ar­máls sem skipta­stjóri hefði boðað að yrði höfðað.“

Deilur sem teygja sig langt aftur

Mainsee Holding var úrskurðað gjald­þrota 7. febr­úar síð­ast­lið­inn og Sveinn Andri skip­aður skipta­stjóri. Félagið var stofnað í júlí 2007 og var í jafnri eigu Novator Pharma, fé­lags Björg­ólfs Thor Björg­ólfs­son­ar, og Salt Pharma, sem var í eigu Ró­berts Wessman í gegn­um fé­lagið Salt Invest­ment. Þeir tveir voru sam­starfs­menn á árum áður en hafa tek­ist hart á, bæði opin­ber­lega og í dóm­sölum síð­ast­lið­inn ára­tug.

Mainsee Holding hélt utan um hlut þeirra í þýska lyfja­fyr­ir­tæk­inu Mainsee Pharma GmbH. Björgólfur Thor og Róbert Wessman geng­ust báðir undir per­sónu­legar ábyrgð á efndum láns sem félagið fékk hjá Glitni haustið 2007.

Samkvæmt stefn­unni tók Glitnir HoldCo yfir Mainsee Holding 4. nóv­em­ber 2009. „Var félagið síðar selt dótt­ur­fé­lagi bank­ans, GL Invest­ments ehf. Rúmu ári síðar seldi bank­inn þýsku dótt­ur­fé­lagi Actavis Group hf. lyf­sölu-rekstur og ýmsar eigur Mainsee Pharma GmbH en umsamið kaup­verð var 30 millj­ónir evra. Í sölu­samn­ingi var tekið fram að und­an­skilin væri við sölu eigna Mainsee Pharma GmbH krafa félags­ins á hendur Salt Invest­ments ehf.“

[adspot]Sú krafa staf­aði, sam­kvæmt stefn­unni, af milli­færslu fjár­muna upp á 4.450.000 evrur í eigu Mainsee Pharma GmbHH inn á reikn­ing Salt Invest­ment ehf.

Björgólfur Thor stefndi Róberti Wessman og við­skipta­fé­laga hans Árna Harð­ar­sonar vegna þessa máls og sak­aði þá um fjár­drátt. Hann vildi að þeir myndu greiða honum tvær millj­ónir evra vegna þess. Róbert og Árni höfn­uðu ætið mála­til­bún­að­inum og sögðu hann ekki eiga sér stoð í raun­veru­leik­anum. Þeir voru sýkn­aðir af þessum kröfum í fyrra í Hæsta­rétti. Í þeim dómi kom hins vegar fram að milli­færslan hefði verið ólög­mæt. Björgólfur Thor greiddi þann hluta Mainsee-skuld­ar­innar sem hann var í per­sónu­legri ábyrgð fyrir í skulda­upp­gjöri sínu sem fram fór árið 2010 og byggði krafa hans á því að end­ur­heimta það fé.

Ræddu sættir

Sumarið 2011 var gerð sam­runa­á­ætlun fyrir Mainsee Pharma GmbH og Mainsee Holding. Við það rann fyrr­nefnda félagið inn í Mainsee Holding, þar á meðal krafan sem það átti á hendur Salt Invest­ment. Samkvæmt sam­runa­efna­hags­reikn­ingi var skuldin þá rúm­lega einn millj­arður króna. Í síð­ari árs­reikn­ingum hafði þessi krafa hins vegar fallið út.

Í stefn­unni segir: „Aðspurður um það við skýrslu­töku hjá skipta­stjóra þann 12. febr­úar 2018...hvernig upp­gjör á kröfu Salt Invest­ment hefði farið fram, greindi Ingólfur Hauksson stjórn­ar­for­maður frá því að þann 15. febr­úar 2011 hefði verið gert sam­komu­lag milli Glitnis Banka hf (núna Glitnir HoldCo) og Mainsee GmbH þar sem Glitnir keypti kröf­una á hendur Salt Invest­ment miðað við stöðu kröf­unnar þá, á 6.668.309 evra. Kom þessi fjár­hæð til lækk­unar á kröfu Glitnis á hendur Mainsee GmbH[...]Einnig greindi Ingólfur frá því að ástæða þess að beðið var um skipti á stefn­anda var að félagið hafði enga starf­semi með höndum, tekjur voru engar og skuldir mjög miklar við Glitni, þ.e.a.s. eft­ir­stöðvar á þess­ari upp­haf­legu fjár­mögnun Glitnis Banka.“

Skipta­stjóri Mainsee Holding sendi Glitni HoldCo bréf 29. júní 2018 þar sem hann til­kynnti um að kaupum Glitnis HoldCo á kröfu á Salt Invest­ment væri rift og fór fram á að Glitnir HoldCo myndi greiða þrota­bú­inu tæp­lega 1,1 millj­arð króna auk vaxta. Glitnir HoldCo hafn­aði þessum mála­til­bún­aði og hélt því fram að hin fram­selda krafa hefði verið einskis virði.

Á skipta­fundi 7. sept­em­ber lét lög­maður Björg­ólfs Thors bóka að hann væri sam­mála þeirri afstöðu skipta­stjóra sem fram kæmi í bréfum hans til Glitnis HoldCo. „Lýsti hann því yfir að hann teldi fullt til­efni til þess að höfða rift­un­ar­mál vegna kaupa stefnda á kröfu stefn­anda á hend-ur Salt Invest­ments.“ Í kjöl­farið stað­festi lög­mað­ur­inn að Björgólfur Thor væri til­búin að ábyrgj­ast greiðslu alls kostn­aðar vegna rift­un­ar­máls­ins.

Lögmenn kröfu­haf­anna, Glitnis HoldCo og Björg­ólfs Thors, ræddu um sættir í mál­inu bæði fyrir og eftir skipta­fund­inn. Þær sættir náð­ust ekki og því ákvað þrota­búið að stefna Glitni HoldCo vegna máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár