Róbert Wessman sýknaður af kröfu Björgólfs Thors

Róbert Wessman, við­skipta­fé­lagi hans Árni Harð­ar­son og félagið Salt Invest­ments voru í dag sýknuð af skaða­bóta­kröfu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar í Hæsta­rétti. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafði einnig fellt sýknu­dóm í mál­inu. Björgólfur hafði kraf­ist um tveggja millj­óna evra í skaða­bætur í mál­inu.

Björgólfur Thor stefndi bæði Róbert­i og Árna fyrir að hafa á ólög­mætan hátt dregið að sér fjórar millj­ónir evra frá sér og nýtt í eigin þágu. Hann vildi að þeir greiði sér skaða­bætur vegna þessa. Róbert og Árni hafa ítrekað hafnað þessum ­mála­til­bún­aði, sagt stefn­una til­efn­is­lausa og að hún eigi sér enga stoð í raun­veru­leik­an­um. Málið var þing­fest í sum­arið 2015. 

Menn­irnir þrír hafa lengi eldað grátt silfur saman og átt í marg­vís­legur erjum árum saman. Í fyrra­vor var til að mynda hóp­mál­sókn á hendur Björgólfi Thor vísað frá dómi. Árni Harð­ar­son á um 60 pró­sent hluta­bréf­anna sem eru á bak­við rann­sókn­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár