Hópmálsókninni gegn Björgólfi Thor vísað frá en pissukeppnin heldur áfram

Hæsti­réttur hefur vísað frá hóp­mál­sókn fyrrum hlut­hafa Lands­bank­ans gegn Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni. Helsti fjár­mögn­un­ar­að­ili mál­sókn­ar­innar var félag í eigu Árna Harð­ar­sonar, nán­asta sam­starfs­manns Róberts Wessmann.

Hæsti­réttur Íslands vís­aði í gær frá hóp­mál­sókn á hendur Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni, fyrrum aðal­eig­anda Lands­banka Íslands og rík­asta manns Íslands, frá. Hóp­mál­sóknin, sem höfðuð var af 235 aðilum sem áttu 5,27 pró­sent af útgefnum hluta­bréfum í Lands­bank­anum og þing­fest var í lok októ­ber í fyrra, snérist um að fá við­ur­kennda skaða­bóta­skyldu Björg­ólfs Thors vegna tjóns sem félags­menn urðu fyrir vegna hluta­bréfa­eignar sinnar. Mál­sóknin er sú fyrsta sinnar teg­undar á Íslandi er lýtur að dóms­málum sem tengj­ast banka­hrun­inu. Aldrei áður höfðu fyrrum hlut­hafar í íslenskum banka tekið sig saman og stefnt fyrrum aðal­eig­endana hans fyrir að hafa blekkt sig með sak­næmum hætti til að eiga í bank­anum. Og krefj­ast skaða­bóta fyrir.

Björgólfur Thor neit­aði ávallt sök og nú hafa íslenskir dóm­stólar kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að málið sé ekki tækt til fyr­ir­töku eins og það var fram­sett. Mál­sókn­ar­fé­lagið gæti þó haldið mál­inu áfram með nýrri stefnu sem gerð væri í sam­ræmi við leið­bein­ingar Hæsta­réttar.

Í færslu á heima­síðu sinni sem birt­ist í gær sagði Björgólfur Thor eft­ir­far­andi um málið: „Þessi ófræg­ing­ar­leið­angur, undir stjórn Árna Harð­ar­sonar og Róberts Wessman, hefur reynst þeim köppum lítil frægð­ar­för. Árni og Róbert hafa lík­lega þegar varið um 100 millj­ónum króna í þennan raka­lausa og rugl­ings­lega mála­rekstur. Þeir fengu hóp fyrrum hlut­hafa Lands­bank­ans til að leggja nafn sitt við feigð­ar­flanið, en sjálfir fara þeir fyrir 2/3 hlutum mál­sókn­ar­fé­lags­ins. Þá fékk hóp­mál­sókn­ar­fé­lagið drjúgan tíma í fjöl­miðlum til að rekja í smá­at­riðum allan mála­til­búnað sinn, sem nú hefur fengið fall­ein­kunn hjá Hæsta­rétti.“

Áralangar deilur Róberts og Árna við Björgólf Thor

En af hverju nefnir Björgólfur Thor þessa tvo menn sér­stak­lega? Tveimur dögum eftir að málið gegn honum var þing­fest í októ­ber í fyrra greindi Kjarninn frá því að félag í eigu Árna Harð­ar­son­ar, stjórn­ar­manns og lög­manns lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Alvogen, ætti um 60 pró­sent þeirra hluta­bréfa sem væru að baki hóp­mál­sókn­inni. Árni á hluta­bréf­in, sem hann keypti af is­lenskum líf­eyr­is­sjóðum í vik­unni á undan, í gegnum félag sem heitir Urriða­hæð ehf. Sam­tals greiddi Árni á milli 25 til 30 millj­ónir króna fyr­ir­ hluta­bréf­in, sem eru verð­laus nema að til hefði tek­ist að fá við­ur­kennt fyr­ir­ ­dóm­stólum að Björgólfur Thor ætti að greiða fyrrum hlut­höfum Lands­bank­ans skaða­bæt­ur.

Til við­bótar þurti Urrið­hæð að greiða sinn hluta máls­kostn­að­ar. Hann gat auð­veld­lega hlaupið á tugum millj­óna króna ef málið hefði verið dóm­tekið. Því er ljóst að Árni lagði í umtals­verðan kostnað til að taka þátt í hóp­mál­sókn­inni og styrkja grund­völl hennar.

Árni er nán­asti sam­starfs­maður Róberts Wessm­ans, for­stjóra Alvogen. Þeir tveir hafa átt í miklum og opin­berum úti­stöðum við Björgólf Thor árum saman. Bæði Róbert og Árni störf­uðu áður­ ­sem stjórn­endur hjá Act­a­vis, á sama tíma og Björgólfur Thor var aðal­eig­and­i ­fé­lags­ins. Í ágúst 2008 lét Róbert af ­störfum hjá lyfja­fyr­ir­tæk­inu, en hann hafði þá verið for­stjóri þess í níu ár. Björgólfur Thor segir að Róbert hafi verið rek­inn en Róbert segir það vera rangt. Hann hafi ein­fald­lega vilj­að hætta.

Ásökuðu hvorn annan um að borga ekki skuldir sínar

Síðan að þetta átti sér stað hafa verið hnúta­köst á milli­ ­mann­anna í fjöl­miðlum og fyrir dóm­stól­um. Björgólfur Thor stefndi bæði Róbert­i og Árna fyrir að hafa á ólög­mætan hátt dregið að sér fjórar millj­ónir evra frá sér og nýtt í eigin þágu. Hann vill að þeir greiði sér skaða­bætur vegna þessa. Róbert og Árni hafa ítrekað hafnað þessum ­mála­til­bún­aði, sagt stefn­una til­efn­is­lausa og að hún eigi sér enga stoð í raun­veru­leik­an­um.

Á meðal ann­arra sem tóku þátt í mál­sókn­inni, sem hafði verið í und­ir­bún­ingi frá árinu 2011, voru Karen Mil­len, Krist­ján Lofts­son í Hval, Bolli Héð­ins­son hag­fræð­ing­ur, Svana Helen Björns­dótt­ir, fyrr­ver­andi for­maður Sam­taka iðn­að­ar­ins, Líf­eyr­is­sjóður verk­fræð­inga, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna íslenskra sveit­ar­fé­laga, líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Stapi og Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Á meðal þeirra sem stóðu að und­ir­bún­ingnum var lög­mað­ur­inn Ólafur Krist­ins­son.

Í lok októ­ber setti Björgólfur Thor síðan færslu á heima­síðu sína þar sem hann sagði Róbert og Árna ekki hika við að leggja í tug­millj­óna króna kostnað til að reyna að klekkja á sér. „Róbert hefur í digra sjóði að sækja, enda gætti hann þess vand­lega að koma auð sínum und­an­ ­kröfu­höf­um, í stað þess að gera upp millj­arða skuldir sínar við íslensku ­bank­ana eftir hrun. Auð­vitað gera þeir sér engar vonir um bætur úr minni hend­i, enda eina mark­miðið að sverta mann­orð mitt.“

Róbert svarði með yfir­lýs­ingu þar sem sagði að Björgólfur Thor ætti að „skamm­ast sín“ vegna hans þáttar í efna­hags­hruni lands­ins. Þá sé það „hjá­kát­legt og bein­línis vand­ræða­legt“ þegar hann heldur því fram að aðrir hafi ekki borgað skuldir sínar til baka, í ljósi þess að hann hefur aðeins borgað „lítið brot“ sinna skulda til baka sjálf­ur. Þetta kemur fram í harð­orðri yfir­lýs­ingu frá Róberti.

Einstakt mál

Kjarn­inn hefur stefn­una í mál­inu á hendur Björgólfi Thor, sem er 50 blað­síður að lengd, undir hönd­um. Hana má les­a hér. Alls tóku 235 aðilar þátt í mál­sókn­inni. Þeir eiga sam­tals 5,67 pró­sent af heild­ar­hlutafé í Lands­bank­ans, sem féll haustið 2008.

Mál­sókn­ar­fé­lagið krafð­ist þess að skaða­bóta­skylda Björg­ólfs Thors á því tjóni sem aðilar að félag­inu urðu fyr­ir­ þegar hluta­bréf í Lands­bank­anum urðu verð­laus við fall hans 7. októ­ber 2008. Í stefn­unni kom fram að félags­menn byggi mál­sókn­ina á því „að þeir hefðu ekki verið hlut­hafar í Lands­banka Íslands hf. og þar með ekki orðið fyrir tjóni, ef ekki hafði komið til hinnar sak­næmu og ólög­mætu hátt­semi stefnda [Björg­ólfs T­hor­s]“.

Það sem mál­sókn­ar­fé­lag­ið taldi að Björgólfur Thor hafi gert, og hafi ollið þeim skaða, er þrennt. Í fyrsta lagi hafi ekki verið veittar upp­lýs­ingar um lán­veit­ingar Lands­banka Ís­lands til Björg­ólfs Thors og tengdra aðila í árs­reikn­ingum bank­ans fyr­ir­ ­rekstr­ar­árið 2005 og í öllum upp­gjörum eftir það fram að hrun­i.

Í öðru lagi hafi Björgólfur Thor van­rækt á tíma­bil­inu 30. júní 2006 til 7. októ­ber 2008, að „upp­lýsa opin­ber­lega um að Sam­son eign­ar­halds­fé­lag ehf. [Í aðal­eigu Björg­ólfs Thors og föður hans] færi með yfir­ráð yfir Lands­banka Ís­lands hf., og teld­ist því móð­ur­fé­lag bank­ans“.

Í þriðja lagi taldi félagið að Björgólfur Thor hafi van­rækt að „sjá til þess að ­Sam­son eign­ar­halds­fé­lag ehf. gerði öðrum hlut­höfum Lands­banka Íslands hf. ­yf­ir­tökutil­boð hinn 30. júní 2006, eða síð­ar, í sam­ræmi við ákvæði laga um verð­bréfa­við­skipt­i“.

Björgólfur Thor fór fram á að mál­inu yrði vísað frá og hér­aðs­dómur Reykja­víkur tók undir það í mars 2016. Hæsti­réttur stað­festi þann úrskurð í gær.

Pissukeppninni ekki lokið

Þótt dóms­mál­inu sé lokið þá er pissu­keppn­inni milli Björg­ólfs Thors og Róberts og Árna þó ekki á enda runnin. Greint var frá því í Við­skipta­Mogg­anum í jan­úar síð­ast­liðnum að ­Björgólfur Thor og við­skipta­fé­lagar hans hjá Novator séu að skella sér í sam­heita­lyfja­brans­ann á ný.

Þeir hafa þegar stofnað fyr­ir­tækið Xantis Pharma, ­sem er með höf­uð­stöðvar í Zug í Sviss. Það er sama borg og hýsti höf­uð­stöðv­ar Act­a­vis, sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins sem Björgólfur Thor réð yfir forðum daga, hér áður fyrr. Act­a­vis hefur síðan gengið í gegnum fjöl­margar sam­ein­ingar og heitir nú All­erg­an. Um mitt ár í fyrra var hlutur Novator í All­ergan kom­inn undir eitt pró­sent, en gengi bréfa í félag­inu hefur fimm­fald­ast á tæpum fjórum ár­um.

Björgólfur Thor er aftur orð­inn á meðal rík­ustu manna heims­, sam­kvæmt lista For­bes, en auð­æfi hans eru metin á 1,6 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 208 millj­örðum króna. Björgólfur Thor er númer 1.121 á lista For­bes yfir rík­asta fólk heims­ins. Hann fór hæst í 249. sæti árið 2007. Eignir Björg­ólfs Thors eru meðal ann­ars í fjar­skipta­fé­lög­unum Play í Pól­landi og WOM í Chile, auk þess að eiga eign­ar­hluti í félög­unum Xantis Pharma og All­erg­an líkt og áður sagði.
Björgólfur Thor var á barmi gjald­þrots eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins, og í per­sónu­legum ábyrgðum fyrir tug­millj­arða­skuld­um, en tókst að semja við kröfu­hafa sína, halda eign­ar­hlutum í stórum fyr­ir­tækj­um, meðal ann­ars Act­a­vis, sem síðan hefur sam­ein­ast öðrum félögum og stækk­að, og þannig ná vopnum sínum á nýjan leik.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár