Framleiðendur þurrmjólkur herja enn á óléttar konur og foreldra

Frá því að Nestlé-hneykslið var afhjúpað fyrir meira en fjórum ára­tugum hefur sala á þurr­mjólk meira en tvö­fald­ast í heim­inum en brjósta­gjöf aðeins auk­ist lít­il­lega.

UNICEF og WHO telja áróður þurrmjólkurframleiðenda hafa áhrif á lágt hlutfall brjóstagjafar í heiminum.
UNICEF og WHO telja áróður þurr­mjólk­ur­fram­leið­enda hafa áhrif á lágt hlut­fall brjósta­gjafar í heim­inum. Mynd: UNICEF

Her­skárri mark­aðs­herð­ferð fram­leið­enda þurr­mjólkur og ann­arra vara sem ætlað er að koma í stað brjósta­mjólkur er enn beint að nær öllum for­eldrum og óléttum konum í Kína, Víetnam og Bret­landi þrátt fyrir að sér­stakar reglur hafi verið settar á fyrir fjórum ára­tugum í kjöl­far mik­ils hneyksl­is­máls. Þetta hefur ný rann­sókn leitt í ljós.

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin og UNICEF segja að mark­aðs­setn­ingin, sem m.a. felst í ókeypis prufum af „barna­mjólk“ og sér­stökum „mömmu­hópum“ á net­inu, geti ýtt konum frá því að gefa börnum sínum brjóst.

Her­ferðir fyr­ir­tækj­anna bein­ast einnig að heil­brigð­is­starfs­fólki. Því eru boðnir styrkir til rann­sókna og jafn­vel pró­sentur af sölu á þurr­mjólk­inni. Allt þetta er bannað sam­kvæmt alþjóð­legum reglum sem settar voru fyrir fjórum ára­tugum sem áttu að koma böndum á mark­aðs­setn­ingu þurr­mjólkur fyrir ung­börn.

[adspot]

WHO mælir með því að mæður gefi börnum sínum fyrst og fremst brjósta­mjólk og ein­göngu ef þess ger­ist nokkur kostur fyrstu sex mán­uði ævi þeirra. Stofn­unin segir að aðeins um 44 pró­sent ung­barna fái nær­ingu sína ein­göngu úr brjósta­mjólk eins og staðan er í dag. Í stórri rann­sókn sem gerð var árið 2016 var nið­ur­staðan sú að lífum yfir 800 þús­und ung­barna mætti bjarga árlega ef hægt yrði að hækka hlut­fall þeirra sem fengju brjósta­mjólk í frum­bernsku.

Barnamorðinginn

Alþjóð­legar reglur um mark­aðs­setn­ingu stað­geng­ilsvara brjósta­mjólkur fyrir ung­börn voru settar af WHO árið 1981. Þá höfðu komið fram ásak­anir á hendur fyr­ir­tæk­inu Nestlé fyrir að letja mæður til að hafa börn sín á brjósti og kaupa þess í stað þurr­mjólk. Þessari her­ferð Nestlé var sér­stak­lega beint að konum í fátæk­ari ríkjum.

Upp komst um aðferðir Nestlé á fyrstu árum átt­unda ára­tug­ar­ins og breytti skýrsla Mike Muller, verk­fræð­ings og sér­fræð­ings í mál­efnum þró­un­ar­landa, sem kom út árið 1974, miklu. Skýrslan hét Barna­morð­ing­inn (e. Baby Killer) og byggði á rann­sókn á því hvernig stór­fyr­ir­tæki beindi spjótum sínum að fátækum konum með þeim afleið­ingum að brjósta­gjöf dróst saman sem aftur leiddi til þess að ung­börn lét­ust. „Börn í þriðja heim­inum eru að deyja vegna þess að mæður þeirra gefa þeim pela með vest­rænni þurr­mjólk,“ sagði í inn­gangi skýrsl­unnar. „Mörg þeirra sem lifa af eru vannærð og ber­skjölduð fyrir sjúk­dómum svo þau þroskast ekki eðli­lega.“

Sölustúlkur í hjúkrunarbúningum

Muller skrif­aði að trixin við söl­una væru marg­vís­leg. Sölu­stúlkur stæðu á götu­hornum í þorpum, klæddar í föt hjúkr­un­ar­kvenna, og gæfu sýn­is­horn til kvenna. Í þessum heims­hluta væri hrein­læti oft ábóta­vant svo þrif á pelum, túttum og öðru sem fylgir pela­gjöf væri ekki nægj­an­legt. Hann tók hins vegar fram að það væri ekki bundið við fátæk ríki að börn sýkt­ust við pela­gjöf. Það var á þeim árum sem skýrslan var skrifuð, t.d. einnig útbreitt vanda­mál í Bret­landi.

Afhjúpun Mullers og ann­arra sem til þekktu í Afríku varð hita­mál á Vest­ur­löndum enda dæmi um hvernig stór­fyr­ir­tæki nýttu sér neyð fólks á kostnað barns­lífa. Sam­an­tekt á mark­aðs­her­ferð Nestlé, sem fyr­ir­tækið kall­aði „Babies Mean Business“, var lekið. Í henni mátti sjá svart á hvítu að mark­miðið var að koma mæðrum í fátækum ríkjum „á bragðið“ með að nota þurr­mjólk. Fyr­ir­tækið bjó til eft­ir­spurn í löndum þar sem hún hafði ekki verið til staðar og sann­færði fólk um að varan væri ómissandi.

Og almenn­ingur víða um heim brást harka­lega við með umfangs­mik­illi snið­göngu vara frá Nestlé.

En hvað með vatnið?

Nestlé brást í fyrstu við með því að benda á að vanda­málið væri skortur á aðgengi að hreinu vatni í Afríku. Gagn­rýnendur fyr­ir­tæk­is­ins ættu nú að ein­beita sér frekar að því að bæta úr því. Fyr­ir­tækið höfð­aði mál, ekki bein­línis á hendur War on Wants, sam­tök­unum sem Muller hafði unnið skýrsl­una fyrir, heldur var það þýskur þýð­andi sem var lög­sóttur. Sá hafði þýtt skýrslu Mullers yfir á sænsku undir fyr­ir­sögn­inni „Nestlé drepur börn“. Nestlé hafði betur í mála­ferlunum en dóm­ar­inn hvatti fyr­ir­tækið til að breyta mark­aðs­her­ferðum sínum í grund­vall­ar­at­riðum. Mörgum þótti það „varn­ar­sigur“ gagn­rýnenda fyr­ir­tæk­is­ins.

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin brást við með því að setja hinar alþjóð­legu mark­aðs­reglur á. Þær fela m.a. í sér að ekki má kynna „barna­mjólk“ á sjúkra­húsum, í búðum eða gagn­vart almenn­ingi. Ekki má heldur gefa sýn­is­horn og ekki má gefa heil­brigð­is­starf­sólki eða mæðrum gjafir í tengslum við mark­aðs­setn­ing­una. Þá er einnig bannað að birta mis­vísandi upp­lýs­ingar um vör­urnar, m.a. var fram­leið­endum gert skylt að upp­lýsa hver kostn­að­ur­inn í heild við að gefa börnum pela væri – ekki aðeins hvað „mjólkin“ þeirra kost­aði.

Þörf á endurskoðun

Nú telja margir tíma til kom­inn að end­ur­bæta regl­urnar, sér­stak­lega í ljósi þess að þær virð­ast ekki lengur vera að hafa til­ætluð áhrif og að mark­aðs­setn­ing „barna­mjólkur“ auk­ist mikið. Nestlé er enn sakað af ýmsum mann­úð­ar­sam­tökum að „beygja“ og „sveigja“ regl­urnar.

Þurr­mjólk og tóbak eru einu fram­leiðslu­vörur heims sem um gilda alþjóð­legar reglur þegar kemur að mark­aðs­setn­ingu. Hins vegar hafa aðeins 25 ríki heims tekið reglur WHO um „barna­mjólk­ina“ upp og á þeim fjórum ára­tugum sem liðnir eru síðan þær voru fyrst settar hefur sala á „barna­mjólk­ur­vörum“ meira en tvö­fald­ast. Á sama tíma hefur brjósta­gjöf aðeins auk­ist lít­il­lega.

Höfundar nýju rann­sókn­ar­innar á mark­aðs­setn­ingu „barna­mjólkur“ segj­ast gera sér grein fyrir mik­il­vægi slíkra vara fyrir konur sem geta ekki eða vilja ekki gefa börnum sínum brjóst af ein­hverjum ástæðum. Hins vegar er það þeirra nið­ur­staða að lágt hlut­fall brjósta­gjafar almennt í heim­inum sé til­komið vegna hinnar her­skáu mark­aðs­her­ferða fram­leið­enda barna­mjólkur.

„Rangar og mis­vísandi upp­lýsngar um þurr­mjólk standa í vegi fyrir auk­inni brjósta­gjöf,“ segir Catherine Russell, fram­kvæmda­stjóri UNICEF um rann­sókn­ina sem gerð var að und­ir­lagi þeirra og WHO.

Nú eru aug­lýs­ing­arnar að mestu birtar á net­inu, á sam­fé­lags­miðlum, og erfitt hefur reynst að koma böndum á þær.

[adspot]

Í frétta­skýr­ingu Reuters-frétta­stof­unnar um málið er vitnað til yfir­lýs­ingar alþjóða­sam­taka fram­leið­enda „sér­staks matar­æðis“ (Special Dietary Foods Industries) þar sem þau segj­ast fara í einu og öllu að lögum og reglu­gerðum í þeim löndum sem þau starfa.

WHO vill ekki nafn­greina sér­stök fyr­ir­tæki í þurr­mjólkur­iðn­að­inum og gerir það ekki í skýrslu sinni. Stofn­unin segir hins vegar að fyr­ir­tækin beiti öll svip­uðum aðferðum.

Reuters leit­aði einnig svara hjá Nestlé. Þar á bæ kom fram að fyr­ir­tækið færi eftir lögum og reglum. Fyr­ir­tækið seg­ist ekki kynna þurr­mjólk­ur­vörur sem ætl­aðar eru börnum 0-12 mán­aða í 163 löndum og að til standi að hætta að kynna vörur ætl­aðar 0-6 mán­aða alls staðar í heim­inum fyrir árs­lok.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár