Björn Leví tekur upp hanskann fyrir Birgi

Þing­maður Pírata segir að auð­vitað eigi Birgir Þór­ar­ins­son ekki að þurfa að segja sig úr Mið­flokknum. Ábyrgðin á öllu þessu ves­eni liggi hjá „ger­end­unum“ í þessu máli. Þó hafi ákvörðun Birgis að ein­hverju leyti verið sjálf­hverf.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata segir í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag að hann ætli aðeins að taka upp hansk­ann fyrir Birgi Þór­ar­ins­son þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins varð­andi ákvörðun hans að yfir­gefa Mið­flokk­inn ein­ungis tveimur vikum eftir kosn­ingar og ganga í raðir Sjálf­stæð­is­manna. „Rosalega lítið samt,“ skrifar Björn Leví.

Þing­menn­irnir unnu saman í fjár­laga­nefnd á síð­asta kjör­tíma­bili og seg­ist Björn Leví hafa spjallað við Birgi um hin ýmsu mál – og auð­vitað verið efn­is­lega ósam­mála honum í flestum málum. Þó ætli hann að taka „aðeins upp hansk­ann fyrir hann“.

Birgir hefur greint frá því opin­ber­lega eftir að hann hætti í Mið­flokknum að vegna þess að hann gagn­rýndi sam­flokks­menn sína opin­ber­lega vegna Klaust­ur­máls­ins hefði hann orðið að vanda­mál­i í flokkn­um. „Ég var tek­inn fyrir á þing­flokks­fund­um. Það eru haldnir sér­stakir þing­flokks­fundir þar sem ég er eina umræðu­efnið og gagn­rýndur mjög harka­lega fyrir að hafa gagn­rýnt þá. Það eru tveir fundir haldnir þar sem ég er eini dag­skrár­lið­ur­inn. Þegar það á að halda þriðja fund­inn að þá sagði ég að nú væri nóg komið og að ég væri far­inn ef þessi fundur yrði hald­inn. Þá var hann ekki hald­inn. Ég var á þeim tíma­punkti reiðu­bú­inn að fara,“ sagði Birgir meðal ann­ars á Rás 2 í morgun.

Sjálfhverf ákvörðun að halda þessu frá kjósendum og hjálpa Miðflokknum að ná þingsætum

Björn Leví segir að auð­vitað hefði Birgir átt að hætta í Mið­flokknum á síð­asta kjör­tíma­bili og hafna með því þessum „fárán­lega mál­flutn­ingi klaust­urs­manna og þessum ofsóknum sem hann lýsir hér að hann hafi verið beittur“.

[links]Jafn­framt hafi Birgir rétt á því að hætta í Mið­flokknum núna og eigi til­efnið alveg jafn mikið við og áður. „Það safn­ast þegar saman kemur,“ skrifar hann.

Björn Leví telur að ef Birgir sé að segja satt varð­andi það að hann og vara­þing­maður Mið­flokks­ins, Erna Bjarna­dóttir, hafi verið búin að leggja sig „veru­lega fram í kosn­inga­bar­átt­unni“ og hefðu þau ekki haft góða fram­bjóð­endur og aðstoð­ar­fólk í Suð­ur­kjör­dæmi og náð þeim árangri sem þar náð­ist væri Birgir ekki viss um að flokk­ur­inn hefði náð inn á þing, þá sé önnur leið til þess að túlka þetta.

„Í stað þess að segja bara nei, hingað og ekki lengra þá tekur hann sjálf­hverfa ákvörðun um að halda þessu frá kjós­endum og hjálpa Mið­flokknum að ná þing­sætum. Það þurfti ekki nema um það bil 1.300 færri atkvæði á lands­vísu til þess að flokk­ur­inn væri undir 5 pró­sent þrösk­uldnum (eins fárán­legur og sá þrösk­uldur er samt). Það mun­aði ekki nema 7 atkvæðum að Birgir væri ekki kjör­dæma­kjör­inn, sem dæmi,“ skrifar Björn Leví.

Hann segir að Birgir hafi haft „hvert tæki­færið á fætur öðru til þess að stíga út úr þess­ari þrauta­göngu“.

Hefði verið skiljanlegra að stíga frá fyrr – en miklu skiljanlegra ef hinir í flokknum hefðu farið

Björn Leví segir að það að stíga frá loks­ins núna sé alveg skilj­an­legt – en það væri margt annað mun skilj­an­legra í þessu ef hann hefði stigið frá fyrr og miklu skilj­an­legra ef hinir í Mið­flokknum hefðu frekar stigið frá.

„Þarna er sem sagt hanskinn sem ég tek upp í þessu máli. Auðvitað er það ekki Birgir sem á að þurfa að segja sig frá mið­flokknum og kjós­endum hans í Suð­ur­kjör­dæmi, ábyrgðin á öllu þessu ves­eni liggur hjá _ger­end­unum_ í þessu máli.

Hér með hef ég lokið því að halda á ein­hverjum hanska og hendi honum bara aftur í gólfið því þó réttur fólks til þess að haga sér svona er alveg skýr þá þarf fólk líka að axla ábyrgð á verkum sínum,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár