Birgir segir forystu Miðflokksins hafa unnið markvisst gegn sér í lengri tíma

Birgir Þór­ar­ins­son segir að veist hafi verið að heim­ili sínu eftir að hann skipti um flokk. Hann full­yrðir að lyk­il­fólk í Mið­flokknum hafi unnið gegn honum skipu­lega frá ára­mótum og ástæðan sé sú að hann hafi gagn­rýnt fram­ferði þeirra í Klaust­urs­mál­inu.

Birgir Þórarinsson, fyrrverandi þingmaður Miðflokksins.
Birgir Þór­ar­ins­son, fyrr­ver­andi þing­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Birgir Þór­ar­ins­son, sem yfir­gaf Mið­flokk­inn í lok síð­ustu helgi og gekk til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, segir að fimm dögum fyrir kjör­dag hafi borist tölvu­póstur frá yfir­stjórn Mið­flokks­ins sem í stóð að það væri hæpið að fram­boðs­listi flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, sem Birgir leiddi, stæð­ist lög flokks­ins. Það hafi verið ótrú­legar kveðjur frá yfir­stjórn flokks­ins í síð­ustu vik­unni fyrir kjör­dag.

Birgir segir að hann og sam­starfs­fólk hans í kjör­dæm­inu hafi verið sár og svekkt yfir þessu en að það hafi ekki verið aftur snúið á þessum tíma­punkti, enda nokkrir dagar í kosn­ingar. Þegar talið hafi verið upp úr kjör­köss­unum 25. sept­em­ber hafi nið­ur­staðan verið, að mati Birgis, afhroð fyrir Mið­flokk­inn. „Ég sé þá fram á það að fara að vinna með tveimur mönnum, annar þeirra hefur mark­visst unnið gegn mér og að fá það í gegn að ég yrði ekki odd­viti. Hinn horfði á með fálæti.“ Sá fyrri sem Birgir talar um er Bergþór Ólason, odd­viti Mið­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, og sá síð­ari Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður flokks­ins.

Þetta kom fram í við­tali við Birgi í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun.

Hefði mögulega átt að geyma það að skipta um flokk

Birgir hefur verið harð­lega gagn­rýndur fyrir að hafa boðið sig fram á fölskum for­sendum fyrir Mið­flokk­inn, enda sagði hann sig úr flokknum innan við tveimur vikum eftir að hann var end­ur­kjör­inn á þing fyrir hann og áður en kjör­bréf höfðu verið afhent.

Hann við­ur­kenndi í við­tal­inu að ef hann líti í bak­sýn­is­speg­il­inn þá hefði hann mögu­lega átt að geyma það í ein­hvern tíma að skipta um flokk. „Það er kannski eðli­legt að menn telji að ég sé að svíkja fólk með þess­ari ákvörðun. En ég vil þó segja það að ég veit að margir kusu mig per­sónu­lega. Og við þá sem kusu Mið­flokk­inn vil ég segja að við skulum hafa það í huga að flokk­ur­inn beið afhroð í þessum kosn­ingum og mun ekki ná neinum málum fram.“ Það sé þó alrangt að vista­skiptin hafi verið fyr­ir­fram skipu­lögð.

Birgir seg­ist ekki viss um að Mið­flokk­ur­inn hefði náð inn á þing ef það væri ekki fyrir þann árangur sem hann, Erna Bjarna­dóttir og þeir sem unnu með þeim náðu í Suð­ur­kjör­dæmi.

Segir að veist hafi verið að heimili hans

Erna til­kynnti í Bítinu á Bylgj­unni í morgun að hún myndi ekki fylgi Birgi ekki yfir í Sjálf­stæð­is­flokk­inn heldur ætli að starfa áfram í Mið­flokknum.

[adspot]Í við­tal­inu við Birgi í morgun sagði hann að Erna hefði upp­haf­lega tjáð sér að hún ætl­aði að fylgja honum yfir. „En hún hefur greini­lega skipt um skoðun.“

Hann telur að hörð umræða hafi haft mikil áhrif á hana, líkt og hún hefur haft á hann sjálfan. „Það hefur til dæmis verið veist að mínu heim­ili í þess­ari umræðu, og menn eru farnir að seil­ast ansi langt. DV hefur verið að birta myndir af mínu heim­ili og gera lítið úr þeim og tengja þess­ari umræðu. Þannig að fjöl­skyldan hefur heldur ekki fengið frið þannig að mér finnst ​fjöl­miðlar vera komnir ansi langt í þess­ari gagn­rýni.

Klausturmálið ástæðan

Birgir birti grein í Morg­un­blað­inu á laug­ar­dag þar sem hann greindi frá ákvörðun sinni um að skipta um flokk og ástæðum þess. Þar sagði hann að málið ætti rætur sínar að rekja aftur til Klaust­ur­máls­ins.

Birgir fór ítar­lega yfir þá atburða­rás í við­tal­inu í morgun, en hann sagði þá opin­ber­lega að fram­­ferði sex­­menn­ing­anna sem voru á Klaustri 20. nóv­­em­ber væri and­­stætt krist­i­­legum gild­­um.

Í þeim hópi voru fjórir þáver­andi þing­menn Mið­flokks­ins og tveir sem síðar gengu til liðs við flokk­inn úr Flokki fólks­ins. Þeir þing­­menn Mið­flokks­ins sem tóku þátt í sam­­sæt­inu á Klaustri þyrftu, að mati Birg­is, að gera það upp við sig hvort þeir segðu af sér eða ekki. Þeir sögðu ekki af sér.

Fyr­ir­ferða­mestir á Klaustri voru Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveins­son, sem töl­uðu með klám­fengnum og niðr­andi hætti um meðal ann­ars aðra þing­menn og einn ráð­herra.

Með hnút í maganum fyrir þingflokksfundi

[links]Birgir segir að vegna þess að hann gagn­rýndi sam­flokks­menn sína opin­ber­lega hefði hann orðið að vanda­mál­inu í flokknum. „Ég var tek­inn fyrir á þing­flokks­fundum. Það eru haldnir sér­stakir þing­flokks­fundir þar sem ég er eina umræðu­efnið og gagn­rýndur mjög harka­lega fyrir að hafa gagn­rýnt þá. Það eru tveir fundir haldnir þar sem ég er eini dag­skrár­lið­ur­inn. Þegar það á að halda þriðja fund­inn að þá sagði ég að nú væri nóg komið og að ég væri far­inn ef þessi fundur yrði hald­inn. Þá var hann ekki hald­inn. Ég var á þeim tíma­punkti reiðu­bú­inn að fara.“

Birgir segir að þess hafi verið kraf­ist að hann myndi skrifa opin­ber­lega afsök­un­ar­beiðni til þeirra fyrir að hafa gagn­rýnt þá. Þið sjáið hversu harka­leg umræða þetta var. „Ég var vanda­málið, ekki þeir.“

Í kjöl­farið hafi hann verið með hnút í mag­anum í margar vikur þegar hann átti að mæta á þing­flokks­fundi. Síðan hafi tím­inn liðið og þegar leið að kosn­ingum 2021 hafi komið í ljós að þetta mál væri ekki gleymt. Koma ætti í veg fyrir að Birgir yrði odd­viti í Suð­ur­kjör­dæmi. „Það var mark­visst, alveg frá ára­mótum, reynt að vinna mark­visst þannig að ég yrði ekki í for­svari fyrir flokk­inn.“‘

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár