Brotthvarf Birgis „fyrst og fremst áfall“

Stjórn Mið­flokks­ins hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna brott­hvarfs Birgis Þór­ar­ins­sonar úr flokknum en hann hefur nú gengið til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. „Ákvörðun þing­manns­ins mikil von­brigði,“ segir m.a. í yfir­lýs­ing­unni.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn Mið­flokks­ins harmar þá ákvörðun Birgis Þór­ar­ins­sonar að yfir­gefa þing­flokk Mið­flokks­ins nú strax að loknum kosn­ingum og áður en þing hefur verið sett.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu stjórnar Mið­flokks­ins sem send var á fjöl­miðla í dag.

Birgir var kjör­inn á þing fyrir Mið­flokk­inn fyrir tveimur vikum í Suð­ur­kjör­dæmi en hann greindi frá ákvörðun sinni í dag að segja skilið við flokk­inn og ganga til liðs við þing­flokk Sjálf­stæð­is­flokks.

[links]„Brott­hvarf þing­manns­ins er fyrst og fremst áfall fyrir þann góða og öfl­uga hóp sem borið hefur Birgi á örmum sér sem odd­vita flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi og unnið mikið og óeig­in­gjarnt starf í kosn­inga­bar­átt­unni. Í því sam­hengi er ákvörðun þing­manns­ins mikil von­brigði. Stjórn Mið­flokks­ins færir flokks­mönnum þakkir fyrir mikla og ósér­hlífna vinnu í aðdrag­anda kosn­inga ekki hvað síst flokks­mönnum í Suð­ur­kjör­dæmi sem lögðu mikið á sig við að afla stefnu flokks­ins fylgis í kosn­ing­unum.

Flokk­ur­inn metur fram­lag þessa fólks mik­ils og mun áfram berj­ast fyrir hug­sjónum þess. Breytt skipan þing­flokks­ins dregur ekki úr getu hans til að fylgja eftir þeim grunn­gildum og hug­sjónum sem sam­eina okkur sem flokk,“ segir jafn­framt í yfir­lýs­ingu stjórnar Mið­flokks­ins.

Segist aldrei hafa notið fulls trausts

Birgir skrif­aði grein í Morg­un­blaðið í morgun þar sem hann greindi frá ákvörðun sinni. Þar segir mann meðal ann­ars að traust milli hans og for­ystu Mið­flokks­ins sé brost­ið.

„Þessi staða rekur rætur sínar allt aftur til hins svo­kall­aða Klaust­ur­máls. Eins og kunn­ugt er gagn­rýndi ég málið opin­ber­lega og við­brögð þeirra sem í hlut áttu. Ég gat þess jafn­framt að ég óskaði engum þess að vera þol­andi eða ger­andi í máli sem skók þjóð­ina dögum saman og enn er minnst á í fjöl­miðl­um. Að baki standa fjöl­skyldur sem hafa átt erfitt vegna máls­ins. Ég gagn­rýndi sam­flokks­menn mína sem í hlut áttu vegna þess að heil­indi við eigin sam­visku og sú ábyrgð að breyta rétt í þjón­ustu við kjós­endur er fyrsta skylda þing­manna. Eftir gagn­rýni mína á Klaust­ur­málið naut ég aldrei fulls trausts innan hóps­ins og um tíma var bein­línis litið svo á að ég væri vanda­mál­ið,“ skrifar hann.

Hann segir jafn­fram í grein­inni að við upp­röðun á fram­boðs­lista Mið­flokks­ins fyrr á þessu ári hafi haf­ist skipu­lögð aðför gegn sér af hálfu áhrifa­fólks innan flokks­ins. Mikið hafi verið á sig lagt, liðs­auki kall­aður til, nýjar reglur settar og ýmsum brögðum beitt til að koma í veg fyrir að hann yrði odd­viti í Suð­ur­kjör­dæmi.

„Mið­flokk­ur­inn beið afhroð í kosn­ing­unum og er í erf­iðri stöðu. Margt fór úrskeiðis í kosn­inga­bar­átt­unni og í aðdrag­anda henn­ar. Mikið upp­bygg­ing­ar­starf bíður for­yst­unnar og flokks­manna, en end­ur­reisnin mun aldrei takast nema full sam­staða og traust ríki milli manna. Ljóst má vera að slíkt traust ríkir ekki í minn garð eins og ég hef rak­ið. Það er full­reynt. Einnig skal það sagt að flokks­for­ystan hefur rofið traust mitt til henn­ar. [...] Minni bar­áttu ætla ég að halda áfram innan raða Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þar er góður mál­efna­legur sam­hljómur og þar tel ég að kraftar mínir muni nýt­ast best,“ skrifar Birgir í Morg­un­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár