Segir stjórnvöld þurfa að tryggja tekjur allra landsmanna

Ólafur Mar­geirs­son segir betra að stjórn­völd lofi miklu strax til að koma í veg fyrir að efna­hags­á­fallið vegna COVID-19 smit­ist yfir í fjár­mála­kerfið.

Ólafur Margeirsson
Ólafur Mar­geirs­son Doktor í hag­fræði segir áfallið verða öðru­vísi en í hrun­inu 2008.

Ólafur Mar­geirs­son, doktor í hag­fræði, segir að stjórn­völd ættu þegar í stað að lofa því að tryggja tekjur allra Íslend­inga á meðan COVID-19 far­ald­ur­inn gengur yfir. „Það er betra að lofa miklu og bakka svo með það, frekar en að lofa ekki nægi­lega miklu og þurfa síðan að stækka það,“ segir hann.

Stjórn­ar­frum­varp þess efnis að rík­is­sjóður greiði tíma­bundið laun þeirra sem sæta þurfa sótt­kví liggur nú fyrir Alþingi. Stjórn­völd víða í Evrópu og í Banda­ríkj­unum hafa nú til skoð­unar aðgerðir af þessum toga, allt frá því að greiða laun fólk sem vinnur heima til hug­mynda um tíma­bundin borg­ara­laun handa öllum. Óttast er að sum fyr­ir­tæki séu ekki í stakk búin til að lifa af höggið vegna sam­komu­banna og minni umsvifa. „Hið opin­bera vill vera pott­þétt á því að fólk geti borgað leig­una sína, reikn­inga af hita og raf­magni, íbúða­lánin og svo fram­vegis,“ segir Ólafur. „Yfir­lýs­ing þess efnis að tekjur fólks séu tryggðar gæti stoppað það að fólk örvænti.“

Ólafur minnir á að stjórn­völd hafi tryggt inn­stæður almenn­ings í bönkum í hrun­inu 2008, en að nú ætti að byrja á hinum end­anum og tryggja tekjur. Þetta þurfi að gera því ástandið nú sé öðru­vísi en þá. „Þá varð fjár­mála­á­fall sem varð að áfalli í raun­hag­kerf­inu,“ segir hann. „Núna erum við að tala um áfall í raun­hag­kerf­inu sem fer yfir í banka­kerfið ef það er ekki stoppað. Þess vegna eru seðla­bankar og rík­is­sjóðir í Evrópu á fullu að grípa það sem grípa verður.“

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur sagt að halli á rík­is­sjóði verði minnst 100 millj­arðar í ár, meðal ann­ars vegna kostn­aðar við aðgerðir til að sporna við ástand­inu. „Varðandi það að fjár­magna þetta, þá er það afskap­lega ein­falt því Ísland er með eigin mynt,“ segir Ólafur. „Málið er ekki að horfa á ein­hverja tölu núna, heldur sjá til þess að fólk hafi tekjur og að áfallið sem á sér stað núna í raun­hag­kerf­inu smit­ist ekki yfir í fjár­mála­kerfið. Bless­un­ar­lega er fjár­mála­kerfið á Íslandi miklu sterkara nú en það var fyrir 12 árum og er í öfunds­verðri stöðu miðað við lönd í Evrópu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár