Vonbrigði með brot á samkomubanni síðasta sólarhring

Staðfest smit eru nú orðin 963 hér á landi en 79 nýir ein­stak­lingar greindust með smit í gær. Enn er ekki um veld­is­vöxt að ræða sem er mjög jákvætt. Aftur á móti varð yfir­lög­reglu­þjónn fyrir von­brigðum með brot á sam­komu­banni en það er talið bera árangur.

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn
Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn Mynd: Lögreglan

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn sagð­ist á dag­legum blaða­manna­fundi í dag hafa orðið fyrir von­brigðum með brot á sam­komu­banni síð­asta sól­ar­hring. „Við erum kannski enn að átta okkur á alvar­leika máls­ins, það getur vel verið. Og við þurfum kannski bara aðeins lengri tíma til þess.“

Hann sagði að von­andi værum við öll að kom­ast í þann gír að átta okkur á því að lífið okkar væri ekki eðli­legt eins og er. „Við getum ekki ætl­ast til þess að á meðan við erum í svona ástandi að við getum hegðað okkur eins og við gerðum áður en þetta kom upp.“

Allir þyrftu að breyta hegðun sinni og lifa öðru­vísi. „Ef við gerum það og ef við gerum það saman eins og við erum búin að vera að gera að stærstu leyti hingað til þá komumst við miklu hraðar í gegnum þetta. Og komumst betur í gegnum þetta og lang­tíma­á­hrifin verða miklu minni,“ sagði Víðir.

Hann hvatti því Íslend­inga – og sér­stak­lega unga fólkið – sem hefði verið ábyrgir og frá­bærar fyr­ir­myndir að hjálpa „okkur hinum sem eru mið­aldra að kom­ast í gegnum þetta með því að minna okkur á þegar við erum ekki að standa okkur“ og beina okkur á rétta braut. „Við hin sem erum að gleyma okkur þurfum að taka til­mæl­unum vel og við treystum á það að við hjálp­umst öll með þetta,“ sagði Víðir.

Endurskoðuð spá kemur eftir helgi

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði að áhuga­vert væri út frá veiru­fræð­inni að af 504 sýnum hefðu 14 pró­sent þeirra verið jákvæð, þ.e. sýnt merki um sýk­ingu en hjá Íslenskri erfða­grein­ingu hefði af 518 sýnum verið ein­ungis 0,6 pró­sent jákvæð. „Þetta er ákveð­inn speg­ill á sam­fé­lags­smit,“ sagði sótt­varna­læknir.

Hann greindi frá því að á Lands­spít­ala lægju nú 19 ein­stak­lingar inn með COVID-sýk­ing­una og þannig væru alls fjöldi inn­lagna 33, fyrir utan þá tvo sem lágu inni á sjúkra­hús­inu á Akureyri en eru nú útskrif­aðir. Á gjör­gæslu eru nú ell­efu ein­stak­lingar, sam­kvæmt Þórólfi, og af þeim eru sex í önd­un­ar­vél.

„Matið á far­aldr­inum núna er nú í hægum vexti – hann er ekki í veld­is­vexti, getur maður sagt. Og eins og við töl­uðum um í gær þá virð­ist hann ennþá vera að fylgja bestu spá eða lík­leg­ustu spá við fjölda til­fella. En varð­andi alvar­legar inn­lagnir, inn­lagnir á gjör­gæslu, þá er svona heldur að fylgja verstu spánni,“ sagði hann.

Þá kom fram í máli Þórólfs að end­ur­skoðuð spá myndi koma eftir helgi.

„Þannig að ég held að við getum enn sagt að aðgerð­irnar virð­ast vera að skila árangri og stór hluti af þeim sem greindust síð­ast­lið­inn sól­ar­hring var í sótt­kví eða yfir 60 pró­sent. Sem sýnir mik­il­vægi sótt­kvíar og hversu mik­il­vægt það er að halda fólki áfram í sótt­kví og greina það þannig fljótt,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár