Fyrirtæki tengd Icelandair Group hafa fengið 4,7 milljarða króna í uppsagnarstyrki

Alls hafa 17 fyr­ir­tæki hafa fengið meira en 100 millj­ónir króna í upp­sagn­ar­styrki úr rík­is­sjóði frá því í maí í fyrra. Næstum 40 pró­sent upp­hæð­ar­innar hafa farið til fyr­ir­tækja sem tengj­ast Icelandair Group.

Styrkir til að hjálpa fyrirtækjum í ferðaþjónustu að rifta ráðningarsambandi við starfsfólk sitt hafa staðið til boða frá því í maí 2020.
Styrkir til að hjálpa fyr­ir­tækjum í ferða­þjón­ustu að rifta ráðn­ing­ar­sam­bandi við starfs­fólk sitt hafa staðið til boða frá því í maí 2020. Mynd: Bára Huld Beck

Icelandair Group hefur fengið alls 3,7 millj­arða króna í svo­kall­aða upp­sagn­ar­styrki sem veittir hafa verið úr rík­is­sjóði frá því í maí í fyrra. Ekkert annað fyr­ir­tæki hefur fengið nálægt því svo háa upp­sagn­ar­styrki.

Styrkirnir hjálpa fyr­ir­tækjum að segja upp fólki án mik­ils kostn­aðar fyrir þau vegna greiðslu upp­sagn­ar­frests. Yfir­­­­lýst mark­mið þeirra er að draga úr fjölda­gjald­­­­þrotum og tryggja rétt­indi launa­­­­fólks. Hlið­­­­ar­á­hrif eru að eign hlut­hafa er var­in. Styrkirnir standa þeim fyr­ir­tækjum sem hafa orðið fyrir að minnsta kosti 75 pró­sent tekju­tapi til boða.

Alls hefur Icelandair Group nýtt sér úrræðið vegna upp­sagna á 1.918 starfs­mönnum.

Sá aðili sem hefur fengið næst hæstu upp­hæð­ina í upp­sagn­ar­styrki eru Flug­leiða­hótel, sem eru í 25 pró­sent eigu Icelandair Group. Þangað hafa farið um 627 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði. Iceland Travel, ferða­skrif­stofa í eigu Icelandair Group hefur fengið 151 milljón króna í upp­sagn­ar­styrki, Bíla­leiga Flug­leiða hefur fengið 139 millj­ónir króna og Flug­fé­lag Íslands, sem er var rennt saman við Icelandair Group fyrir skemmstu, hefur fengið 83 millj­ónir króna.

[adspot]Samtals hafa fyr­ir­tæki tengd Icelandair Group fengið 4,7 millj­arðar króna í upp­sagn­ar­styrki, en alls hafa verið greiddir úr um 12,1 millj­arðar króna í slíka. Það þýðir að 39 pró­sent heild­ar­styrkj­anna hafa runnið til einnar fyr­ir­tækja­sam­stæðu. Þetta má lesa úr nýjum yfir­lits­tölum um upp­sagn­ar­styrki sem birt hefur verið á vef Rík­is­skatt­stjóra og sýnir umfang styrkj­anna frá því í maí í fyrra og til og með febr­úar 2021.

Bláa lónið fékk 603 milljón króna

Bláa Lónið fékk þriðju hæstu ein­stöku upp­sagn­ar­styrk­ina, alls um 603 milljón króna vegna upp­sagna 550 manns. Fjórða fyr­ir­tækið sem fékk upp­sagn­ar­styrki yfir hálfri milljón króna var Íslands­hótel hf., sem fékk alls 593 millj­ónir króna fyrir að segja upp alls 468 starfs­mönn­um.

Hótel eru raunar fyr­ir­ferða­mikil á list­an­um. Centerhotels fékk 266 millj­ónir króna, Kea­hótel 203 millj­ónir króna, Foss­hótel 155 millj­ónir króna og Hótel Saga 114 millj­ónir króna.

Rútu­fyr­ir­tækið Allra­handa, sem rekur vöru­merkin Grey Line og Airport Express, fékk 191 millj­ónir króna og tvö félög tengd Kynn­is­ferð­um, sem reka vöru­merkið Reykja­vik Excursions, fengu sam­tals um 193 millj­ónir króna.

Önnur fyr­ir­tæki á list­anum sem fengu yfir 100 millj­ónir króna eru öll tengd ferða­þjón­ustu með einum eða öðrum hætti.

Endurskipulagning ferðaþjónustu eftir

Í rit­inu Fjár­mála­stöð­ug­leiki, sem Seðla­banki Íslands birti í síð­ustu viku, kom fram að sá greiðslu­vand­i sem ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki hafa glímt við und­an­farið ár vegna tekju­falls gæti breyst í skulda­vanda hjá stórum hluta grein­ar­innar þegar fyr­ir­tækin byrja að greiða af lánum sínum á ný.

[links]Sam­kvæmt Seðla­bank­anum hafa skuldir ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja auk­ist nokkuð í kjöl­far far­sótt­ar­innar og var útlána­vöxtur kerf­is­lega mik­il­vægra banka til ferða­þjón­ustu rúm­lega ell­efu pró­sent á síð­asta ári. Stór hluti aukn­ing­ar­innar skýrist af frest­uðum afborg­unum og vaxta­greiðslum á árinu, auk nýrra stuðn­ings- og brú­ar­lána.

Til við­bótar hafði geng­is­lækkun krón­unnar á árinu þau áhrif að lán í erlendum gjald­eyri hækk­uðu í krónum talið en þau nema tæp­lega þriðj­ungi útlána til ferða­þjón­ustu. Sú hækkun jók einnig á skuld­setn­ingu ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækj­anna.

Seðla­bank­inn segir að gjald­þrot í grein­inni hafi enn sem komið er verið fátíð og end­ur­skipu­lagn­ing skulda fyr­ir­tækja í grein­inni eiga að stórum hluta eftir að fara fram. „Nú þegar hillir undir enda­lok far­ald­urs­ins er brýnt að fara að huga að því verk­efn­i,“ segir í rit­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár