Þótt stjórnin mælist fallin er staða hennar betri nú en tæpu ári eftir kosningarnar 2017

Stærstu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir þrír voru sam­tals með meira fylgi ell­efu mán­uðum eftir kosn­ing­arnar 2017 en þeir mæl­ast með núna. Stjórn­ar­flokk­arnir mæld­ust þá með minna sam­eig­in­legt fylgi en þeir mæl­ast með nú.

Ellefu mán­uðir eru frá því að kosið var til Alþingis. Í þeim kosn­ingum fengu þeir þrír flokkar sem nú mynda rík­is­stjórn sam­tals 54,3 pró­sent fylgi. Síðan þá hafa þeir, sam­kvæmt þjóð­ar­púlsi Gallup, tapað 8,5 pró­sentu­stigum af fylgi og mæl­ast nú með 45,8 pró­sent fylgi. Það myndi að óbreyttu ekki duga til að ná þing­meiri­hluta þar sem flokk­arnir þrír fengu 31 þing­mann kjör­inn nú í stað þeirra 38 sem þeir hafa í dag, eftir að Birgir Þór­ar­ins­son bætt­ist við hóp­inn nokkrum vikum eftir kosn­ing­arnar í sept­em­ber í fyrra.

[links]Allir flokk­arnir þrír hafa tapað fylgi frá síð­ustu kosn­ingum og opin­berar erjur þeirra á milli, sér­stak­lega vegna mál­efna­á­grein­ings þegar kemur að tekju­öflun fyrir rík­is­sjóð, hafa orðið æ algeng­ari á þessu kjör­tíma­bili. Ljóst má vera að per­sónu­leg sam­bönd milli sumra ráð­herra eru við­kvæm í besta falli, og afleit í ein­hverjum til­fellum. Má þar sér­stak­lega benda á sam­band Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Lilju D. Alfreðs­dóttur, vara­for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þar hefur ítrekað andað veru­lega köldu.

Mestu fylgi hafa Vinstri græn þó tapað. Í sumar mæld­ist fylgi flokks­ins það lægsta sem það hefur nokkru sinni mælst og þótt það hafi aðeins þok­ast upp á við er fylgið ein­ungis 8,4 pró­sent, sem þýðir að Vinstri græn hafa tapað þriðj­ungi af fylgi sínu á þessum ell­efu mán­uðum sem liðnir eru frá kosn­ingum. Flokk­ur­inn er nú hálf­drætt­ingur í fylgi við það sem hann var eftir kosn­ing­arnar 2017. Þá fékk hann ell­efu þing­menn en er nú að mæl­ast með fimm og er, ásamt Viðreisn, fimmti til sjötti stærsti flokk­ur­inn á þingi sam­kvæmt Gallup.

[adspot]Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 21,8 pró­sent fylgi, hefur tapað 2,8 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum og mæld­ist í fyrsta sinn undir 20 pró­sentum í könnun frá Gallup fyrr á þessu kjör­tíma­bili. Hann myndi fá 15 þing­menn ef kosið yrði í dag. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn tapar aðeins minna, 1,7 pró­sentu­stigum, og er sá stjórn­ar­flokk­anna sem getur senni­lega best við unað eins og stendur. Þing­mönnum hans myndi þó fækka um tvo í ell­efu ef kosið yrði nú, og nið­ur­staða Gallup end­ur­spegl­aði raun­veru­leik­ann.

Mikið breytst á skömmum tíma í „Landi tækifæranna“

Þrátt fyrir að stjórnin sé fallin sam­kvæmt Gallup, að allir stjórn­ar­flokk­arnir hafi tapað fylgi og að sýni­legir mál­efna­legir árekstrar milli flokk­anna séu mun sýni­legri en á síð­asta kjör­tíma­bili þá er heild­ar­fylgi þeirra þó meira nú en það var á sama tíma eftir kosn­ing­arnar 2017. Og væntur þing­manna­fjöldi meiri.

Í þeim kosn­ingum fengu flokk­arnir þrír 52,8 pró­sent atkvæða. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mest, 24,4 pró­sent, Vinstri græn svo 16,9 pró­sent en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ein­ungis 10,7 pró­sent. Af þeim tölum má sjá að Vinstri græn eru sá stjórn­ar­flokkur sem hefur orðið fyrir mestum fylg­is­skaða á þessum tæpu fimm árum, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sá eini sem hefur grætt á stjórn­ar­sam­starf­inu og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er nokkurn veg­inn á pari þegar kemur að afli, þótt fylgið hafi lækkað.

Ellefu mán­uðum eftir kosn­ing­arnar 2017 mæld­ist sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­flokk­anna ein­ungis 41,5 pró­sent. Það sem eftir lifði kjör­tíma­bili tókst stjórn­ar­flokk­unum hins vegar að bæta við 12,8 pró­sentu­stigum, sem dugði vel til að end­ur­nýja stjórn­ar­sam­starfið. Vert er þó að taka fram að sýni­leg aukn­ing varð við sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Það er þekkt að kjós­endur fylki sér um ríkj­andi stjórn­völd þegar miklar sam­fé­lags­legar áskor­anir eins og heims­far­aldur eða stríð verða að veru­leika. Auk þess voru aðstæður í efna­hags­líf­inu enn afar skap­legar í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga, vegna aðgerða sem Seðla­bank­inn og stjórn­völd höfðu gripið til í heims­far­aldr­inum og juku ráð­stöf­un­ar­tekjur lands­manna mikið.

Það sést til að mynda á kosn­inga­aug­lýs­ingum Sjálf­stæð­is­flokks­ins í aðdrag­anda síð­ustu kosn­ingar, þar sem hann keyrði á slag­orðið „Land tæki­fær­anna“. Í einni slíkri var bent á vextir væru þeir „lægstu í sög­unni“. Að óverð­tryggðir banka­vextir hefðu farið úr 5,7 pró­sent í nóv­em­ber 2017 í 3,6 pró­sent í ágúst 2021. Þetta hefði lækkað mán­að­ar­lega afborgun af 20 milljón króna láni um 28 þús­und krónur. Lauslega má áætla að afborgun af 50 milljón króna láni á sömu for­sendum hafi lækkað um 70 þús­und krónur á sama tíma­bili.

Í dag er staðan orðin nokkuð breytt. Nú eru óverð­tryggðir banka­vextir allt að sjö pró­sent, verð­bólga 9,7 pró­sent og mán­að­ar­legar afborg­anir af 50 milljón króna láni hækkað um allt að 100 þús­und krónur á mán­uði. Því er öll þessi lækkun á afborg­unum gengin til baka og nokkrir tugir þús­unda hafa bæst við í ofaná­lag.

Voru með jafn mikið fylgi og stjórnarflokkarnir 2018

Staða stjórn­ar­and­stöðu­flokka hefur líka breyst á þessu tíma­bili. Ellefu mán­uðum eftir kosn­ing­arnar 2017 var Sam­fylk­ingin að mæl­ast næst stærsti flokkur lands­ins með 19,3 pró­sent fylgi og hafði ekki verið á svo miklu flugi í mörg ár. Viðreisn mæld­ist norðan megin við tíu pró­sentin og Píratar voru þriðji stærsti flokkur lands­ins með 11,5 pró­sent fylgi. Sam­an­lagt fylgi þess­ara þriggja stjórn­ar­and­stöðu­flokka, sem eiga marga sam­eig­in­lega mál­efnafleti, var 41,5 pró­sent. Þeir þrír mæld­ust jafn stórir og stjórn­ar­flokk­arnir.

Fylgið fjar­aði þó undan þeim öllum þegar leið á kjör­tíma­bilið og þegar kosið var í sept­em­ber í fyrra fengu Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn ein­ungis sam­tals 26,8 atkvæða. Enginn flokk­anna þriggja náði í yfir tíu pró­sent atkvæða.

Þeir hafa allir bætt við sig fylgi á þessu kjör­tíma­bili. Sam­fylk­ingin mælist nú með 15,5 pró­sent sem er það mesta sem flokk­ur­inn hefur mælst með síðan í byrjun árs 2021 og 5,6 pró­sentu­stigum meira en hann fékk í kosn­ing­unum í fyrra­haust. Þar skiptir ugg­laust mestu máli sú breyt­ing sem liggur í loft­inu, að Kristrún Frosta­dóttir er að fara að verða næsti for­maður flokks­ins eftir lands­fund hans í októ­ber, en hún til­kynnti um fram­boð í ágúst. Það er samt verri staðan en Sam­fylk­ingin var að mæl­ast í ell­efu mán­uðum eftir kosn­ing­arnar 2017.

Píratar hafa verið verið að mæl­ast nokkuð stöðugt um eða yfir 15 pró­sentum frá því í byrjun sum­ars. Það er mun meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021, þegar 8,6 pró­sent lands­manna kusu hann. Fylgið mælist auk þess umtals­vert meira nú, þegar ell­efu mán­uðir eru liðnir af kjör­tíma­bil­inu en það gerði þegar ell­efu mán­uðir voru liðnir af því síð­asta.

Viðreisn er í dag nokkurn veg­inn á pari við það sem flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í fyrra, og mælist með 8,4 pró­sent fylgi. Það er minna en flokk­ur­inn var að mæl­ast með ell­efu mán­uðum eftir kosn­ing­arnar 2017, þegar 10,7 pró­sent aðspurðra studdi flokk­inn.

Sam­an­dregið þá er fylgi við þessa þrjá flokka umtals­vert meira í dag en þeir fengu í síð­ustu kosn­ingum, eða 38,7 pró­sent. Þeir mæl­ast saman með 25 þing­menn, og vantar því að minnsta kosti sjö til að vera með meiri­hluta.

Þetta er þó ívið minna fylgi en mæld­ist í sept­em­ber­lok 2018 þegar flokk­arnir þrír voru með jafn mikið fylgi, 41,5 pró­sent, og stjórn­ar­flokk­arnir þrír, þótt sam­eig­in­leg þing­manna­tala þá hefði senni­lega verið svipuð.

Afar breytt staða hjá Sósíalistaflokki og Miðflokki

Sem stendur eru þrír flokkar að mæl­ast með um og yfir fimm pró­sent fylgi í könn­unum Gallup. Sá sem mælist stærstur þeirra nú er Flokkur fólks­ins, með 5,6 pró­sent. Það er rúm­lega þriðj­ungi minna fylgi en flokkur Ingu Sæland fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber í fyrra og að óbreyttu myndi þing­flokk­ur­inn helm­ing­ast úr sex í þrjá. Flokkur fólks­ins er þó ekk­ert óvanur því að mæl­ast með lítið fylgi þorra kjör­tíma­bils en að taka stökk upp á við þegar það skiptir mestu máli, í aðdrag­anda kosn­inga. Þannig mæld­ist stuðn­ingur við hann ell­efu mán­uðum eftir kosn­ing­arnar 2017 6,2 pró­sent, eða mjög svip­aður því og hann er nú.

Mið­flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar vann mik­inn kosn­inga­sigur 2017 og fékk 10,9 pró­sent atkvæða, sem gerði flokk­inn að þeim fjórða stærsta á þingi. Ellefu mán­uðum síðar var fylgið á nán­ast sama stað, eða 10,3 pró­sent. Síðan þá hefur margt breyst hjá Mið­flokknum. Hann beið afhroð í síð­ustu kosn­ingum og rétt hékk inni eftir að hafa 5,4 pró­sent atkvæða. Svo yfir­gaf einn þriggja þing­manna hans flokk­inn strax í kjöl­far kosn­ing­anna, og gekk til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Eftir stóðu tveir. miðað við stöðu mála í dag myndi Mið­flokk­ur­inn ná inn einum manni.

Það sem af er kjör­tíma­bili hefur staðan ekk­ert batnað. Mið­flokk­ur­inn hefur aldrei mælst með meira en fimm pró­sent fylgi og á stundum hefur fylgið farið undir fjögur pró­sentu­stig.

Sós­í­alista­flokkur Íslands var til­tölu­lega nýkom­inn fram á sjón­ar­sviðið ell­efu mán­uðum eftir kosn­ing­arnar 2017. Hann var stofn­aður 1. maí 2017 en bauð ekki fram í þing­kosn­ing­unum þá um haustið. Það gerði hann hins vegar í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum vorið 2018, vann glæstan sigur og kom borg­ar­full­trúa inn í borg­ar­stjórn. Fyrir lá að flokk­ur­inn myndi bjóða fram næst þegar yrði kosið til þings og því var fylgi hans á lands­vísu mælt. Í sept­em­ber 2018 mæld­ist það 1,1 pró­sent.

Litlu mun­aði að Sós­í­alista­flokk­ur­inn næði inn í fyrra­haust þegar hann fékk 4,1 pró­sent atkvæða. Hann hefur nú mælst með yfir fimm pros­ent fylgi í tveimur könn­unum Gallup í röð og er því fimm sinnum stærri en hann var ell­efu mán­uðum eftir kosn­ing­arnar 2017. Það myndi skila Sós­í­alistum þremur þing­mönnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár