Framsókn, Samfylking og Píratar nánast jafnstór í nýrri könnun

Stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafa sam­tals tapað 8,5 pró­sentu­stigum af fylgi á kjör­tíma­bil­inu og njóta stuðn­ings minni­hluta þjóð­ar­innar. Sam­fylk­ingin, Píratar og Viðreisn mæl­ast með 11,7 pró­sentu­stigum meira en þeir fengu í síð­ustu kosn­ingum.

Fylgi Samfylkingarinnar hefur ekki mælst meira síðan í janúar 2021. Kristrún Frostadóttir sækist eftir því að verða næsti formaður flokksins.
Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hefur ekki mælst meira síðan í jan­úar 2021. Kristrún Frosta­dóttir sæk­ist eftir því að verða næsti for­maður flokks­ins. Mynd: Baldur Kristjánsson

Sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja er nán­ast það sama nú og það var fyrir mán­uði, eða 45,8 pró­sent, sam­kvæmt nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er áfram sem áður stærsti flokkur lands­ins með 21,8 pró­sent fylgi, sem er 2,6 pró­sentu­stigi minna en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 15,6 pró­sent fylgi, sem er aðeins meira en fyrir mán­uði, en með því minnsta sem hann hefur mælst með í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins síðan fyrir kosn­ing­arnar í fyrra­haust. Flokk­ur­inn er sem stendur 2,1 pró­sentu­stigi undir kjör­fylg­i.

Vinstri græn eru að venju með minnst fylgi stjórn­ar­flokk­anna og mæl­ast með 8,4 pró­sent stuðn­ing. Flokk­ur­inn mæld­ist með 7,2 pró­sent í júní sem var lægsta fylgi sem hann hafði nokkru sinni mælst með í könnun Gallup. Vinstri græn eru enn tölu­vert frá kjör­fylgi, sem var 12,6 pró­sent. Eng­inn flokkur á þingi hefur tapað jafn miklu fylgi það sem af er kjör­tíma­bil­i.

Allir stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafa því tapað fylgi á kjör­tíma­bil­inu og sam­tals mæl­ast þeir nú með 8,5 pró­sentu­stigum minna fylgi en þeir fengu þegar talið var upp úr kjör­köss­unum í sept­em­ber í fyrra.

Samfylkingin ekki stærri í lengri tíma

Sam­fylk­ingin mælist nú þriðji stærstu flokkur lands­ins, með nán­ast sama fylgi og sá næst stærsti, Framsókn, eða 15,5 pró­sent fylgi. Flokk­ur­inn hefur ekki mælst stærri síðan í jan­úar 2021. Sam­fylk­ingin mun kjósa nýjan for­mann í októ­ber og í síð­asta mán­uði til­kynnti Kristrún Frosta­dóttir að hún sæk­ist eftir því emb­ætti. Enginn annar hefur lýst yfir fram­boði.

[adspot]Píratar eru litlu minni með 14,8 pró­sent fylgi, sem er nán­ast það sama og í síð­asta mán­uði. Viðreisn mælist svo með 8,4 pró­sent og stendur líka nokkurn veg­inn í stað milli mán­aða.

Sam­an­lagt mælist fylgi þess­ara þriggja flokka 38,7 pró­sent, eða 11,7 pró­sentu­stigum meira en þeir fengu síð­ast þegar var kos­ið. Í ljósi þess að fylg­is­aukn­ing Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar er meiri en fylgis­tap stjórn­ar­flokk­anna, sem er 8,5 pró­sent, er ljóst að þeir hafa sótt fylgi til ann­arra stjórn­ar­and­stöðu­flokka að auki.

Sósíalistar yfir fimm prósentum annan mánuðinn í röð

Flokkur fólks­ins mælist nú með 5,6 pró­sent fylgi, sem er einu pró­sentu­stigi minna en fyrir mán­uði og tölu­vert undir þeim 8,8 pró­sentu­stigum sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ing­um. Mið­flokk­ur­inn hefur ekki mælst með yfir fimm pró­sent fylgi það sem af er kjör­tíma­bili og það varð engin breyt­ing þar á í síð­asta mán­uði. Þá sögð­ust alls 4,6 pró­sent styðja flokk­inn sem er tæpu pró­sentu­stigi undir kjör­fylg­i.

Sós­í­alista­flokkur Íslands bauð fram til þings í fyrsta sinn haustið 2021, en náði ekki inn. Hann fékk 4,1 pró­sent atkvæða. Fram að júlí­mán­uði hafði flokk­ur­inn ein­ungis einu sinni mælst með meira en fimm pró­sent fylgi en hann bætir ágæt­lega við sig þá og mæld­ist með 5,3 pró­sent. Flokk­ur­inn er á svip­uðum slóðum nú með 5,1 pró­sent fylgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár