Þú ert nasistasvín

Rasmus Paludan, umdeild­asti stjórn­mála­maður Dan­merkur, á yfir höfði sér mála­ferli vegna ummæla um fyrr­ver­andi ráð­herra í dönsku rík­is­stjórn­inni. Nas­ista­svín var orðið sem hann not­aði.

Rasmus Paludan, stofnandi Stram Kurs
Rasmus Paludan, stofn­andi Stram Kurs Mynd: EPA

Rasmus Paludan er vafa­lítið umdeild­asti stjórn­mála­maður Dan­merkur. Og ekki að ástæðu­lausu. Hann hefur marg­sinnis hlotið dóm, einkum fyrir ummæli sem hann hefur látið sér um munn fara. Danskir fjöl­miðlar kalla hann hægri öfga­mann, ras­ista, hat­urstrú­boða og nas­ista. Hann er 37 ára, lög­fræð­ingur að mennt og hefur um ára­bil haft afskipti af stjórn­málum.

Sem ungur maður tók Rasmus Paludan þátt í starfi nokk­urra stjórn­mála­flokka en festi hvergi rætur. Árið 2017 stofn­aði hann stjórn­mála­flokk­inn Stram Kurs, Stranga Stefnu. Helsta bar­áttu­mál flokks­ins hefur frá byrjun verið bar­átta gegn múslímum í Danmörku. Öllum sem játa trú múslíma vill flokk­ur­inn gera útlæga úr Danmörku, og helst af öllu afmá múslíma af yfir­borði jarðar hvar sem er í heim­inum. Flokk­ur­inn vill líka að öllu fólki sem ekki er af vest­rænum upp­runa verði bannað að koma til Dan­merkur.[adspot]

Í kosn­inga­bar­átt­unni fyrir þing­kosn­ing­arnar fyrr í þessum mán­uði (5.júní) fór Rasmus Paludan, sem er allt í öllu hjá Stram Kurs, mik­inn og var nær dag­lega um hann fjallað í dönskum fjöl­miðlum. Sumir þeirra sögðu Rasmus Paludan eins­konar blöndu af Mogens Glistrup og Donald Trump. Samkomur, sem flokk­ur­inn stóð fyrir, voru iðu­lega haldnar á götum og torgum, ekki síst á svæðum þar sem fólk af erlendu bergi brotið býr. Þar lét for­mað­ur­inn móðan mása, hædd­ist að Kór­an­inum, sem hann kall­aði Stóru skækju­bók­ina (Den store luder­bog) og hvatti við­stadda til að míga á þetta helsta trú­ar­rit múslíma. Sjálfur hélt Rasmus Paludan iðu­lega á Kór­an­inum á fundum sínum, hrækti á hann og kveikti svo í. Sömu­leiðis hædd­ist hann að fólki af afrískum upp­runa, burt­séð frá trú­ar­brögðum, sagði það litlum gáfum gætt. Hvíti mað­ur­inn hefði haft vit á að fara frá Afríku en heimsk­in­gj­arnir, þeir þeldökku, setið eftir. Allt vakti þetta mikla athygli og rataði í fjöl­miðl­ana. Á þessum sam­kundum voru stuðn­ings­menn oft fámenn­ari en mót­mæl­end­urnir. Lög­reglan hafði því í nógu að snú­ast til að gæta öryggis flokks­for­manns­ins, meira um það síðar í þessum pistli.

Kallaði Mimi Jakobsen nasisasvín

Þegar Stram Kurs flokk­ur­inn var stofn­aður árið 2017 lýsti Rasmus Paludan því yfir að stefnt yrði að fram­boði næst þegar kosið yrði til þings. Til að geta boðið fram þarf að skila 20 þús­und með­mæl­endum og það tókst flokknum. Dönskum fjöl­miðlum ber að gæta jafn­ræðis, geta til dæmis ekki snið­gengið full­trúa til­tek­inna flokka sem bjóða fram. Rasmus Paludan tók þátt í ótal umræðu­þáttum í útvarpi og sjón­varpi og spar­aði þar ekki stóru orðin. 9. maí kom hann ásamt fleirum fram í þætt­inum Aftenshowet á aðal­rás danska sjón­varps­ins, DR1. Meðal gesta þar var Mimi Jakobsen, fyrr­ver­andi ráð­herra og þing­maður Centrum – Demokra­terne, Mið – demókrata. Hún sat á þingi á árunum 1977 – 2001, þar af rúm­lega tíu ár sem ráð­herra, en hefur nú hætt afskiptum af stjórn­málum. Í áður­nefndum þætti tók­ust þau, hún og Rasmus Paludan, harka­lega á. Hann sagði að Mimi Jakobsen minnti sig mest á Adolf Hitler, og bætti svo um betur og kall­aði hana nas­ista­svín. Ekki einu sinni heldur tvisvar.

Ætlar að höfða mál

Mimi Jakobsen lýsti því síðar yfir að hún sætti sig ekki við að vera kölluð nas­ista­svín og hún myndi kæra þessi ummæli til lög­regl­unnar. Ummæli af þessu tagi er hins­vegar ekki hægt að kæra til lög­reglu og þess vegna hyggst Mimi Jakobsen höfða einka­mál gegn Rasmus Paludan. Sú máls­höfðun er nú í und­ir­bún­ingi. Enginn full­trúi Stram Kurs náði kjöri í kosn­ing­unum 5. Júní sl, til þess hefði flokk­ur­inn þurft að fá 2% atkvæða en fékk 1.8% (63.537 atkvæði). Danskar reglur um stuðn­ing við stjórn­mála­flokka gera ráð fyrir árlegum fjár­styrk sem reikn­aður er út miðað við fylgi flokks í nýliðnum kosn­ingum fram til næstu kosn­inga. Burtséð frá því hvort við­kom­andi flokkur náði full­trúum á þing eða ekki. Stram kurs fær, sam­kvæmt þessum reglum árlegt fram­lag úr rík­is­sjóði, fram­lagið nemur 2.1 milljón danskra króna ( 40 millj­ónum íslenskum). Rasmus Paludan hefur í við­tölum lýst yfir að þótt flokknum hafi ekki tek­ist að ná full­trúum á þing í þess­ari atrennu haldi flokks­starfið áfram og það komi dagur eftir þennan, eins og hann orðar það.

Kostnaðarsöm öryggisgæsla

Lögum sam­kvæmt er það hlut­verk dönsku lög­regl­unnar að gæta öryggis stjórn­mála­manna. Sú örygg­is­gæsla bygg­ist á sér­stöku mati og í til­viki Rasmus Paludan hefur þörfin fyrir slíka gæslu verið rík. Og kostar sitt. Það sem af er þessu ári hefur kostn­aður lög­reglu vegna þessa eina stjórn­mála­manns numið vel á annað hund­rað millj­óna danskra króna( vel á þriðja millj­arð íslenskra). Þetta er miklu meiri kostn­aður en vegna ann­arra stjórn­mála­manna, en það er mat lög­regl­unnar að sér­stök ástæða sé til að hafa umfangs­mikla gæslu þegar þessi umdeildi stjórn­mála­maður á í hlut. Margir hafa undr­ast að manni með jafn afdrátt­ar­lausar og umdeildar skoð­anir hafi tek­ist að safna nægum fjölda með­mæl­enda til að geta boðið fram. Það hefur vakið umræður um lögin, bæði varð­andi fjölda með­mæl­enda og enn­fremur þrösk­uld­inn svo­nefnda.

Lögin

Eins og nefnt var fyrr í þessum pistli þarf flokkur sem hyggst bjóða fram í þing­kosn­ingum í Danmörku að hafa að minnsta kosti 20 þús­und með­mæl­endur. Sú regla hefur lengi verið óbreytt. Í umfjöllun dag­blaðs­ins Berl­ingske um þetta mál lýstu nokkrir gam­al­grónir stjórn­mála­menn ( sem ekki eru lengur í eld­lín­unni) þeirri skoðun sinni að rétt­ast væri að hækka tölu með­mæl­enda upp í 40 þús­und. Með því yrði komið í veg fyrir að flokkar í fram­boði yrðu allt of margir sem hefði í för með sér að þús­undir atkvæða féllu dauð (stemmespild). Margir eru hins­vegar and­snúnir þess­ari hug­mynd, segja að þá yrði hug­sjóna­fólki gert erf­ið­ara um vik að reyna að hafa áhrif á stjórn lands­mál­anna. Skoðanir eru líka skiptar um hvort rétt sé að hækka þrösk­uld­inn svo­nefnda. Í dag eru regl­urnar þannig að til að ,,sleppa inn“ þarf 2% greiddra atkvæða. Flokkur sem rétt skríður yfir þrösk­uld­inn fær fjóra þing­menn. Það er í sam­an­burði við margar aðrar þjóðir fremur lágur þrösk­uldur. And­stæð­ingar hærri þrösk­uldar segja að það að þrösk­uld­ur­inn skuli ekki vera hærri tryggi meiri fjöl­breytni á þingi. Í Danmörku er löng hefð fyrir margra flokka stjórnum, og minni­hluta­stjórnum, og þar hafa fámennir þing­flokkar oft skipt miklu máli.

Þessa dag­ana standa stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður yfir í Danmörku. Þótt stjórn­mála­menn hafi talað oft og lengi um breyt­ingar á kosn­inga­fyr­ir­komu­lag­inu er það ekki efst í huga þeirra núna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár