Er COVID orðið svipuð heilsufarsógn meðal bólusettra og inflúensa?

Þær eru farnar að hlað­ast upp – vís­bend­ing­arnar um að ómíkron sé mun væg­ara en fyrri afbrigði. Blaða­maður New York Times segir að þar með virð­ist COVID-19 jafn­vel minni ógn við heilsu aldr­aðra og bólu­settra en inflú­ensa.

Maður skokkar fram hjá minnisvarða um þá sem látist hafa úr COVID-19 í Bretlandi.
Maður skokkar fram hjá minn­is­varða um þá sem lát­ist hafa úr COVID-19 í Bret­landi. Mynd: EPA

Er ómíkron-afbrigði kór­ónu­veirunnar greind­ist í lok nóv­em­ber biðu stjórn­völd ríkja um allan heim ekki boð­anna og hertu aðgerðir sam­stundis. Reyndu með ýmsum ráðum að halda veirunni úti, jafn­vel með því að setja á ferða­bann fólks frá löndum í sunn­an­verðri Afríku þar sem ómíkron var fyrst rað­greint. Við­brögðin voru að vissu leyti skilj­an­leg. Fram var komið nýtt afbrigði sem hafði fleiri stökk­breyt­ingar en áður hafði sést, sumar hverjar þær sömu og önnur afbrigði höfðu haft og nýtt til að kom­ast hjá vörnum lík­am­ans.

Við­brögðin voru líka yfir­drifin. Full­ljóst er orðið að ferða­bönn stöðva ekki veiruna. Ómíkron hefur stungið sér niður með leift­ur­hraða í hverju land­inu á fætur öðru. Það er nú að finna í flestum ríkjum heims. Smit­hæfni afbrigð­is­ins opin­ber­að­ist fljótt. Spurn­ingum um áhrif þess á heilsu okkar var hins vegar ekki ger­legt að svara með vissu fyrst í stað.

[adspot]

Einkenni ómíkron eru nú sífellt að koma betur í ljós. Og nið­ur­stöð­urnar eru upp­örvandi. Hvort sem litið er til töl­fræði um smit, sjúkra­húsinn­lagnir og dauðs­föll í ýmsum löndum eða til nýrra nið­ur­staðna úr dýra­rann­sóknum. Þær rann­sóknir benda til að ómíkron sýki efri önd­un­ar­veg en fjölgi sér ekki auð­veld­lega í lungna­vef líkt og fyrri afbrigði hafa gert með skað­legum afleið­ingum. Allar þessar rann­sóknir og öll fyr­ir­liggj­andi töl­fræði virð­ist benda til hins sama: Ómíkron er hættu­m­inna en delta-afbrigðið.

Hins vegar mun hin gríð­ar­lega mikla smit­hæfni ómíkron valda miklu álagi á sjúkra­hús. Þetta er þegar að koma á dag­inn, m.a. í Banda­ríkj­unum, þar sem COVID-sjúk­lingar eru farnir að fylla sjúkra­húsin.

[links]Yfirvöld í Suður-Afríku, þar sem ómíkron upp­götv­að­ist fyrst í lok nóv­em­ber, til­kynntu mán­uði síðar að toppi ómíkron-bylgj­unnar væri náð. Á sama tíma til­kynntu stjórn­völd í Englandi að fólk sem smit­ast af ómíkron væri helm­ingi ólík­legra til að þurfa á inn­lögn að halda og það sem smit­ast af delta.

Öll þessi töl­fræði er ýmsum breytum háð. Í fyrsta lagi þá hafa fjöl­margir smit­ast af COVID-19 frá upp­hafi far­ald­urs­ins, lík­lega mun fleiri en grein­ingar segja til um. Þótt end­ur­sýk­ing af ómíkron sem algeng gæti fólk hafa myndað ein­hvers konar mótefni gegn alvar­legum veik­indum. Þá eru bólu­setn­ingar auð­vitað að hafa gríð­ar­leg áhrif og ljóst að þær eru að gagn­ast gegn ómíkron, sér­stak­lega hjá þeim sem fengið hafa örv­un­ar­skammt.

Ná ekki að fjölga sér í lungum

En er þá ómíkron í raun væg­ara en delta, ef ekki væri fyrir mótefni og bólu­setn­ingar?

Til að svara þess­ari spurn­ingu hafa vís­inda­menn gert rann­sóknir á dýrum og ein­angr­uðum veirum á rann­sókn­ar­stofum. Michael Diamond, veiru­fræð­ingur við Washington-háskóla í St. Louis, og teymi hans sýktu hamstra og mýs með ómíkron sem og öðrum afbrigðum. Munurinn var gíf­ur­legur: Eftir nokkra daga var magn veira í lungum dýr­anna sem sýkt voru með ómíkron að minnsta kosti tíu sinnum minna en þau sem sýkt höfðu verið með öðrum afbrigðum kór­ónu­veirunnar. Fleiri sam­bæri­legar rann­sóknir ann­arra vís­inda­manna hafa leitt hið sama í ljós.

Diamond segir í sam­tali við vís­inda­tíma­ritið Nature að SARS-CoV-2 veir­urnar hafi hingað til valdið mestum skaða í lungum. Lungna­sýk­ing setji svo af stað mikið ónæm­is­við­bragð hjá sjúk­lingum sem aftur valdi vefja­skemmdum og súr­efn­is­skorti. Hann segir því að þeim mun færri frumur í lungum sýk­ist þeim mun minni séu sjúk­dóms­ein­kenni.

Ómíkron kemur sér hins vegar fyrir í meira magni en fyrri afbrigði í efri hluta önd­un­ar­veg­ar­ins sem Diamond segir geta skýrt hina miklu smit­hæfni þess. Veiran gæti þess vegna átt auð­veld­ara með að kom­ast frá nefi og munni smit­aðra og yfir í annað fólk. Nið­ur­stöð­urnar séu jákvæðar engu að síður þótt enn hafi hegðun ómíkron ekki verið afhjúpuð að fullu.

Eitt af því sem vís­inda­menn vara við að þessir eig­in­leikar ómíkron, að fjölga sér aðal­lega í efri önd­un­ar­vegi, gæti sett ung börn í meiri hættu en áður. Audrey John, sér­fræð­ingur í smit­sjúk­dómum barna við Barna­spít­al­ann í Fíla­delfíu, bendir í sam­tali við Nature á að nef­kok ungra barna sé þröngt og ung­börn andi ein­göngu í gegnum nefið. Það gæti þýtt alvar­legri sjúk­dóms­ein­kenni COVID-19 hjá börnum en hjá full­orðnum. Vís­bend­ingar um þetta sjá­ist þó ekki, að minnsta kosti enn sem komið er, í tölum um inn­lagnir barna á sjúkra­hús í Banda­ríkj­unum.

Þrátt fyrir að vís­inda­menn eigi enn margt eftir ólært um ómíkron segir Ravindra Gupta, veiru­fræð­ingur við háskól­ann í Cambridge í Bret­landi, að ótt­inn sem vakn­aði í upp­hafi vegna fjölda stökk­breyt­inga í ómíkron, hafi verið óþarf­lega mik­ill. Af þessu megi draga þann lær­dóm að það sé erfitt að meta hættu veiru­af­brigða út frá rað­grein­ingu einni saman.

David Leon­hardt, blaða­maður New York Times, bendir á í nýjasta pistli sínum að fyrstu tíð­indi af mild­ari ein­kennum af völdum ómíkron frá Suður-Afríku, hafi reynst rétt. Um það vitni læknar í Banda­ríkj­unum sem hann hafi rætt við nýverið. Sú bylgja far­ald­urs­ins sem nú gangi yfir vegna ómíkron sé allt öðru­vísi en fyrri bylgjur.

Hann til­tekur þrennt sem aðskilur ómíkron frá fyrri afbrigðum:

Færri sjúkrahúsinnlagnir

Sá sem smit­ast af ómíkron er ólík­legri til að þurfa á inn­lögn að halda en sá sem smit­ast af fyrri afbrigðum. Hann vitnar til nýrrar rann­sóknar frá Houston um að um 66 pró­sent minni líkur væru á því að sjúk­lingar smit­aðir af ómíkron þyrftu að leggj­ast inn á sjúkra­hús en þeir sem smit­ast hefðu af delta. Fyrstu nið­ur­stöður frá Bretandi eru á sömu lund: Fólk með ómíkron er að minnsta kosti helm­ingi ólík­legra til að þurfa sjúkra­hús­með­ferð. Og sam­bæri­legar nið­ur­stöður hafa borist frá Kanada.

Engu að síður er inn­lögnum á sjúkra­hús í Banda­ríkj­unum vegna COVID-19 að fjölga enda gríð­ar­legur fjöldi fólks nú smit­aður. Í Maryland-ríki hafa. t.d. aldrei fleiri legið á spít­ala með sjúk­dóm­inn en einmitt núna. Gjör­gæslu­læknir í New York segir í sam­tali við New York Times að sem betur fer séu sjúk­ling­arnir ekki jafn veikir og áður. En rúmin eru engu að síður full af COVID-sjúk­lingum og það eitt og sér veldur gríð­ar­legu álagi. Svo gæti farið að ekki reyn­ist mögu­legt að veita öllum sem þurfa, COVID-veikum eða öðrum, lækn­is­að­stoð. Það gæti svo aftur leitt til dauðs­falla.

Minni veikindi innlagðra

Það er ekki aðeins ólík­legra að fólk þurfi að leggj­ast inn á sjúkra­hús vegna ómíkron, heldur eru veik­indi þeirra sem leggj­ast inn almennt ekki jafn alvar­leg og áður. Þetta skýrist af því sem áður var rakið að veiran leggst ekki eins mikið á lungun og fyrri afbrigði gerðu. Þess vegna eru hlut­falls­lega færri að leggj­ast inn á gjör­gæslu­deildir vest­an­hafs. Svipaða sögu er að segja frá Bret­landi. Þar hefur inn­lögnum fjölgað í mik­illi ómíkron-bylgju en fjöldi gjör­gæslu­sjúk­linga hefur hins vegar staðið nokkurn veg­inn í stað.

Færri dauðsföll?

Leon­hardt skrifar í sam­an­tekt sinni í New York Times að hingað til í far­aldr­inum hafi dauðs­föllum farið að fjölga um þremur vikum eftir að ný bylgja hefst. Í ómíkron-bylgj­unni hefur það ekki enn gerst þrátt fyrir að mán­uður sé síðan hún hóf að rísa.

Engu að síður vara læknar við því að dauðs­föllum gæti átt eftir að fjölga á næstu dögum og vikum ekki síst í ljósi þess að millj­ónir full­orð­inna Banda­ríkja­manna eru óbólu­settir og því ber­skjald­aðir fyrir alvar­legum veik­indum.

Þó er talið lík­legt að fjöldi dauðs­falla í þess­ari bylgju verði mun minni en í delta-bylgj­unum. Ef litið er til Suður-Afríku má sjá að mun færri dauðs­föll hafa orðið þar en síð­ustu miss­eri far­ald­urs­ins.

Þurfum áfram að vera á varðbergi

Þrátt fyrir allar þessar vís­bend­ingar um að ómíkron sé ekki jafn skætt og delta vara sér­fræð­ingar við væru­kærð. Tempra þurfi útbreiðsl­una til að draga úr álagi á heil­brigð­is­kerfi. Leana Wen, fyrr­ver­andi yfir­maður heil­brigð­is­mála í Baltimore, skrif­aði í grein í Washington Post nýverið að nú þurfi að feta milli­veg­inn milli harðra aðgerða og athafna­frelsis. „Það er óskyn­sam­legt að ætl­ast til þess að bólu­settir haldi aftur af sér við athafnir sem ástund­aðar voru fyrir far­ald­ur­inn,“ skrifar Wen. „Þeirra ein­stak­lings­bundna áhætta er jú lítil og það er hátt gjald sem greiða þarf fyrir að halda nem­endum frá skólum, loka veit­inga­stöðum og versl­unum, stöðva ferða­lög og við­skipti.“

Hins vegar hvetur hún alla til að fá örv­un­ar­bólu­setn­ingu og að bera grímur. Einnig hvetur hún stjórn­völd til að koma á bólu­setn­ing­ar­skyldu. Allar þessar aðgerðir munu draga úr útbreiðslu COVID-19 og þar með úr álagi á sjúkra­hús og dauðs­föllum. Þeir sem hafi und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, hafi farið í líf­færa­ígræðslu og eru í krabba­meins­með­ferð, ættu áfram að fara mjög var­lega.

[adspot]

Áður en ómíkron kom til sög­unnar voru lík­urnar á að 75 ára full­bólu­settur Banda­ríkja­maður myndi deyja úr COVID-19 svip­aðar og að deyja úr inflú­ensu. Hin árlega inflú­ensa er auð­vitað mis­jafn­lega skæð á milli ára en talið er að vest­an­hafs deyi að með­al­tali 1 af hverjum 160-200 sem hana fá.

„Ómíkron hefur breytt þessum útreikn­ingum,“ skrifar blaða­mað­ur­inn Leon­hardt í New York Times. Af því að ómíkron er mild­ara afbrigði veirunnar „þá virð­ist COVID núna vera minni ógn við heilsu flestra eldri bólu­settra ein­stak­linga en hin árlega inflú­ensa.“

Það má hins vegar ekki gera lítið úr hætt­unni sem eldra fólki stafar af inflú­ensu. Árið 2017 lét­ust að minnsta kosti átján úr henni hér á landi. Tíu árið á eftir. Flest ár deyja innan við tíu vegna inflú­ensu hér á landi en á því eru þó und­an­tekn­ingar. Árið 2005 voru dauðs­föllin 29 enda flensan mis­mun­andi skæð frá ári til árs. Veturinn 2019-2020 lét­ust um 20 þús­und manns úr inflú­ensu í Banda­ríkj­unum.

„Það er enn mjög góð ástæða fyrir eldra fólk að halda áfram að reyna að kom­ast hjá COVID-sýk­ingu,“ segir Shelli Far­hadian, læknir við Yale-háskóla, við New York Times, þar sem hætta á alvar­legum veik­indum sé að lík­indum enn mikil í þeim ald­urs­hópi.

Góð tíðindi frá Íslandi

Björn Rúnar Lúð­víks­son, yfir­læknir ónæm­is­fræði­deildar Land­spít­ala og pró­fessor í ónæm­is­fræði við lækna­deild Háskóla Íslands, færir okkur Íslend­ingum einnig jákvæð tíð­indi eftir að hafa rýnt í töl­fræði síð­ustu daga. „Í fyrsta lagi þá virð­ist það vera að af þeim sem eru óbólu­settir, eru svona 2,4-2,5 pró­sent sem eru að leggj­ast inn á spít­ala,“ sagði hann í við­tali við Bylgjuna. „Sem er nátt­úr­lega allt of hátt en það er hins vegar helm­ingi minna en var á fyrri stigum þannig að við erum að ná greini­lega betri tökum held ég á með­ferð­inni og árang­ur­inn á Covid-göngu­deild­inni að skila sér þarna.“

Þá sagði Björn Rúnar að miðað við töl­fræð­ina þá væri inn­lagn­ar­tíðni hjá bólu­settum ekki nema 0,2 pró­sent. „Það er tífalt minna heldur en hjá þeim sem eru óbólu­settir.“

Með ákveðnum fyr­ir­vara sagði hann einnig lík­legt að þessi tala væri enn lægri hjá þrí­bólu­settum. Þetta væru slá­andi, en ánægju­legar nið­ur­stöður, sam­an­borið við fyrri bylgjur.

„Þeir sem eru þrí­bólu­settir eru lægstir þannig að lík­lega er inn­lagn­ar­tíðnin hjá þrí­bólu­settum enn lægri heldur en þetta. Þetta eru mjög slá­andi nið­ur­stöður en ánægju­legt og þetta er tölu­vert minna en var hjá bólu­settum í fyrri bylgj­unum, eig­in­lega tífalt lægra inn­lagn­ar­hlut­fall. Þetta er miklu miklu lægra heldur en hefur verið að birt­ast erlendis þannig að við erum greini­lega að gera eitt­hvað gott hérna á Íslandi,“ sagði Björn Rúnar.

Af 5.300 manns sem hefðu greinst smit­aðir frá því 29. des­em­ber hefðu aðeins ell­efu þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús. Af þeim 2.000 óbólu­settum sem greinst hefðu á sama tíma­bili hefðu hins vegar 52 þurft sjúkra­húsinn­lögn.

Langstærsti hluti þeirra sem þarf á gjör­gæslu að halda vegna COVID-19 væri óbólu­settur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár