Nýju lánveitingar Íbúðalánasjóðs á landsbyggðinni skilyrðum háðar

Vextir nýrra lána Íbúða­lána­sjóðs á lands­byggð­inni verða ákveðnir af stjórn sjóðs­ins og verða þeir í sam­ræmi við mark­aðsvexti á almennum fast­eigna­lánum á hverjum tíma.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, und­ir­rit­aði í gær breyt­ingar á reglu­gerð sem gerir það að verkum að sveit­ar­fé­lög, ein­stak­lingar og óhagn­að­ar­drifin félög á lands­byggð­inni muni fljót­lega geta tekið lán hjá Íbúða­lána­sjóði til hús­næð­is­upp­bygg­ingar á stöðum þar sem önnur fjár­mögnun er ekki í boði.

Í svari félags­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að í þessu felist að sveit­ar­fé­lög, ein­stak­lingar og félög sem ekki eru rekin í hagn­að­ar­skyni geti fengið lán hjá Íbúða­lána­sjóði til að byggja íbúð­ar­hús­næði ef skortur sé á hús­næði af því tagi sem eigi að byggja í við­kom­andi sveit­ar­fé­lagi, sam­kvæmt hús­næð­is­á­ætlun sveit­ar­fé­lags­ins sem hafi verið stað­fest af Íbúða­lána­sjóði.

„Þetta er aðgerð til að bregð­ast við mark­aðs­bresti þar sem lán­veit­ingin er ávallt skil­yrt því að ekki fáist lán til bygg­ing­ar­innar á eðli­legum mark­aðs­kjörum hjá öðrum lána­stofn­un­unum vegna ástands fast­eigna­mark­aðar í við­kom­andi sveit­ar­fé­lagi,“ segir í svar­inu.

Vextir ákveðnir af stjórn Íbúðalánasjóðs

Þá kemur fram hjá ráðu­neyt­inu að vextir lán­anna verða ákveðnir af stjórn Íbúða­lána­sjóðs og verða þeir í sam­ræmi við mark­aðsvexti á almennum fast­eigna­lánum á hverjum tíma.

Veðrými lán­anna geti orðið allt að 90 pró­sent af mark­aðsvirði en almenn lán miða yfir­leitt við 80 pró­sent. Með þessu sé verið að koma til móts við misvægi á bygg­ing­ar­kostn­aði og mark­aðs­verði.

Í grunn­inn snýst þetta um að mis­muna ekki lán­tak­endum eftir stað­setn­ingu ef þeir eru á óvirkum mark­aðs­svæðum, að því er fram kemur í svari Íbúða­lána­sjóðs við fyr­ir­spurn Kjarnans. „Þannig eru vextir lán­ana ákvarð­aðir á þann hátt að þeir fari ekki langt yfir það sem lán­tak­and­anum myndi bjóð­ast á virk­ari mark­aðs­svæðum fyrir sam­bæri­legt verk­efni, og er þá bæði tekið mið af líf­eyr­is­sjóðs- og banka­lánum,“ segir í svar­inu.

Fjármögnun háð því að um nýbyggingar sé að ræða

Í frétta­til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu segir að bæta þurfi aðgengi að láns­fjár­magni á lands­byggð­inni til að bregð­ast við þeim hús­næð­is­vanda og stöðnun í hús­bygg­ingum sem þar ríki. Fjár­mögn­unin sé háð því að um nýbygg­ingar sé að ræða og sé aðeins í boði á þeim stöðum þar sem opin­ber hús­næð­is­á­ætlun, stað­fest af Íbúða­lána­sjóði, sýni að skortur sé á hús­næði af því tagi sem byggja á. Einnig sé skil­yrði fyrir því að geta fengið áður­nefnd lán að lán­taki sýni fram á að hann fái ekki lán hjá öðrum lána­stofn­unum eða fái ein­ungis lán á veru­lega hærri kjörum en almennt bjóð­ast á öðrum mark­aðs­svæðum.

Í reglu­gerð­inni kemur fram að mark­mið lán­veit­ing­anna sé að tryggja eðli­lega fjölgun íbúða á þessum svæðum, aukið hús­næð­is­ör­yggi óháð búsetu auk þess að stuðla að heil­brigðum hús­næð­is­mark­aði og við­skiptum með íbúð­ar­hús­næði.

Ásmundur Einar sagði við til­efnið að það lægi fyrir að á mörgum stöðum hefði ekk­ert eða mjög lítið verið byggt um ára­bil, þrátt fyrir að eft­ir­spurnin væri mikil og greiðslu­geta hjá íbúum svæð­is­ins góð. Sveit­ar­fé­lögin hefðu sér­stak­lega bent á skort á við­eig­andi leigu­hús­næði.

„Með reglu­gerð­ar­breyt­ing­unni, sem ég und­ir­rit­aði í morgun, verður hægt að fá lán til bygg­ingar nýs hús­næðis á svæðum sem glíma við þetta sér­staka misvægi í bygg­ing­ar­kostn­aði og mark­aðs­verði. Það mun styðja við atvinnu­upp­bygg­ingu á mörgum stöðum og hefur reynslan af sam­bæri­legum lán­veit­ingum á Norð­ur­löndum verið góð. Ég hlakka til að sjá fólk kom­ast í við­eig­andi hús­næði sem starfar og býr á þeim svæðum sem lána­flokk­ur­inn tekur til,“ sagði hann.

Stöðnun algengt vandamál

[links]Félags- og barna­mála­ráð­herr­ann lagði fram í sumar til­lögur að aðgerðum til þess að styrkja hús­næð­is­mark­að­inn á lands­byggð­inni og koma til móts við áskor­anir sem fjöl­mörg sveit­ar­fé­lög standa frammi fyrir í hús­næð­is­mál­um.

Meðal þess­ara aðgerða er að rýmka heim­ildir um við­bót­ar­fram­lag sem heim­ilt er að veita vegna íbúða á svæðum þar sem bygg­ing hefur verið í lág­marki og skortur er á leigu­hús­næði, veita styrki til upp­bygg­ingar á köldum mark­aðs­svæð­um, liðka á kröfum innan stjórn­sýsl­unnar til þess að lækka bygg­ing­ar­kostnað og að auka sam­starf hags­muna­að­ila, sveit­ar­fé­laga og Íbúð­alána­sjóða.

Sam­kvæmt Íbúð­alána­sjóði er stöðnun algengt vanda­mál í þessum sveit­ar­fé­lögum og víða hefur ekk­ert íbúð­ar­hús­næði verið byggt í einn til tvo ára­tugi. Mun meira var byggt á lands­byggð­inni frá alda­mótum og fram að hruni, heldur en síð­ustu ár. Sér­fræð­ingar Íbúða­lána­sjóðs sjá merki um mark­aðs­brest á mörgum svæðum enda ráð­ist fáir í að reisa nýtt íbúð­ar­hús­næði þrátt fyrir að atvinna sé víð­ast hvar næg og eft­ir­spurn eftir íbúðum mik­il.

Þeir fáu sem vilja byggja í smærri sveit­ar­fé­lögum komi oft og tíðum að lok­uðum dyrum á lána­mark­aðn­um. Dýr og erfið fjár­mögn­un, skortur á bygg­ing­ar­að­ilum og misvægi milli hús­næð­is­verðs og bygg­ing­ar­kostn­aðar hafi valdið því að lítið eða ekk­ert er byggt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár