Take the money and run

Fólk grípur til ýmissa ráða í því skyni að drýgja heim­il­is­pen­ing­ana. Danski mynd­list­ar­mað­ur­inn Jens Haaning bætti jafn­gildi tæpra ell­efu millj­óna íslenskra króna í budd­una. Aðferðin hefur vakið mikla athygli, enda var það til­gang­ur­inn.

Þrátt fyrir að verk Jens Haaning hafi ekki verið mikið fyrir augað varð það til þess að mun fleiri sóttu listasýninguna í Kunsten en reiknað var með.vÆtlunin var að sýningin yrði opin til áramóta, en var framlengd til 16. janúar sl.
Þrátt fyrir að verk Jens Haaning hafi ekki verið mikið fyrir augað varð það til þess að mun fleiri sóttu lista­sýn­ing­una í Kunsten en reiknað var með.vÆtl­unin var að sýn­ingin yrði opin til ára­móta, en var fram­lengd til 16. jan­úar sl. Mynd: EPA

24. sept­em­ber í fyrra var opnuð í lista­safn­inu Kunsten í Álaborg sýn­ingin Work it Out. Und­ir­bún­ingur hófst fyrir fimm árum en komst á skrið árið 2018 eftir að Kunsten fékk hug­mynda­verð­laun Biku­ben­fonden, sem er menn­ing­ar­sjóður Spari­sjóðs­ins Bikuben. Bikuben var stofn­aður 1857 en menn­ing­ar­sjóð­ur­inn árið 1989. Til­gangur sjóðs­ins hefur frá upp­hafi verið að styrkja ýmis konar menn­ing­ar­starf­semi. Hug­mynda­verð­laun­unum fylgir styrkur til sýn­inga­halds, styrk­ur­inn er mis­hár og fer eftir umfangi sýn­ingar, eins og henni er lýst í umsókn.

Work it out

Work it Out er umfangs­mesta sér­sýn­ing sem Kunsten hefur staðið fyrir frá upp­hafi en safnið var opnað árið 1972.

Safnið bauð 19 lista­mönnum, frá nokkrum löndum, eða sam­starfs­hópum lista­manna að taka þátt í Work it Out sýn­ing­unni. Þar skyldi athyglin bein­ast að vinn­unni: hvað er vinna og hvers vegna vinnum við? Hvert er hlut­verk ein­stak­lings­ins í vinnu­sam­fé­lagi sam­tím­ans? Kór­óna­veiran hefur valdið ákveð­inni við­horfs­breyt­ingu til vinn­unnar, er sú breyt­ing tíma­bundin? Þessum og fleiri spurn­ingum var varpað fram í boði safns­ins til lista­mann­anna. Þeir máttu ráða hvort verkin væru ný eða hefðu verið sýnd áður. Lista­mönn­unum var jafn­framt ráð­lagt að koma með, eða senda verkin tím­an­lega til safns­ins þannig að nægur tími gæf­ist til að koma þeim fyrir. Vitað var að mörg verk­anna yrðu stór og þess vegna nauð­syn­legt að hafa tím­ann fyrir sér, eins og sagði í bréfi safn­stjór­ans til lista­mann­anna.

Umsamið var að lista­menn­irnir myndu, hver um sig, fá greiddar 40 þús­und krónur danskar (jafn­gildir 800 þús­undum íslenskum) fyrir þátt­töku í sýn­ing­unni. Ekki skipti máli hvort verkið hefði verið gert sér­stak­lega fyrir sýn­ing­una eða verið sýnt áður. Jafn­framt var umsamið að safnið myndi borga send­ing­ar­kostnað og umbúðir utan um verkin. Eins og oft vill verða voru lista­menn­irnir mis­fljótir að bregð­ast við, sumir voru búnir að að koma verk­unum til safns­ins, löngu áður en til stóð að setja sýn­ing­una upp, aðrir á seinni skip­unum.

Sagðist verða seinn fyrir

Einn seinni­skipa­manna var Jens Haaning. Hann hafði til­kynnt safn­inu að sitt verk, í tveimur hlutum, myndi ber­ast safn­inu þegar skammt yrði í að sýn­ingin yrði opnuð. Hann hafði sent safn­inu málin á tveimur römmum sem verkið yrði í, upp­heng­ing yrði ein­föld ,,bara að smella römm­unum á fest­ing­arnar (naglana) á veggnum“ sagði Jens Safn­stjórn Kunsten tók þetta gott og gilt, lista­menn hafa iðu­lega í mörg horn að líta og Jens Haaning með margt í gangi þessa sept­em­ber­daga í fyrra.

Meðalárslaun í Austurríki og Danmörku

Verkið sem Jens Haaning ætl­aði að sýna í Álaborg var eins konar upp­færsla á verki sem hann hafði sýnt í Herning árið 2010 og vakti þar tals­verða athygli. Eins og áður sagði var verkið í tveimur hlutum, tveimur mis­stórum römmum. Upp­setn­ingin var sú sama í báðum til­vikum, pen­inga­seðlar þöktu allan flöt­inn inni í ramm­anum, danskir seðlar í öðrum en evrur í hinum.

[adspot]

Tit­ill­inn var ein­fald­lega Með­al­árs­laun í Aust­ur­ríki 2007 og Með­al­árs­laun í Danmörku 2010. Á sýn­ing­unni í Kunsten átti að vera búið að upp­færa launa­töl­urnar, að öðru leyti yrði verkið eins.

Þurfti að fá peningana að láni hjá safninu

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Jens Haaning hafði aflað sér voru sam­an­lögð með­al­árs­laun ein­stak­lings í Danmörku og Aust­ur­ríki 532.549 danskar krónar (10.5 millj­ónir íslenskar). Jens Haaning átti þessa pen­inga ekki í hand­rað­anum og samdi við Kunsten um að fá pen­ing­ana að láni og að þeim yrði skilað þegar sýn­ing­unni lyki. Um þetta atriði, eins og annað varð­andi verkin á sýn­ing­unni, var skrif­legur samn­ingur.

Á síðustu stundu

Tveimur dögum áður en sýn­ingin skyldi opnuð var safn­stjóri Kunsten orð­inn óró­legur, verkið frá Jens Haaning var ekki komið til Ála­borgar. Safn­stjór­inn hringdi í Jens sem sagði honum að hafa engar áhyggjur verkið kæmi á til­settum tíma. „Það kemur sendi­bíll með þetta og svo er bara að skella þessu upp, ég kem ekki sjálfur“ sagði Jens Haaning.

Take the money and run

Kunsten hafði aug­lýst sýn­ing­una Work it Out vel og vand­lega. Allt safnið notað undir þessa stærstu sér­sýn­ingu í sögu þess. Um hádeg­is­bil föstu­dag­inn 24. sept­em­ber renndi sendi­ferða­bíll í hlað, með tvö verk, safn­stjór­inn and­aði léttar. Verkin voru drifin inn og umbúð­irnar fjar­lægðar í skyndi. Mikil var undrun starfs­fólks­ins þegar inni­haldið kom í ljós. Ramm­arnir voru þarna, með gler­inu, en seðl­arnir ekki. Við­staddir göptu af undrun og sam­tímis varð ljóst af hverju lista­mað­ur­inn hafði ekki sent verkið fyrr en á síð­ustu stundu, þá yrði of seint að bregð­ast við. Í sama mund barst safn­inu tölvu­póstur frá Jens Haaning. Þar skýrði hann frá því að pen­ing­arnir sem hann hefði fengið frá safn­inu væru hjá sér og að hann hefði skírt verkið, auðu rammana, uppá nýtt. Það héti nú „Take the money and run“. Safn­stjór­inn sagði að lista­mað­ur­inn myndi vænt­an­lega skila pen­ing­unum enda ætti safnið þá.

Sýningin í Álaborg vakti mikla athygli og verk Jens Haaning varð til þess að mun fleiri sóttu sýn­ing­una en reiknað var með, þrátt fyrir kór­óna­veiruna. Ætlunin var að sýn­ingin yrði opin til ára­móta, en var fram­lengd til 16. jan­úar sl.

Ætlar ekki að skila peningunum

Daginn eftir að sýn­ing­unni lauk lýsti Jens Haaning því yfir að hann ætl­aði sér ekki að skila pen­ing­unum, þeir færu í heim­il­is­buddu hans sjálfs. Hann sagði jafn­framt að það sem hann gerði hefði ekki verið í aug­lýs­inga­skyni. Hins vegar vildi hann vekja athygli á bágum kjörum danskra mynd­list­ar­manna, sem væru til skammar.

Safnið stefnir listamanninum og vill fá peningana

Safn­stjóri Kunsten lýsti því yfir, þegar fyrir lá að lista­mað­ur­inn ætl­aði sér ekki að skila pen­ing­unum, að safnið hefði stefnt Jens Haaning fyrir rétt. Málið hefði ekki verið kært til lög­reglu og safn­stjór­inn kvaðst vona að málið yrði leyst og Kunsten fengi pen­ing­ana til baka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár