Danskir bændur vita ekki sitt rjúkandi ráð

Hita­bylgjan sem herjað hefur á mörg Evr­ópu­lönd und­an­farnar vikur hefur valdið marg­vís­legum vand­ræðum og óþæg­indum. Menn og skepnur jafna sig lík­lega fljótt þegar hita­bylgjan verður liðin hjá en ekki verður það sama sagt um jarð­ar­gróð­ur­inn.

„Mér finnst rign­ingin góð“ segir í þekktum íslenskum dæg­ur­laga­texta. Þeir eru ófáir Íslend­ing­arnir sem hafa við ýmis tæki­færi, sungið hástöfum um dásemdir rign­ing­ar­innar. Þótt margir Íslend­ingar syngi kannski þarna þvert um hug sér gætu margir Evr­ópu­búar, að minnsta kosti nú um stundir, tekið undir þessa full­yrð­ingu. Flestir, satt að segja, búnir að fá nóg af því óvenju­lega veð­ur­fari sem ríkt hefur víð­ast hvar í álf­unni und­an­farna mán­uði og þrá rign­ingu. Engir þó kannski heitar en bændur sem sjá fram á mjög erf­iða tíma.

Rigningarsumarið 2017

Orða­til­tækið „í ökkla eða eyra“ þekkja flestir. Það lýsir ágæt­lega veðr­inu í Danmörku sum­arið 2017 og sumr­inu nú. Í fyrra var það úrkoman sem gerði bændum erfitt fyrir, beiti- og rækt­un­ar­lönd á kafi í vatni en í ár er það hins­vegar skortur á úrkomu sem erf­ið­leik­unum veldur. Land­bún­aður er gríð­ar­lega mik­il­vægur, og fyr­ir­ferð­ar­mik­ill í dönsku efna­hags­lífi en danskir bændur eru, all­flestir, ekki ofhaldnir og mega ekki við miklum áföllum.

Eftir hið erf­iða ár 2017 von­uð­ust bændur eftir góðu sumri í ár en þær vonir hafa ekki ræst. Maí­mán­uður var bjartur og sól­ríkur en þegar kom fram í júní tók gam­anið að kárna, ef svo má að orði kom­ast. Varla kom deigur dropi úr lofti allan mán­uð­inn og sömu sögu er að segja af júlí­mán­uði víð­ast hvar í land­inu. Þessari þurrka­tíð hefur fylgt mik­ill hiti og ekki breyt­ing í vændum, ef marka má veð­ur­spár. Áfram­hald­andi þurr­viðri og hlý­indi næstu vikur.

Útlitið er dökkt

Þótt sólin skíni glatt er útlitið hjá mörgum bændum allt annað en bjart. Tals­maður dönsku bænda­sam­tak­anna sagði að bændur teld­ust heppnir ef þeim tæk­ist að ná undir þak helm­ingi þess fóð­urs sem nauð­syn­legt er. Og það hefur nú þegar marg­vís­legar afleið­ingar. Margir naut­gripa­bændur eru byrj­aðir að senda hluta bústofns­ins til slátr­unar, löngu fyrr en ætl­unin var, enda þótt þeir telji það algjört neyð­ar­úr­ræði. Áður­nefndur tals­maður sagði nær öruggt að fjöldi bænda kæm­ist í þrot með búrekst­ur­inn, margir væru „alveg á nipp­inu“ eins og hann orð­aði það.

Haustsáning er útilokuð

Reglur Evr­ópu­sam­bands­ins mæla svo fyrir að bændur í aðild­ar­ríkj­unum skuli sá svo­nefndri haustsán­ingu eigi síðar en 20. ágúst ár hvert. Haustsán­ing­unni er ætlað að binda köfn­un­ar­efni í jarð­veg­inum og hindra að það ber­ist í vatn. Danskir bændur segja að nú sé haustsán­ing úti­lokuð, eins og ástandið sé nái eng­inn gróður að dafna. Í reglum ESB er að finna und­an­tekn­ing­ar­á­kvæði frá haustsán­ing­ar­dag­setn­ing­unni og telja margir danskir stjórn­mála­menn að nauð­syn­legt sé að beita þessu ákvæði.

Verðhækkanir á kjöti, mjólk, mjöli- og korni

Fyrir nokkrum dögum birti danska útvarpið, DR, á vef­síðu sinni langt við­tal við Klaus Kaiser hag­fræð­ing hjá rann­sókna- og þekk­ing­ar­setr­inu Seges. Hann spáir því að á næst­unni, jafn­vel strax í þessum mán­uði, muni danskir neyt­endur (og reyndar margir fleiri) finna fyrir umtals­verðum verð­hækk­unum á korni, mjöli og hafra­mjöli. Hækkanir á kjöti og mjólk­ur­vörum fylgi svo fljót­lega í kjöl­farið. Á þess­ari stundu sé úti­lokað að spá nokkru um hve miklar þessar hækk­anir verði en þær verði umtals­verðar. Að sögn hag­fræð­ings­ins verða þessi áhrif ekki bundin við næstu mán­uði því í dönskum land­bún­aði sé útlitið fyrir næsta ár ekki bjart. Undir þetta taka danskir bændur sem segja næsta ár verða mjög erfitt. ,,Þurrk­arnir núna eru þeir mestu í heila öld og ekki bætir hit­inn úr skák“ sagði sér­fræð­ingur dönsku veð­ur­stof­unnar, DMI, í við­tali við danska útvarpið.

Rafmagnið og heita vatnið hækka líka í verði

Við korn­rækt fellur til mik­ill hálmur. Hluti hans er not­aður sem fóður en stóran hluta þess sem til fellur selja danskir bændur fjar­varma­veitum. Um það bil 70 danskar fjar­varma­veitur kynda að stórum hluta með hálmi en nú er skortur á þessum eldi­við fyr­ir­sjá­an­legur. Fjar­varma­veit­urnar verða því að leita ann­arra og dýr­ari lausna (olía og/eða gas) og það þýðir hærra verð til neyt­enda. Svipaða sögu er að segja af raf­orkunni. Í logn­inu snú­ast dönsku vind­myll­urnar ekki og þurrk­arnir í Noregi draga úr raf­orku­fram­leiðsl­unni þar í landi en Danir kaupa mikið raf­magn þaðan. Þetta þýðir hærra orku­verð til danskra heim­ila og fyr­ir­tækja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár