Íslendingar geta legið yfir fótbolta um helgina

Þýska Bundesligan í fót­bolta hefst á laug­ar­dag eftir hlé vegna heims­far­ald­urs­ins. Streym­isveitan Viaplay, sem hefur sýn­ing­ar­rétt­inn að Bundeslig­unni, byrjar að bjóða upp á íþrótta­pakk­ann sinn á Íslandi á morgun.

Landsliðsframherjinn Alfreð Finnbogason leikur með Augsburg í Þýskalandi.
Lands­liðs­fram­herj­inn Alfreð Finn­boga­son leikur með Augsburg í Þýska­landi. Mynd: EPA

Þýska knatt­spyrnan, Bundesligan, mun hefj­ast að nýju á laug­ar­dag. Deildin verður þannig fyrst allra stóru deild­anna í Evrópu til þess að reyna að ljúka tíma­bil­inu, sem hefur verið í pásu frá því snemma í mars­mán­uði vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru.

Íslend­ingar munu geta fylgst með, en nor­ræna streym­isveitan Viaplay er með sýn­ing­ar­rétt­inn að þýska bolt­anum á Íslandi og ætlar að byrja að bjóða upp á íþrótta­pakk­ann sinn á Íslandi frá og með morg­un­deg­inum. Pakkinn mun kosta 1.599 krónur á mán­uði.

Steym­isveitan hóf að bjóða upp á þjón­ustu sína á Íslandi 1. apríl síð­ast­lið­inn, en hefur til þessa ein­ungis boðið upp á þátta­ser­íur, kvik­myndir og barna­efni, enda íþrótt­irnar nær all­staðar í dvala vegna heims­far­ald­urs­ins.

„Það verður frá­bært að fá fót­bolt­ann aftur í gang og gaman að geta loks boðið Íslend­ingum upp á eitt­hvað af þeim stór­kost­legu íþróttum sem NENT Group hefur tryggt sér útsend­inga­rétt­inn að. Auk Bundeslig­unnar geta Íslend­ingar einnig horft á NASCAR-kappakst­ur­inn á sunnu­dag­inn og von­andi einnig Formúlu 1 og Bundesligu-hand­bolt­ann fljót­lega,“ er haft eftir Kim Mikk­el­sen, yfir­manni íþrótta­sviðs NENT, í frétta­til­kynn­ingu.

Í til­kynn­ing­unni frá Viaplay segir að allir leikir efstu deildar verði sýndir og einnig valdir leikir í næstefstu deild þýska fót­bolt­ans. Fyrstu þrjár viður­eign­irnar um helg­ina verða sýndar með íslenskum álits­gjöfum, en aðrir leikir með enskum álits­gjöfum.[links]

Hvað íþróttir varðar er Viaplay að verða risi á nor­rænum sjón­varps­mark­aði og hefur til dæmis tryggt sér sýn­ing­ar­rétt­inn á enska bolt­anum í Nor­egi, Dan­mörku, Sví­þjóð og Finn­landi frá 2022-2028, auk þess að vera með sýn­ing­ar­rétt­inn á Meist­ara­deild Evr­ópu á ein­staka mörk­uðum nú þegar.

Anders Jensen, for­seti og fram­kvæmda­stjóri sam­stæð­unnar sem rekur streym­isveit­una, ræddi við Kjarnann í lok mars og vildi þá ekki stað­festa hvort fyr­ir­tækið ætl­aði sér að sækj­ast eftir sýn­ing­ar­rétti á þessum vörum hér á landi í fram­tíð­inni, en bætti við að sagan hefði sýnt að Viaplay hefði verið í sókn­ar­hug gagn­vart þessum vörum á öðrum nor­rænum mörk­uðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár