Stefna á íslenska þáttagerð en gefa ekkert upp um ásókn í enska boltann

Streym­isveitan Viaplay verður aðgengi­leg á Íslandi frá og með 1. apríl. Forseti og fram­kvæmda­stjóri NENT Group, sem rekur streym­isveit­una, ræddi við Kjarnann um fyr­ir­ætl­anir fyr­ir­tæk­is­ins á íslenska mark­aðnum.

Anders Jensen, forseti og framkvæmdastjóri NENT Group.
Anders Jensen, for­seti og fram­kvæmda­stjóri NENT Group. Mynd: Aðsend

„Við erum mjög spennt,“ segir Anders Jensen, for­seti og fram­kvæmda­stjóri Nordic Enterta­in­ment Group, sem rekur streym­isveit­una Viaplay, í sam­tali við Kjarnann um inn­reið fyr­ir­tæk­is­ins inn á íslenskan neyt­enda­markað núna um mán­aða­mótin.

Jensen ræddi við blaða­mann frá heim­ili sínu í Kaup­manna­höfn í morgun. Hann segir Viaplay stefna á að fram­leiða nokkuð af íslensku sjón­varps­efni og segir Ísland vera „frá­bært sögu­svið fyrir alls konar þætti“, en Viaplay hefur þegar komið að gerð einnar íslenskrar þáttar­aðar, Stellu Blóm­kvist, sem sýnd var í sjón­varpi Símans hér­lendis en á Viaplay á Norð­ur­löndum. [links]

Þegar eru fram­leiðslu­verk­efni á vegum Viaplay í und­ir­bún­ingi hér­lendis, en Jensen segir ekki tíma­bært að ræða ein­staka verk­efni á þessu stigi. Hann segir Viaplay vilja vera öfl­ugan sam­starfs­að­ila nor­rænna fram­leið­enda og þar með íslenskra, þannig að skap­andi fólk með stórar hug­myndir þurfi ekki endi­lega að leita til Hollywood til þess að hrinda þeim í fram­kvæmd.

Efnið sem Viaplay býður upp á skipt­ist í fjóra flokka; sér­fram­leitt Vi­aplay-efni, kvik­mynd­ir, þátt­arað­ir, barna­efni og íþrótta­efni. Streym­isveitan er svipuð að upp­setn­ingu og Netflix, það eina sem þarf til að tengj­ast er greiðslu­kort til að kaupa áskrift­ina og netteng­ing til þess að streyma efn­inu á margs­konar tækjum.

[adspot]

Til að byrja með mun Viaplay bjóða íslenskum neyt­endum upp á þáttar­aða- og þáttar­aða­pakk­ann sinn fyrir 599 krónur á mán­uði, sam­kvæmt því sem kom fram í til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins sem send var út í morgun.

Íþróttirnar seldar sér

Hvað íþróttir varðar er Viaplay að verða risi á nor­rænum mark­aði og hefur til dæmis tryggt sér sýn­ing­ar­rétt­inn á enska bolt­anum í Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finn­landi frá 2022-2028, auk þess að vera með sýn­ing­ar­rétt­inn á Meist­ara­deild Evrópu á ein­staka mörk­uðum nú þegar og mikið úrval af öðru íþrótta­efni.

Íþrótta­efnið er selt sér og verður ekki strax í boði á Íslandi, en Jensen segir að það verði á mjög sam­keppn­is­hæfu verði, ekki mikið dýr­ara en þær 599 krónur sem þáttar­aða- og kvik­mynda­pakk­inn mun kosta.

Jensen vill ekki stað­festa að Viaplay muni sækj­ast eftir sýn­ing­ar­rétt­inum á enska bolt­anum og Meist­ara­deild Evrópu hér­lendis, en þessir sýn­ing­ar­réttir eru í höndum Símans og Sýnar í dag.

Hann segir ekki tíma­bært að tjá sig um það, en bætir við að sagan sýni að Viaplay hafi verið „í sókn­ar­hug“ þegar komi að því að tryggja sér útsend­ing­ar­rétt­inn á þessu efni á Norð­ur­lönd­unum.

Hann leggur áherslu á að Viaplay vilji alltaf gera meira en bara „tryggja sér sýn­ing­ar­rétt­inn“ að íþrótta­efni og segir alltaf mikla áherslu lagða á umgjörð og þátta­gerð tengda því íþrótta­efni sem sýnt er í gegnum streym­isveit­una.

Sækjast ólíklega eftir íslensku íþróttaefni

Viaplay er einnig með sýn­ing­ar­rétt­inn á til dæmis sænsku og dönsku úrvals­deild­unum í fót­bolta. Jensen segir aðspurður að hann telji „ólík­legt“ að Viaplay reyni að kaupa sýn­ing­ar­rétt­inn að íslensku íþrótta­efni, þar sem fyr­ir­tækið vilji reyna að vera með íþrótta­efni sem höfði til áhorf­enda­hópa á öllum sam­nor­ræna mark­aðnum. Hann bætir þó við að aldrei skuli segja aldrei.

Spurður út í hvaða aðdrátt­ar­afl íslenski mark­að­ur­inn hafi fyrir Viaplay, í ljósi smæðar hans, segir Jensen að Viaplay vilji vera „sann­ar­lega sam­nor­ræn“ streym­isveita og svo hafi það einnig verið svo að inn­reið á íslenska mark­að­inn hafi haft lít­inn jað­ar­kostnað í för með sér fyrir fyr­ir­tækið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár