Streymisþjónustan Viaplay í loftið á Íslandi

Viaplay mun frá 1. apríl bjóða íslenskum áhorf­endum upp á sér­fram­leitt efni, kvik­myndir, þátt­araðir og barna­efni, auk þess sem beinar úsend­ingar frá íþrótta­við­burðum munu bæt­ast við síðar.

Norræna streym­isveitan Nordic Enterta­in­ment Group (NENT Group) mun opna fyrir Viaplay streym­is­þjón­ustu sína á Íslandi 1. apríl. Í Viaplay er í boði sér­fram­leitt efni, kvik­myndir, þátt­araðir og barna­efni, auk þess sem beinar útsend­ingar frá íþrótta­við­burðum í heimsklassa munu bæt­ast við síðar.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu.

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að Viaplay þáttar­aða- og kvik­mynda­pakk­inn muni kosta 599 krónur (4 evrur) á mán­uði á Íslandi. Eins og á öðrum mörk­uðum NENT Group mun Viaplay verða aðgengi­legt við­skipta­vinum á Íslandi gegnum beinar áskriftir og aðild að áskriftum þriðja aðila.

Efnið sem Viaplay býður upp á skipt­ist í fjóra flokka: Sér­fram­leitt Viaplay efni, kvik­myndir, þátt­araðir, barna­efni og íþróttir í beinni útsend­ingu.

Við­skipta­vinir geta einnig leigt eða keypt nýj­ustu Hollywoodmyndirnar og nor­rænu met­sölu­mynd­irnar í Viaplay-versl­un­inni.

Á næstu mán­uðum er stefnt að því að bæta smám saman við efni á www.viaplay.is, svo áhorf­endur munu hafa úr fleiri kvik­myndum og þáttum að velja sem og nor­rænu efni sem er sér­fram­leitt fyrir Viaplay. Allt barna­efni verður textað eða tal­sett á íslensku.

Að auki hefur NENT Group tryggt sér íslenskan sýn­ing­ar­rétt á mörgum íþrótta­við­burðum- og keppnum; Formúlu 1 kappakstr­inum, þýskum hand­bolta og fót­bolta (Bundesliga) WTA í tennis, amer­íska hafna­bolt­anum (Major League Baseball) og mörgu fleiru, segir í til­kynn­ing­unni.

Meiri­hluta þess­ara við­burða hefur verið frestað tíma­bundið vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins og munu því bæt­ast við síðar.

Síminn býst við að Viaplay ásælist enska boltann

Viaplay hefur rutt sér til rúms á íþrótta­mark­aðnum á Norð­ur­lönd­unum að und­an­förnu og hefur nýlega tryggt sér sýn­ing­ar­rétt­inn að enska bolt­anum frá 2022 til 2028 í Danmörku, Noregi, Finn­landi og Svíþjóð.

Magnús Ragn­ars­son fram­kvæmda­stjóri sölu hjá Símanum sagði, í sam­tali við hlað­varps­þátt Morg­un­blaðs­ins í byrjun febr­úar, að Viaplay myndi án efa berj­ast um sýn­ing­ar­rétt­inn að vin­sælu íþrótta­efni hér á landi.

„Ég er 100% viss um að þeir muni berj­ast við okk­ur og aðra á mark­aðnum, um rétt­inn að sýn­ing­um á enska bolt­an­um og Meist­ara­deild­inni og fleiru,“ sagði Magnús.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár