Stillt upp á lista hjá Miðflokknum í öllum kjördæmum

Fimm manna upp­still­ing­ar­nefndir munu setja saman fram­boðs­lista Mið­flokks­ins í öllum kjör­dæmum lands­ins fyrir kom­andi kosn­ingar, en ekki kosið í sæti á lista á félags­fundum. Fylgi flokks­ins hefur verið í nokk­urri lægð að und­an­förnu.

Hluti þingliðs Miðflokksins á björtum og fallegum sumardegi fyrr á kjörtímabilinu.
Hluti þing­liðs Mið­flokks­ins á björtum og fal­legum sum­ar­degi fyrr á kjör­tíma­bil­inu. Mynd: Facebook / Miðflokkurinn

Mið­flokk­ur­inn ætlar að beita upp­still­ingu til þess að setja saman fram­boðs­lista í öllum kjör­dæmum fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar í haust. Í til­kynn­ingu frá flokknum segir að þetta hafi orðið nið­ur­staðan hjá öllum kjör­dæma­fé­lögum flokks­ins, en sam­kvæmt lögum flokks­ins má einnig nota þá aðferð að kjósa efstu fimm menn á lista á almennum félags­fundi í kjör­dæm­unum.

Upp­still­ing­ar­nefndir í kjör­dæm­unum munu taka til starfa á næstu dögum og sam­hliða mun flokk­ur­inn aug­lýsa eftir fram­boðum.

Fimm manns ráða í hverju kjördæmi

Samkvæmt lögum flokks­ins sitja fimm manns í upp­still­ing­ar­nefndum, sem skip­aðar eru þriggja manna kjör­stjórn kjör­dæma­fé­lags­ins auk tveggja full­trúa sem til­nefndir eru af stjórn Mið­flokks­ins.

„Allir full­trú­arnir skulu búsettir í við­kom­andi kjör­dæmi. Við upp­still­ingu á lista skal gæta jafn­réttis. Upp­still­ing­ar­nefnd skal skila til­lögu um fram­boðs­lista til stjórnar kjör­dæma­fé­lags og skal stjórnin bera til­lög­una upp á almennum félags­fundi í við­kom­andi kjör­dæma­fé­lagi til sam­þykktar. Stjórn flokks­ráðs stað­festir end­an­lega fram­boðs­lista,“ segir í lögum flokks­ins um fram­kvæmd­ina.

Lítið hefur til þessa heyrst af fram­boðs­málum Mið­flokks­ins, en þó hafði Frétta­blaðið eftir sínum heim­ildum strax í jan­úar að tölu­verð spenna væri að mynd­ast í Suð­ur­kjör­dæmi, þar sem bæði Birgir Þór­ar­ins­son og Karl Gauti Hjalta­son, sem gekk í þing­flokk Mið­flokks­ins eftir Klaust­ur­málið, eru þing­menn flokks­ins.

[adspot]

Ekkert verður þó af því að almennir félags­menn flokks­ins fái að kjósa þeirra á milli, eins og Frétta­blaðið taldi að búast mætti við.

Fylgi flokksins í lægð í nýjustu könnunum

Mið­flokk­ur­inn er í dag með níu þing­menn, eftir að tveir bætt­ust í hóp­inn úr þing­liði Flokki fólks­ins í kjöl­far Klaust­ur­máls­ins. Ólíklegt er að sá þing­manna­fjöldi haldi sér eftir kom­andi alþing­is­kosn­ingar, miðað við nýlegar skoð­ana­kann­anir.

Í nýj­ustu könnun MMR, sem fram­kvæmd var dag­ana 21. til 28. apríl, mæld­ist Mið­flokk­ur­inn með ein­ungis 5,8 pró­senta fylgi. MMR hefur ekki mælt flokk­inn svo lágan það sem af er kjör­tíma­bil­inu.

Í nýjasta þjóð­ar­púlsi Gallup sem fram­kvæmdur var dag­ana 30. mars til 2. maí var fylgið 8,2 pró­sent og sam­kvæmt útreikn­ingum sem RÚV birti myndi fylgið duga til þess að fá fjóra kjör­dæma­kjörna þing­menn, einn í hverju kjör­dæmi utan Reykja­víkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár