Girða fyrir villisvínin

Á næsta ári verður reist 70 kíló­metra löng girð­ing á landa­mærum Dan­merkur og Þýska­lands. Girð­ing­unni er ætlað að koma í veg fyrir að villisvín frá Þýska­land kom­ist til Dan­merkur. Danir ótt­ast að svínin gætu borið með sér afríska svína­pest.

Á næsta ári verður reist 70 kíló­metra löng girð­ing á landa­mærum Dan­merkur og Þýska­lands. Girð­ing­unni er ætlað að koma í veg fyrir að villisvín frá Þýska­land kom­ist til Dan­merkur. Danir ótt­ast að svínin gætu borið með sér afríska svína­pest, sem fund­ist hefur í villisvínum í Austur-Evrópu, og hún þannig borist í dönsk alisvín. Fólki stafar ekki hætta af pest­inni.

Afríska svína­pestin er vírus­sjúk­dómur sem leggst á alla svína­stofna en berst ekki í önnur dýr, né fólk. Engin bólu­setn­ing er til gegn pest­inni og svín sem fá hana drep­ast und­an­tekn­inga­lítið.

Afrísku svína­pest­ar­innar, sem nú herjar, varð fyrst vart í Rúss­landi árið 2007 þótt hún sé mun eldri. Í febr­úar árið 2014 var stað­fest að pestin hefði borist til Póllands, þar fannst hún í villi- og alisvínum og síðar sama ár fannst hún í svínum á litlu búi í aust­ur­hluta Lett­lands og í villisvínum á sama svæði. Pestin hefur síðan borist til Eist­lands, Litháen, Rúmeníu, Tékk­lands og Ung­verja­lands, Georgíu, Armeníu, Aserbajdsjan, Úkraínu og Rúss­lands. Sjúk­dóm­ur­inn getur borist með ýmsum hætti milli dýra, t.d. með fóðri, vatni, flugum og öðrum smá­dýrum.

Þýski villisvínastofninn er stór

Afríska svína­pestin hefur ekki, svo vitað sé, borist í villisvín í Þýska­landi en þar er stofn villisvína mjög stór. Í Svíþjóð er stofn­inn sömu­leiðis stór en þar hafa ekki fund­ist smituð dýr. Sér­fræð­ingar telja aðeins tím­spurs­mál hvenær smitið ber­ist til Þýska­lands og ef það ger­ist eru taldar miklar líkur á að það nái einnig til Dan­merkur.

Villisvínin geta vegið allt að 200 kíló, búk­ur­inn getur náð tveggja metra lengd. Feld­ur­inn er oft­ast dökk­grár, trýnið langt og eyrun ætíð sperrt. Tenn­urnar eru 44, hjá eldri karl­dýrum má iðu­lega sjá tvær beittar tennur standa út úr skolt­inum. Villisvínin eru mjög lykt­næm og heyra vel, þau eru ekki mat­vönd, éta nán­ast allt sem að kjafti kemur.

35 villisvín skotin á þessu ári

Danir útrýmdu villisvínum í upp­hafi 19. aldar og ekki er vitað til að í land­inu séu villisvín með ,,fasta búsetu“. Af og til flækj­ast svín frá Þýska­landi yfir landa­mærin til Suður-Jótlands. Þau eru ekki aufúsu­gestir og heim­ilt er að skjóta þau þar sem til þeirra sést. Eins og áður sagði eru villisvínin mjög lykt­næm og í nágrenni Graasten á Suður-Jótlandi freistar umhverf­is­stofn­unin þeirra, með skipu­legum hætti. Grefur niður maís og tjöru­klessur (svín­unum líkar lyktin), dýrin renna á lykt­ina en eft­ir­lits­mynda­vélar fylgj­ast með svæð­inu. Þegar vart verður við dýrin fá svína­skytt­urnar (oft­ast bændur) boð og þeir fara þá á stað­inn og fella dýrin. Frá ára­mótum hafa verið skotin 35 dýr. Þeim sem fella villisvín er skylt að skila sýnum úr dýr­unum til dönsku umhverf­is­stofn­un­ar­innar.

70 kílómetra löng girðing

Fregnir um að sýkt villisvín geti hugs­an­lega kom­ist til Dan­merkur hafa á síð­ustu árum af og til verið til umfjöll­unar í dönskum fjöl­miðlum. Og ekki að ástæðu­lausu. Mikið er i húfi, svína­eldi er mik­il­væg land­bún­að­ar­grein. Ef pestin bær­ist til Dan­merkur gæti það haft mjög alvar­legar afleið­ingar, haft í för með sér fjölda­gjald­þrot bænda, sem margir hverjir mega ekki við áföllum. Danir flytja árlega út svína­kjöt og svína­af­urðir fyrir jafn­gildi 200 millj­arða íslenskra króna og þar við bæt­ist salan inn­an­lands. Það er því ekki að undra að bændur hafi lengi reynt að vekja athygli stjórn­mála­manna á því að nauð­syn­legt sé að bregð­ast við og gera ráð­staf­anir til að hindra að svína­pestin ber­ist til lands­ins.

Nokkuð er síðan umræður um aðgerðir til að verj­ast villisvínum hófust í danska þing­inu, Fol­ket­inget. Þær umræður snér­ust einkum um eins­konar landamæra­girð­ingu. Þótt sú lausn þyki hvorki frum­leg né nýstár­leg er fátt annað í boði. Fyrir skömmu urðu danskir þing­menn sam­mála um að sett yrði upp 70 kíló­metra löng girð­ing á Suður-Jótlandi, frá landa­mær­unum við Vest­ur­hafið að Flens­borg­ar­firði. Girð­ingin verður hálfur annar metri á hæð frá jörðu og nær hálfan metra niður í jörð­ina.

En er gagn að svona girðingu?

Um það eru skiptar skoð­anir. Þeir sem telja lítið gagn að girð­ing­unni segja að vegna þess að girð­ingin er ekki óslitin (vegir, lesta­teinar o.fl) muni villisvínin, eins og önnur dýr, finna þá staði sem rof er í girð­ing­unni og þannig kom­ast leiðar sinnar. Aðrir segja að reynslan sýni að svona girð­ingar dugi vel. Þótt hugs­an­legt sé að ein­hver villisvín kom­ist gegnum girð­ing­una yrði það aldrei nema mjög tak­mark­aður fjöldi.

Kostn­að­ur­inn er áætl­aður 80 millj­ónir danskra króna (ca 1300 millj­ónir íslenskar) sem eru ,,smá­aurar miðað við hvað er í húfi“ sagði danskur þing­maður í við­tali við danska útvarpið.

Danska umhverf­is­stofn­unin ákveður nán­ari til­högun girð­ing­ar­innar, hvar hún kemur til með að liggja o.s.frv. Tals­maður stofn­un­ar­innar sagði í við­tali við dag­blaðið Jót­land­s­póst­inn að girð­ingin færi að lík­indum um lönd 80 bænda en reynt yrði, eftir fremsta megni að búa svo um að hún lægi ekki yfir akra og tún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár