Fréttir

Lög­reglan segir að gild­andi lög hafi heft rann­sókn á meintum ISIS-liða

Þrír menn voru hand­teknir 12. jan­úar síð­ast­lið­inn í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð á Akureyri. Tveimur var sleppt en sá þriðji, sem var grun­aður um aðild að ISIS-hryðju­verka­sam­tök­unum, var sendur úr landi ásamt fjöl­skyldu sinni. Lögregla hefur lítið tjáð sig um málið vegna rann­sókn­ar­hags­muna. Í svörum lög­reglu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar er þess þó getið að lög­regla hafi ekki verið heim­i­ilt að nota allar upp­lýs­ing­arnar sem var miðlað til hennar við rann­sókn máls­ins vegna gild­andi lagaum­hverfis.
Fréttir

„Ekkert toppar vinnu­brögðin í þessu grafal­var­lega máli“

Formaður Afstöðu seg­ist hafa „horft upp á marga vit­leys­una þegar kemur að föngum með marg­þættan vanda“ en ekk­ert toppi vinnu­brögðin þegar kemur að með­ferð á fanga sem nýlega var sjálf­ræð­is­sviptur án laga­heim­ildar og þving­aður til að taka geð­lyf. Yfir­læknir á sama sjúkra­húsi og neit­aði mann­inum um vistun var í hlut­verki dóm­kvadds mats­manns í mál­inu.
2:40
FréttirÁrásir á Gaza

Katrín segir allar líkur til þess að fram­lagið til UNRWA skili sér

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra telur að fram­lagið til Palest­ínu­flótta­manna­að­stoðar Sam­ein­uðu þjóð­anna muni skila sér. Ísland þurfi að leggja sitt af mörkum til að sinna skyldum sínum gagn­vart mann­úð­ar­krís­unni á Gasa. Utan­rík­is­ráð­herra hefur til­kynnt við­bót­ar­fjár­lög til Rauða kross­ins vegna ástands­ins fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs.
Fréttir

Sprungu­fyll­ingar búa til ný og hættu­legri vanda­mál

Þrír af reynd­ustu jarð­vís­inda­mönnum lands­ins telja það hafa verið mis­ráðið að reyna að fylla upp í sprungur í Grinda­vík í kjöl­far ham­far­anna í nóv­em­ber. „Ég held að þar hafi menn valið ranga leið,“ segir Páll Ein­ars­son. Ármann Hösk­ulds­son telur hægt að fylla í sprungur en þeir sem taki slíkar ákvarð­anir verði að hafa í huga að ekki dugi að „sturta í gatið og vita ekk­ert hvað maður er að gera“.
Skýring

Spilling á Íslandi aldrei mælst meiri – Nú í nítj­ánda sæti á lista Transparency

Norð­ur­löndin, utan Íslands, raða sér í efstu sætin á lista Transparency International yfir minnst spilltu lönd heims. Ísland heldur hins vegar áfram að falla niður list­ann og situr nú í nítj­ánda sæti hans. Fjöldi mútu­mála, einka­væð­ing Íslands­banka, Sam­herj­a­málið, óreiða stjórn­mála­flokka og spillt fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfi eru nefnd sem dæmi sem dragi úr til­trú almenn­ings á góðri stjórn­sýslu.

Mest lesið undanfarið ár