Fréttir

Kristín Jóns­dóttir ósam­mála túlk­unum starfs­bræðra sinna

Kristín Jóns­dóttir, fag­stjóri nátt­úru­vár á Veð­ur­stofu Íslands, seg­ist ekki geta tekið undir með starfs­bræðrum sínum Þorvaldi Þórð­ar­syni og Ármanni Hösk­ulds­syni sem telja nýlegar jarð­skjálfta­hrinur vera til marks um að Brenni­steins­fjalla­kerfið sé að vakna til lífs­ins. Engar mæl­ingar bendi til kviku­hreyf­ingar. Skjálft­arnir eru senni­lega af völdum þekkts mis­gengis sem er á svæð­inu.
SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Leyndin yfir húsa­máli Elliða bæj­ar­stjóra

Heim­ildin hefur í rúmt ár birt fréttir af við­skiptum Elliða Vign­is­sonar, bæj­ar­stjóra í Ölfusi, með hús í sveit­ar­fé­lagi sem umsvifa­miklir námu­fjár­festar seldu honum á óljósum kjörum. Bæj­ar­stjór­inn hefur neitað að leggja fram gögn um við­skiptin eða greina frá þeim í smá­at­riðum. Á meðan stendur yfir umræða í sveit­ar­fé­lag­inu um bygg­ingu möl­un­ar­verk­smiðju sem þjónar hags­munum fjár­fest­anna.
Erlent

Útlend­inga­andúð eykst á Norð­ur­löndum en líka umburð­ar­lyndi

Pró­fessor við Bergen­há­skóla segir upp­gang öfga­hægri­afla á Norð­ur­lönd­unum skýr­ast af skynjun almenn­ings á ósann­girni vegna þess fjölda flótta­fólks sem tekið er við á milli landa og stjórn­leysi yfir­valda í mála­flokknum, ásamt van­getu hefð­bund­inna flokka til að vinna að sam­hæfðri stefnu. Umræðan stjórn­ist af öfga­hægr­inu sem leiki á sál­fræði­legt eðli mann­vera. Umburð­ar­lyndi og stuðn­ingur við fjöl­breytt­ari sam­fé­lög hafi þó einnig auk­ist á sama tíma.

13 mín. lestur

FréttirPlastbarkamálið

Upp­ljóstr­arar: „Plast­barka­málið er ennþá opið sár“

Tveir af upp­ljóstr­ur­unum í plast­barka­mál­inu svo­kall­aða, Karl Henrik Grinnemo og Oscar Simons­son, lýsa reynslu sinni af því að segja frá því sem gerð­ist á Karol­inska-sjúkra­hús­inu þar sem þeir unnu. Karl Henrik seg­ist hafa verið með sjálfs­vígs­hugs­anir eftir að hann varð fyrir hefnd­ar­að­gerðum innan Karol­inska-sjúkra­húss­ins. Þeir segja að upp­gjör­inu við plast­barka­málið sé hvergi nærri lokið í Svíþjóð og að gera þurfi almenni­lega rann­sókn á því þar.

10 mín. lestur

SkýringEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Verka­lýðs­for­kólfur á Aust­ur­landi um aukna einka­væð­ingu: „Ég held að þetta sé mjög hættu­legt“

Heil­brigð­is­ráðu­neytið hefur kynnt til­lögur um að einka­fyr­ir­tæki fái í auknum mæli að byggja hjúkr­un­ar­heim­ili hér landi. Mikill skortur er á hjúkr­un­ar­rýmum hér á landi og Willum Þór Þórsson segir að þessi leið leysi vand­ann. Forseti ASÍ og þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar eru gagn­rýnin á hug­mynd­irnar og segja þær snú­ast um enn frek­ari einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu.

Mest lesið undanfarið ár