Fréttir

Almanna­varnir rann­saka sjálfar sig eftir að rann­sókn­ar­nefnd var aflögð

Þrátt fyrir ítrekað almanna­varnar­á­stand á und­an­förnum árum og for­dæma­lausar íþyngj­andi aðgerðir í tengslum við þær, lögðu stjórn­völd niður nefnd sem ætlað var að rann­saka hvernig yfir­völd almanna­varna færu að í slíku ástandi. Dóms­mála­ráð­herra færði eft­ir­litið yfir til almanna­varna sjálfra eftir að hafa rök­stutt það að leggja af nefnd­ina, með þeim rökum að hans eigin ráðu­neytið hefði aldrei gert henni kleift að sinna skyldum sínum.
Pistill

Illugi Jökulsson

Katrín, Bjarni og Sigurður Ingi og rýt­ing­ur­inn í bak Palest­ínu

Á dög­unum voru fimm menn hand­teknir í Úkraínu og sá sjötti náð­ist á flótta yfir landa­mærin. Sumir þeirra eru kaup­sýslu­menn, aðrir starfs­menn varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins í Kyiv. Þeir eru grun­aðir um að hafa dregið sér 40 millj­ónir doll­ara af pen­ingum sem vina­ríki Úkraínu lögðu fram til kaupa á skot­færum og það er víst eng­inn vafi á að þeir séu sekir. Þetta er...
Saga

79 ár frá frelsun Auschwitz: 245 þús­und fórn­ar­lömb helfar­ar­innar enn á lífi

Í dag, 27. jan­úar 2024, eru 79 ár síðan 332. riffla­deild 60. hers Sov­ét­ríkj­anna hrakti þýskar varn­ar­sveitir burt frá þremur smá­þorpum í suð­ur­hluta Póllands, nánar til­tekið í Slesíu, sem Hitlers-Þýska­land hafði inn­limað haustið 1939. Þorpin hétu Monowitz, Birkenau og Auschwitz og stóðu í þéttum hnapp við ána Sola. Hinn Rauði her Sov­ét­ríkj­anna hóf þann 12. jan­úar mikla sókn við og yfir...
GagnrýniLúna

Fegurð og ljót­leiki Heiðars snyrtis

Salvör Gullbrá Þór­ar­ins­dóttir sá verkið Lúna eftir Tyrfing Tyrf­ings­son sem nú er sýnt í Borg­ar­leik­hús­inu og hefur vakið tölu­verða umræðu. Hún spyr áleit­inna spurn­inga um verkið – á ýmsa kanta. Spurn­inga á borð við: Skiptir máli að Heiðar hefur við­ur­kennt brot sín, fengið dóm og afplánað hann? Skiptir máli hversu langur tími hefur liðið? Hefði átt að taka verkið af dag­skrá?
Greining

Skautun innan rík­is­stjórnar í mál­efnum flótta­manna

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og fylgj­endur hans boða nú nýjan og harð­ari tón í mál­efnum flótta­fólks en áður hefur heyrst frá for­ystu hans. Sá tónn er í and­stöðu við stefnu Vinstri grænna, flokks for­sæt­is­ráð­herra, sem hefur varað við skautun í mála­flokknum, sagt að ekki væri hægt að líða orð­ræðu sem feli í sér hatur og tor­tryggni gagn­vart inn­flytj­endum og sagt hana leiða af sér „að fólk velur sér sann­leika, óháð stað­reyndum og breiðir þannig út hæpnar og jafn­vel rangar upp­lýs­ingar“.

9 mín. lestur

Fréttir

Ungmenni stofna banka­reikn­inga án vit­neskju for­eldra sinna

Ungmenni á aldr­inum 13 til 18 ára geta hæg­lega stofnað debet­korta­reik­in­ing án vit­undar for­eldra eða for­ráða­manna sinna. Fram­farir í fjár­tækni og not­enda­vænni banka­þjón­ustu hafa leitt til þess að börn geta stofnað reikn­ing sem for­eldrar hafa enga vit­neskju um. Börn sem hafa fengið raf­ræn skil­ríki geta á örskots­stundu stofnað debet­korta­reikn­ing á vin­sælum smá­forritum á borð við Aur. Með slíkum reikn­ingum geta ung­menni tekið við og miðlað greiðlsum án eft­ir­lits.
Fréttir

Prestar mót­mæla brott­vísun barns­haf­andi konu

Prestar Ástjarn­ar­kirkju í Hafn­ar­firði sendu áskorun á yfir­völd í dag og mót­mæltu fyr­ir­hug­aðri brott­vísun fjög­urra, bráðum fimm, manna fjöl­skyldu. Í fjöl­skyld­unni eru tvö börn: Mike litli sem er á öðru ári og hin ell­efu ára gamla Samara. Lítið systk­ini er á leið­inni. Prest­arnir vilja að yfir­völd veiti fjöl­skyld­unni dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða.

Mest lesið undanfarið ár