Fréttir

Ellefu þús­und tonn af kjúklingi í kjöt­borðum lands­manna árið 2023

Inn­flutn­ingur á kjöti jókst um 17 pró­sent árið 2023 og nær sú aukn­ing yfir allar helstu kjöt teg­undir. Lang mest var flutt inn af ali­fugla­kjöti, sem er aðal­lega kjúklingur. Í ljósi þess að inn­lend fram­leiðsla á því hefur auk­ist mikið und­an­farin ár og tekið fram úr fram­leiðslu á kinda­kjöti má því með sanni segja að Íslend­ingar séu sólgnir í kjúklinga­kjöt sem aldrei fyrr.
Erlent

Evr­ópu­sam­bandið sam­þykkir að veita Úkraínu 50 millj­arða evra stuðn­ing

Þvert á svart­sýnar spár hafa leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ins kom­ist að sam­komu­lagi um fjár­stuðn­ing til Úkraínu um 50 millj­arði evra. Andstaða Viktor Orbáns, for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands, hefur komið í veg fyrir stuðn­ing­inn hingað til en hann beygði sig á end­anum. Repúblikanar í Banda­ríkj­unum halda frek­ari stuðn­ingi þaðan í gísl­ingu til að gagn­ast for­seta­fram­boði Donalds Trump.
Skýring

Sig­mundur Davíð súr yfir Smiðj­unni – Hann vildi hús sem var teiknað 1916

Þingmenn Mið­flokks­ins eru sér­stak­lega ósáttir við nýtt skrif­stofu­hús­næði Alþingis. Formaður Mið­flokks­ins, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, segir að betur hefði farið ef hönnun húss­ins hefði verið í anda til­lögu sem hann lagði fyrir rík­is­stjórn­ina sínum tíma sem for­sæt­is­ráð­herra. Hann lét gera jóla­kort með þeirri til­lögu í aðdrag­anda jóla 2015.
Flækjusagan

Þegar Norð­ur­löndin runnu saman: Margrét drottn­ing og slag­ur­inn í Åsle

Þann 24. febr­úar 1389 mætt­ust herir tveir gráir fyrir járnum skammt utan við smá­þorpið Åsle í suð­ur­hluta Sví­þjóðar, þetta var á mýr­lendu svæði milli stóru vatn­anna Vättern og Vänern, ekki langt frá Jönk­öp­ing. Um það bil þús­und dátar voru í hvorum her og fór sjálfur kon­ung­ur­inn yfir Svíaríki fyrir öðrum þeirra, hans tign Albrekt af Mek­len­búrg. Hann var fyrst og fremst þýskur her­toga­sonur en hafði verið val­inn kon­ungur Svía þegar hásætið var um stund laust þar í landi 1364.
FréttirSr. Friðrik og drengirnir

For­seta­emb­ættið getur ekki aft­ur­kallað fálka­orðu séra Friðriks

Einungis er hægt að að aft­ur­kalla rétt fálka­orðu­hafa sem eru á lífi til að bera orð­una. Þegar orðu­hafar falla frá fellur rétt­ur­inn til að bera orð­una niður. Dæmi er um að rétt­ur­inn til að bera fálka­orð­una hafi verið aft­ur­kall­aður en þetta mun ekki að ger­ast í til­felli séra Friðriks Frið­riks­sonar.
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.
Viðtal

Stríð magna upp menn­ing­ar­á­tök

Magnús Þorkell Bern­harðs­son, pró­fessor í sögu Mið-Aust­ur­landa í Banda­ríkj­unum, lýsir því hvernig menn­ing­ar­á­tökin hafa stig­magn­ast þar í landi, sam­hliða stig­mögnun stríðs­ins fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs. Í Banda­ríkj­unum snú­ast deil­urnar meðal ann­ars um að gagn­rýni á Ísrael sé lögð að jöfnu við gyð­inga­hatur, eins og í Þýska­landi og víðar í Evrópu. Hér er umræðan svipuð, um að mót­mælin gegn stríðs­á­tök­unum hafi gengið of langt þótt deilan snú­ist helst um hvernig tekið sé á útlend­inga­málum.

16 mín. lestur

Flækjusagan

Illugi Jökulsson

Lögmaður Trumps úr óvæntri og ævafornri átt — og kirkju!

Donald Trump á um þessar mundir í marg­vís­legu stappi í banda­rískum rétt­ar­sölum og berst þar á mörgum víg­stöðvum. Meðal lög­fræð­inga hans er Alina nokkur Habba og er óhætt að segja að hún hafi vakið heil­mikla athygli með vask­legri en ekki að sama skapi ígrund­aðri frammi­stöðu. Dómari við ein rétt­ar­höldin hefur margoft sett ofan í við hana og jafn­vel hæðst að...

Mest lesið undanfarið ár