Fréttir

Umferð­ar­hnút­ur­inn á Sæbraut skynj­urum að kenna

Gríð­ar­leg umferð hefur verið á Sæbraut­inni í Reykja­vík síð­ast­liðnar vikur. Sam­göngu­stjóri Reykja­vík­ur­borgar segir þetta vera vegna ótengdra skynjara á gatna­mótum við braut­ina. Tekið hafi tíma að ráða bót á því vegna fálið­unar og veik­inda. Fram­kvæmda­stjóri Strætó segir ferðir stræt­is­vagna sem leið áttu eftir Sæbraut­inni hafa verið allt að rúmum klukku­tíma á eftir áætlun.
FréttirReykjaneseldar

Gestum Bláa lóns­ins beint um veg á sprungu­svæði

Sprungur vestan Grinda­víkur hafa loks verið birtar á upp­færðu hættu­mat­skorti Veð­ur­stof­unnar. Um þetta svæði liggur nú hjá­leið gesta í Bláa lónið. En svæðið fær engan lita­kóða á kort­inu til að und­ir­strika hvaða hættur þar sé að finna. Fyllt var upp í stórar sprungur á Nesvegi um miðjan nóv­em­ber, veg­inn sem ferða­mönnum, jafn­vel í stórum rútum, er nú beint um.
ViðtalFöst á Gaza

Börnin sem bíða á Gaza

Heim­ildin hefur rætt við aðstand­endur rúm­lega sjö­tíu ein­stak­linga sem fastir eru á Gaza, for­eldra sem ótt­ast um afdrif barna sinna og börn sem ótt­ast um líf for­eldr­anna. Algjör örvænt­ing birt­ist hjá þeim öllum, sem eru á Íslandi og þurfa að leggja líf fjöl­skyldu­með­lima í hendur íslenskra stjórn­valda. Auk þess að biðla til stjórn­valda að ná fjöl­skyldum þeirra heim, biðla þau til þeirra að gera ekki grein­ar­mun á íslenskum börnum og palest­ínskum.

17 mín. lestur

ViðtalFéll í sprungu í Grindavík

Leituðu svara en fengu sím­svara

Enginn af þeim sem kom að ákvörð­unum eða bar ábyrgð á málum í Grinda­vík, þegar Lúðvík Pét­urs­son hvarf ofan í sprungu, hefur sett sig í sam­band við börn hans eða systk­ini eftir að leit að honum var hætt. „Ósvöruðum spurn­ingum hefur bara fjölgað,“ segir Elías Pét­urs­son, bróðir hans. Það sé sorg­lega íslenskt að þurfa að stíga fram og berj­ast fyrir óháðri rann­sókn. Óboðlegt sé að yfir­völd rann­saki sig sjálf.

12 mín. lestur

FréttirFöst á Gaza

Sex vikna og kemst ekki til föður síns án vega­bréfs

Abdulkarim Alzaq er aðeins sex vikna gam­all. Þessa stuttu ævi hefur hann búið í tjaldi á Gazasvæðinu. Hann á föður á Íslandi sem hefur ekki tek­ist að fá sam­þykkt dval­ar­leyfi hér fyrir son­inn unga vegna þess að hann á ekki vega­bréf; ekki frekar en flest önnur börn sem hafa fæðst á Gazasvæðinu á síð­ustu mán­uðum. Lögin heim­ila und­an­þágu frá þess­ari kröfu en þeirri und­an­þágu hefur Útlend­inga­stofnun ekki beitt.
Fréttir

Formaður Leigj­enda­sam­tak­anna segir frétta­til­kynn­ingu HMS vera „aðför að leigj­endum“

Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) er greint frá því að vaxta­hækk­anir síð­ustu ára hafa leitt til þess að greiðslu­byrði lána hafi auk­ist umfram leigu­verðs­hækk­anir. Samkvæmt grein­ingu HMS er greiðslu­byrðin orðin allt að 40 pró­sentum hærri en leigu­verð. Formaður Leigj­enda­sam­tak­anna segir HMS fara með rangt mál og til­kynn­ing­una vera til þess fallna að afvega­leiða umræð­una.
FréttirFöst á Gaza

„Það er engum hollt að vera hérna úti mjög lengi“

Mjög vannærð unga­börn, alvar­lega særður ung­lings­piltur, eldri maður sem er fár­veikur af krabba­meini. Þetta fólk, og fleira, er á leið út af Gazasvæðinu fyrir til­stilli íslenskra sjálf­boða­liða í Kaíró. „Við getum ekki setið hjá og horft á þjóð­ar­morð í beinni útsend­ingu eins og íslensk stjórn­völd virð­ast geta gert,“ segir einn sjálf­boða­lið­anna: Sema Erla Serdaroglu.
AðsentFöst á Gaza

Ole Anton Bieltvedt

Þegar menn skortir ekki aðeins mannúð og mann­kær­leika, heldur líka heil­indi og heið­ar­leika

Ole Ant­on Bielt­vedt gagn­rýnir Bjarna Bene­dikts­son, utan­rík­is­ráð­herra í aðsendri grein. Ole þykir rétt og heið­ar­leg leið að setja fullan kraft í það að hjálpa fólk­inu á Gasa á grund­velli mann­úðar og veittra dval­ar­leyfa, til að kom­ast út úr því víti, sem því er haldið í, yfir til Kaíró.

Mest lesið undanfarið ár