Allt af létta

„Fagn­að­aróp um alla ganga og öllum rýmum skól­ans“

Lista­há­skóli Íslands var fljótur að sam­þykkja til­boð háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra um óskert fjár­fram­lög gegn afnámi skóla­gjalda. Sama dag og ráð­herra kynnti breyt­ing­arnar á háskóla­kerf­inu sendi Kristín Eysteins­dóttir, rektor Lista­há­skól­ans, út tölvu­póst þar sem nem­endum og starfs­fólki var til­kynnt um að skóla­gjöld verði felld niður frá og með næsta hausti.
29:43
FréttirPressa

Bróðir Lúðvíks skilur ekki hvers vegna rann­sókn­ar­nefnd almanna­varna var lögð niður

Elías Pét­urs­son, bróðir Lúðvíks Pét­urs­sonar sem féll ofan í sprungu í Grinda­vík fyrir fimm vikum síðan, segir í sam­tali við Heim­ild­ina að hann skilji ekki hvers vegna rann­sókn­ar­nefnd almanna­varna var lögð niður. Hefði sú nefnd verið til staðar hefði fjöl­skylda Lúðvíks mögu­lega getað fengið skýr­ari svör við mörgum spurn­ingum sem enn hefur ekki verið svarað.
Fréttir

Fimm ár verði hámarks­rann­sókn­ar­tími saka­mála

Þingmenn fimm flokka hafa lagt til að lög­reglu verði gert að hætta rann­sókn saka­máls fylgi henni ekki ákæra að ári liðnu. Hægt verði þó að fram­lengja rann­sókn­ina um ár í senn að hámarki fimm sinnum. Hildi Sverr­is­dóttur, þing­flokks­for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrsta flutn­ings­manni, þykir þetta eðli­legt í öfl­ugu og sann­gjörnu rétt­ar­ríki. Hér­aðs­sak­sókn­ari seg­ist ekki kann­ast við slík lög í öðrum löndum.
Fréttir

Jafn­að­ar­stefnan hafi prinsipp sem ekki gef­ist afsláttur af

Helga Vala Helga­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að ekk­ert sama­sem­merki sé á milli laskaðra inn­viða og fólks á flótta. Nokkur ólga hefur verið meðal jafn­að­ar­manna eftir að for­maður flokks­ins boð­aði breytta stefnu í mál­efnum hæl­is­leit­enda. Helga Vala vildi ekki tjá sig um hvort að skrif hennar tengd­ust nýlegum ummælum Kristrúnar Frosta­dóttur.
Fréttir

Stúd­enta­fé­lag Háskól­ans í Reykja­vík leggst gegn til­boði ráð­herra

Í ályktun sem Stúd­enta­fé­lag Háskól­ans í Reykja­vík sendi frá sér vegna til­boðs háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra um áfnám skóla­gjalda einka­rek­ina háskóla er úrræðið sagt fela í sér 15 pró­sent nið­ur­skurð á rekstri skól­ans. Stúd­enta­fé­lagið kallar eftir fullum fjár­fram­lögum án kröfu um áfnám skóla­gjalda.

Mest lesið undanfarið ár