FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
ViðtalStarfsumhverfi klassískra söngvara

Fáránleg ákvörðun fyrir klass­íska söng­konu

Björk Níels­dóttir er söng­kona, trompet­leik­ari, jazzari, popp­ari, rokk­ari, klassíker, þjóð­laga­grúsk­ari, tón­smiður og sviðs­leik­kona. Hún ræðir hér starfs­um­hverfi sitt við Thelmu Hrönn Sig­ur­dórs­dóttur. Viðtalið er sprottið af rann­sókn sem Thelma og Guja Sandholt gerðu saman í sam­vinnu við Nýsköp­un­ar­sjóð og Heim­ild­ina – um starfs­um­hverfi fag­lærða söngv­ara á Íslandi.
FréttirFöst á Gaza

Sex vikna Abdulkarim fær dval­ar­leyfi

Hinn sex vikna Abdulkarim Alzaq frá Palest­ínu er kom­inn með dval­ar­leyfi hér á landi ásamt fjórum systk­inum sínum og móður. Hér býr fyrir faðir hans, Mohammed Alsaq, sem reyndi vikum saman að fá sam­þykkta fjöl­skyldu­sam­ein­ingu án árang­urs því Abdulkarim átti ekki vega­bréf. Eftir við­tal Heim­ild­ar­innar á föstu­dag sam­þykkti Útlend­inga­stofnun sam­ein­ing­una.
ViðtalStarfsumhverfi klassískra söngvara

Íslenskt sam­fé­lag togar mig heim, en ekki tón­list­ar­lífið

Bjarni Thor Krist­ins­son starfar aðal­lega við óperu­söng erlendis en hann hefur þó verið mun lengur í sviðs­listum, alveg síðan hann var barn. Hann ræðir starfs­um­hverfi sitt við Thelmu Hrönn Sig­ur­dórs­dóttur. Viðtalið er sprottið upp úr rann­sókn sem Thelma og Guja Sandholt gerðu saman í sam­vinnu við Nýsköp­un­ar­sjóð og Heim­ild­ina – um starfs­um­hverfi fag­lærða söngv­ara á Íslandi.
FréttirPressa

Magnús beið eftir langvar­andi með­ferð þegar hann dó

Móðir 19 ára drengs og systir konu sem lét­ust í fyrra af völdum lyfja­eitrana segja að hugs­an­lega hefði verið hægt að bjarga þeim ef hér hefði verið starf­rækt bráða­þjón­usta fyrir fíkni­sjúk­linga. Þau hafi bæði verið að bíða eftir að fá lækn­is­hjálp þegar þau dóu. Þing­maður Við­reisnar segir alltof mörg dæmi um það á Íslandi að fólk deyi meðan það bíði eftir að fá hjálp.
FréttirRáðning Lúðvíks Arnar Steinarssonar til Garðabæjar

Fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ var með­mæl­andi Lúðvíks

Gunnar Ein­ars­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ, var með­mæl­andi Lúðvíks Arnar Stein­ars­sonar í starf sviðs­stjóra hjá bænum. Lúðvík Örn hefur um ára­bil gegnt trún­að­ar­störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Garðabæ. Meiri­hlut­inn í Garðabæ ákvað að ráða Lúðvík Örn fram yfir konu sem er bæj­ar­rit­ari í Mos­fellsbæ.
SkýringRannsókn á einelti í Menntasjóði

Ráðu­neytið hefur lokið rann­sókn á ein­elt­is­máli í Mennta­sjóði náms­manna

Háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið hefur síð­ast­liðið ár haft til rann­sóknar meint ein­elti hjá rík­is­stofn­un­inni Mennta­sjóði náms­manna. Ráðu­neyt­is­stjór­inn hefur fengið málið inn á sitt borð og mun taka ákvörðun um næstu skref. Rann­sóknin bein­ist að fram­kvæmda­stjóra sjóðs­ins, Hrafn­hildi Ástu Þor­valds­dóttur, og sam­skiptum hennar við starfs­mann á fimm­tugs­aldri sem svo lét af störfum.
ViðtalReykjaneseldar

„Mjög gott að eng­inn búi eða vinni í Grinda­vík“

Teymi undir for­ystu Gregory Paul De Pascal, dokt­ors í jarð­skorpu­hreyf­ingum og eins fremsta vís­inda­manns á sínu sviði í heim­inum, vakti athygli yfir­valda á því að sprungur í Grinda­vík væru á hreyf­ingu, hegðun þeirra allra og stað­setn­ing óþekkt og að hætt­urnar gætu verið lúm­skar. Fyrsta sprungan sem upp­götv­að­ist eftir myndun sigdals­ins í nóv­em­ber var fyrst í síð­ustu viku sett inn á hættu­mat­skort Veð­ur­stof­unnar eftir ein­dregin til­mæli Gregorys þar um.

8 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár