22 létust á einum degi í Svíþjóð: Sænsk stjórnvöld vænd um fórna mannslífum með stefnu sinni
GreiningCovid-19

22 lét­ust á einum degi í Svíþjóð: Sænsk stjórn­völd vænd um fórna manns­lífum með stefnu sinni

62 ein­stak­lingar eru nú látnir í Svíþjóð út af kór­óna­veirunni. Sænsk stjórn­völd hafa verið gagn­rýnd fyrir stefnu sína gegn kór­óna­veirunni sem meðal ann­ars gengur út á að byggja upp hjarð­ó­næmi hjá sænsku þjóð­inni. Sænskir vís­inda­menn hafa kallað stefn­una „kalkúler­aða“ og „kald­lynda“ á meðan sótt­varn­ar­læknir rík­is­ins segir að það geti vel farið saman að vernda gamla og veika fyrir veirunni að reyna að ná hjarð­ó­næmi sam­tímis.
Þýsk yfirvöld auka viðbúnað eftir hryðjuverkaárás hægri öfgamanns
Greining

Þýsk yfir­völd auka við­búnað eftir hryðju­verka­árás hægri öfga­manns

Öfga hægri­mað­ur­inn sem skaut tíu til bana á mið­viku­dag sendi frá sér 24 blað­síðna stefnu­yf­ir­lýs­ingu þar sem hann sagði til­tekna þjóð­fé­lags­hópa hættu­lega Þýska­landi. Hann taldi land­inu stýrt af leyni­legu djúp­ríki og var yfir­lýstur stuðn­ings­maður banda­ríkja­for­seta. Þjóð­verjar ótt­ast frek­ari árásir á inn­flytj­endur og efla lög­gæslu við við­kvæma staði.
Samherjamálið: Ekki skilyrði að menn séu dæmdir til að hægt sé að tala um mútugreiðslur
GreiningSamherjaskjölin

Sam­herj­a­málið: Ekki skil­yrði að menn séu dæmdir til að hægt sé að tala um mútu­greiðslur

Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Samherja, heldur því fram að ekki sé hægt að segja að Samherji hafi greitt mútur af því eng­inn starfs­maður fyr­ir­tæk­is­ins hafi verið ákærður og dæmdur fyrir þetta. Sænskur mútu­sér­fræð­ingur, Natali Phálen, segir að oft sé það þannig í mútu­málum fyr­ir­tækja að eng­inn sé dæmdur fyrir mút­urnar en að þær telj­ist þó sann­aðar.
Samherji hefur farið í hring í málsvörn sinni á tveimur mánuðum
GreiningSamherjaskjölin

Samherji hefur farið í hring í málsvörn sinni á tveimur mán­uðum

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji hóf málsvörn sína í mútu­mál­inu í Namibíu á að segja að lög­brot hafi átt sér stað en að þau hafi verið Jóhann­esi Stef­áns­syni einum að kenna. Þegar sú málsvörn gekk ekki upp hafn­aði Björgólfur Jóhanns­son því að nokkur lög­brot hafi átt sér stað. Svo til­kynnti Samherji um inn­leið­ingu nýs eft­ir­lits­kerfis út af mis­brestum á starf­semi félags­ins í Namibíu og virt­ist þannig gang­ast við sekt að ein­hverju leyti.

Mest lesið undanfarið ár