Mynd: Pressphotos

Óvinir alþýðunnar: Herská orðræða nýja sósíalistans

Gunnar Smári Egilsson, stofn­andi og for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands, leggur áherslu á að upp­ræta óskil­greinda elítu og kemur popúl­isma til varnar. Óvina­list­inn leng­ist og krafan um völd verður hávær­ari.

„Kap­ít­al­ism­inn brýtur niður sam­fé­lög, eyði­leggur nátt­úru­gæði og fram­kallar hel­víti á jörðu. Samt er til fólk sem segir við getum ekki lifað nema innan þessa hel­vítis, að það sé það besta sem okkur standi til boða. Svo eru þau sem trúa að hægt sé að byggja upp betra sam­fé­lag, eitt­hvað skárra en hel­víti.

Stétta­stríðið er grunn­á­tök í öllum sam­fé­lögum.“

Hver skrifar svo? Karl Marx á nítj­ándu öld? Lenín í upp­hafi hinnar tutt­ug­ustu? Maó for­maður fáum ára­tugum síðar?

Eða jafn­vel Kastró á sjötta áraugnum?

Það eru senni­legar til­gátur, en í þessu til­viki rangar.

Þetta skrif­aði for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands nýlega. Flest nánar til­tekið fjórða jan­úar 2020.

Orð skipta máli

Þessi grein er ekki um efn­is­at­riði í mál­flutn­ingi Gunnars Smára Egils­sonar umfram það sem óhjá­kvæmi­legt er.

Hún er um orða­notkun og hug­taka­notkun.

Í kjöl­far hruns­ins breytt­ist póli­tísk umræða á Íslandi. Tals­verður hluti lands­manna varð ekki  bara fyrir fjár­hags­legu áfalli, heldur til­finn­inga­legu líka, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár