Bæj­ar­stjóri á vett­vangi flug­slyss Bæj­ar­stjóri í Petr­opa­vlovka í Donetks í aust­ur­hluta Úkraínu þar sem flak Boein-777 vélar Mala­ysian air­lines lenti, eftir að rúss­neskir aðskiln­að­ar­sinnar skutu hana niður sum­arið 2014. Mynd: Shutterstock

Ólánssaga úkraínskra flugvéla

Flug­vélar frá og yfir Úkraínu hafa reglu­lega lent í vanda. Milli­ríkja­deilur eiga stundum sök.

Fáir hefðu átt von á því í upp­hafi árs að úkra­ínskt flug­fé­lag myndi lenda í mið­punkti deilna Banda­ríkj­anna og Íran, tveggja ríkja sem virð­ast reglu­lega ramba á barmi stríðs. Þó er margt hér sem virð­ist und­ar­lega kunn­ug­legt.

Boeing 737-800 far­þega­vél úkra­ínska flug­fé­lags­ins UIA brot­lenti í úthverfi Teheran þann 8. jan­úar, með þeim afleið­ingum að allir 176 far­þegar og áhöfn létu lífið. Dagurinn er reyndar annar í jólum sam­kvæmt orþódox­kirkj­unni sem flestir Úkra­ínu­menn til­heyra. Á tímum Sov­ét­ríkj­anna var ekki vel séð að halda upp á kirkju­legar hátíðir svo öll áhersla fór í stað­inn á gamlárs­kvöld sem hefur lítið með trú­ar­brögð að gera. Eftir fall Sovét hafa kirkju­jólin þó aftur orðið að hátíð­is­dögum. Zelensky for­seti, sem var gam­an­leik­ari áður en hann sneri sér að stjórn­málum og hefur tekið á móti kollega sínum Jóni Gnarr, ákvað að verja jóla­fríi sínu í Oman við Persaflóa. Þangað flaug hann á eigin kostnað og vildi ræða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár