Heimilin greiddu 37 milljarða í bein og óbein þjónustugjöld vegna notkunar á greiðslukortum
Greining

Heimilin greiddu 37 millj­arða í bein og óbein þjón­ustu­gjöld vegna notk­unar á greiðslu­kortum

Hreinar tekjur fyr­ir­tækja í greiðslu­miðlun voru næstum 33 millj­arðar króna árið 2022 og hækk­uðu um 37 pró­sent milli ára. Sú hækkun var einkum vegna þjón­ustu­gjalda á greiðslu­kortum. Hver debet­korta­færsla erlendis kost­aði 118 krónur og 177 krónur ef kredit­kort var notað. Í bígerð er óháð smá­greiðslu­lausn á vegum Seðla­banka Íslands sem þurrkar út stóran hluta af kostn­að­inum, ákveði heim­ilin að nota hana. Hún gæti verið í boði síðar á þessu ári.
Fimm ráðherrar í hættu á að detta af þingi og Samfylkingin með fleiri þingmenn en stjórnin
Greining

Fimm ráð­herrar í hættu á að detta af þingi og Sam­fylk­ingin með fleiri þing­menn en stjórnin

Sam­fylk­ingin myndi fá fjórum þing­mönnum fleiri en allir stjórn­ar­flokk­arnir til sam­ans ef kosið yrði í dag. Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri græn og Framsókn myndu tapa helm­ingi þing­manna sinna og mæl­ast nú með minni stuðn­ing en flestar fyrri rík­is­stjórnir rétt áður en þær misstu völdin. Fimm flokka þyrfti til að mynda rík­is­stjórn, með minnsta mögu­lega meiri­hluta, ef slík ætti ekki að inni­halda Sam­fylk­ing­una.
Íslendingar hrista upp í evrópsku tabúi
Greining

Íslend­ingar hrista upp í evr­ópsku tabúi

Þátttaka Íslands – og Ísraels – í Eurovision hefur valdið ólg­andi umræðu bæði hér­lendis og á erlendri grundu. Miklir hags­munir, fjár­hags­legir, menn­ing­ar­legir og póli­tískir liggja undir. Enn er óljóst hver end­an­leg ákvörðun RÚV verður, en mót­mæli íslensks tón­list­ar­fólks hafa vakið gríð­ar­lega athygli á alþjóða­vett­vangi. Hvaða þýð­ingu hefur Eurovision fyrir sam­fé­lagið – og RÚV? Já, eða bara Evrópu?
Afkoma Icelandair langt undir væntingum og bréfin hríðféllu
Greining

Afkoma Icelandair langt undir vænt­ingum og bréfin hríð­féllu

Icelandair Group skil­aði hagn­aði í fyrsta sinn í sex ár á síð­asta ári, en sá hagn­aður var tölu­vert undir því sem stefnt hafði verið að. Fimm árin áður hafði félagið tapað sam­tals 80 millj­örðum króna, fengið meiri rík­is­styrki en nokkuð annað fyr­ir­tæki á far­ald­urs­tímum, farið í gegnum tvær hluta­fjár­aukn­ingar sem þynntu niður fyrri hlut­hafa og staðið í ill­vígum deilum við starfs­fólk um að lækka laun þeirra og auka vinnu­á­lag.
Skautun innan ríkisstjórnar í málefnum flóttamanna
Greining

Skautun innan rík­is­stjórnar í mál­efnum flótta­manna

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og fylgj­endur hans boða nú nýjan og harð­ari tón í mál­efnum flótta­fólks en áður hefur heyrst frá for­ystu hans. Sá tónn er í and­stöðu við stefnu Vinstri grænna, flokks for­sæt­is­ráð­herra, sem hefur varað við skautun í mála­flokknum, sagt að ekki væri hægt að líða orð­ræðu sem feli í sér hatur og tor­tryggni gagn­vart inn­flytj­endum og sagt hana leiða af sér „að fólk velur sér sann­leika, óháð stað­reyndum og breiðir þannig út hæpnar og jafn­vel rangar upp­lýs­ingar“.
Af hverju dó hamingjan milli breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins?
GreiningKjarabaráttan

Af hverju dó ham­ingjan milli breið­fylk­ing­ar­innar og Samtaka atvinnu­lífs­ins?

Allt annar tónn hefur verið í kjara­bar­átt­unni nú en síð­ustu miss­eri. Við­semj­endur ætl­uðu að taka höndum saman og auka stöð­ug­leika í efna­hags­líf­inu. En svo heyrð­ist lítið af fram­gangi. Í þess­ari viku var við­ræðum slitið og deil­unni vísað til rík­is­sátta­semj­ara. Margir klór­uðu sér í hausnum og spurðu hvað hefði eig­in­lega gerst? Svarið við því er: ansi margt.
Þarf að finna tugi milljarða hið minnsta til að mæta vanda Grindavíkur
GreiningReykjaneseldar

Þarf að finna tugi millj­arða hið minnsta til að mæta vanda Grinda­víkur

Fjárlög yfir­stand­andi árs ganga út frá því að vandi Grinda­víkur sé skamm­tíma­vandi sem myndi leys­ast þegar fólk og fyr­ir­tæki flyttu til baka á vor­mán­uðum. Nú liggur fyrir að þær for­sendur eru brostnar og kostn­að­ur­inn sem hið opin­bera þarf að bera til að takast á við afleið­ing­arnar mun marg­fald­ast. Ekki liggur fyrir hvernig það verður fjár­magnað.
Sjúkratryggingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plastbarkamálinu
GreiningPlastbarkamálið

Sjúkra­trygg­ingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plast­barka­mál­inu

Plast­barka­málið hefur verið til umfjöll­unar í íslenskum og sænskum fjöl­miðlum síð­ast­liðin ár. Viss lúkn­ing er komin í málið með end­an­legum fang­els­is­dómi yfir ítalska skurð­lækn­inum Paulo Macchiarini. Þrjár íslenskar rík­is­stofn­anir komu að mál­inu, sem stimplað hefur verið sem lög­brot, en minnst hefur verið fjallað um aðkomu Sjúkra­trygg­inga Íslands að því.
Lögbrot Svandísar ýta af stað pólitískri refskák innan ríkisstjórnarinnar
Greining

Lögbrot Svan­dísar ýta af stað póli­tískri ref­skák innan rík­is­stjórn­ar­innar

Mat­væla­ráð­herra ætlar ekki að segja af sér þrátt fyrir að hafa orðið upp­vís af því að brjóta gegn lögum. Þrýst­ingur er á að hún axli ábyrgð á sama nýstár­lega hátt og Bjarni Bene­dikts­son gerði, með því að skipta um ráð­herra­stól. Gerist það muni þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks geta rétt­lætt að verja hana gegn van­traust­s­til­lögu, sem senni­legt er að stjórn­ar­and­staðan muni leggja fram. Hlið­ar­á­hrif yrðu þau að frum­varp hennar um breyt­ingar á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu gæti dagað uppi.

Mest lesið undanfarið ár