Bankasýslan hefur kostað 152 milljónir síðan ákveðið var að leggja hana niður
For­stjór­inn Jón Gunnar Jónsson hefur verið for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins frá árinu 2011. Hann hefur varið söl­una á hlut rík­is­ins í Íslands­banka í mars 2022 og sagt hana hafa verið best heppn­aða útboð Íslands­sög­unnar.

Bankasýslan hefur kostað 152 milljónir síðan ákveðið var að leggja hana niður

For­svars­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna ákváðu með yfir­lýs­ingu sem birt var í apríl 2022 að Banka­sýsla rík­is­ins yrði lögð niður. Samhliða var greint frá því að ekk­ert yrði selt í rík­is­bönkum fyrr en nýtt fyr­ir­komu­lag og ný stofnun væri komin á lagg­irnar. Nú, 21 mán­uði síðar, er Banka­sýslan enn starf­andi.

„Rík­is­stjórnin hefur því ákveðið að leggja það til við Alþingi að Banka­sýsla rík­is­ins verði lögð niður og inn­leitt verði nýtt fyr­ir­komu­lag til að halda utan um eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum.“ Þetta sagði í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu for­manna rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja sem birt var á vef stjórn­ar­ráðs­ins 19. apríl 2022. Þar sagði líka að ekki yrði ráð­ist í frek­ari sölu á hlutum í Íslands­banka fyrr en ný lög­gjöf, sem myndi meðal ann­ars leggja niður Banka­sýsl­una, lægi fyrir. 

Nú, 21 mán­uði síðar, er Banka­sýsla rík­is­ins enn starf­andi þrátt fyrir að hafa ekk­ert eig­in­legt hlut­verk. Ekkert nýtt fyr­ir­komu­lag til að halda utan um eign­ar­hluta rík­is­ins liggur fyrir og þar af leið­andi hefur ekk­ert af 42,5 pró­sent eft­ir­stand­andi eign­ar­hlutar rík­is­ins í Íslands­banka verið seldur þrátt fyrir að gert hafi verið ráð fyrir slíkri sölu í fjár­lögum og fjár­mála­á­ætl­unum. 

Í svari við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar segir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið, sem Banka­sýsla rík­is­ins heyrir undir, að frá …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár