Fréttir

Fjölda­upp­sögn hjá Plain Vanilla: „Fyr­ir­tæki með enga inn­komu hlýtur að þurfa að fækka starfs­mönnum“

Fjórtán manns var sagt upp störfum hjá tölvu­leikja­fram­leið­and­anum Plain Vanilla í dag. Upp­sagn­irnar koma í kjöl­far kaupa banda­ríska tölvu­leikja­fé­lags­ins Glu Mobile á stórum hlut í félag­inu. Starfs­menn tölvu­leikja­fé­lag­ins hafa orð á því á það félagið hafi verið að brenna pen­inga und­an­farin miss­eri.
FréttirBúvörusamningar

Stórir hags­mun­að­ilar í land­bún­aði vilja stöðva afnám kvóta­kerfis í mjólkur­iðn­aði

For­svars­menn í Fram­sókn­ar­flokknum hafa ólík sjón­ar­mið um breyt­ingar á kvóta­kerf­inu í mjólkur­iðn­aði. Sigurður Ingi Jóhanns­son hefur talað fyrir breyt­ingum en Ásmundur Einar Daðason og Guðni Ágústs­son gegn. Kerfið kostar íslenska neyt­endur átta millj­örðum krónum meira á ári en ef mjólkin væri inn­flutt. Nýir búvöru­samn­ingar eru nú ræddir á vegum land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins og hefur Ragnar Árnason hag­fræði­pró­fessor verið feng­inn til að meta áhrifin af breyt­ing­unum á kvóta­kerf­inu.
FréttirSala banka á fyrirtækjum

Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn varð af um tveimur millj­örðum í við­skipt­unum við Bakka­var­ar­bræður

Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins seldi nærri 6 pró­senta hlut sinn í mat­væla­fyr­ir­tæk­inu Bakkavör á lágu verði árið 2012. Bræð­urnir og fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn Baupost kaupa aðra hlut­hafa út á sex sinnum hærra verði. Bræð­urnir leggja ekki til reiðufé í kaup­unum heldur búa til sér­stakt eign­ar­halds­fé­lag með Baupost utan um Bakkavör og leggja sinn 38 pró­senta hlut inn í þetta félag.
FréttirÁlver

Skattafléttur álfyr­ir­tækj­anna: Vaxta­kjör Norð­ur­áls hjá móð­ur­fé­lagi sínu tekin út úr opin­berum árs­reikn­ingi

Skýring með lána­kjörum Norð­ur­áls er ekki birt í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins. Móð­ur­fé­lag Norð­ur­áls hefur lækkað vexti Norð­ur­áls ehf. niður 5 pró­sentum. Indriði Þor­láks­son segir að fyr­ir­tækið noti fléttur til að kom­ast hjá skatt­greiðslum á Íslandi en Norðurál segir að vaxta­kjör fyr­ir­tæk­is­ins séu ákveðin hjá „óháðum“ aðila.

Mest lesið undanfarið ár