Skiptast á dópi og dóti á Facebook: „Er með slatta af lambafillet“

Á Facebook-síð­unni Dóp fyrir dót er fíkni­efnum skipt fyrir ýmsar vörur eins og úlpur frá 66° norður. Líklegt er að margt aug­lýst í hópnum sé þýfi. „Get nálg­ast hvað sem er nán­ast úr Krónunni, Nettó og eitt­hvað af smærri hlutum úr Ikea,“ skrifar einn not­andi.

Skiptast á dópi og dóti á Facebook: „Er með slatta af lambafillet“

Á Facebook má finna fjöl­marga hópa, bæði lok­aða og opna, sem virka eins og nokk­urs konar sölu­torg fyrir flest öll fíkni­efni. Einn hópur er þó örlítið frá­brugð­inn öðrum og kall­ast hann Dóp fyrir dót. Á þeirri síðu skipt­ast not­endur á ótrú­leg­ustu vörum fyrir fíkni­efni. Í fljótu bragði virð­ast föt frá Adidas vera meðal vin­sæl­ustu var­anna sem skipt er á fyrir fíkni­efni. Úlpur frá 66° norður eru líka vin­sælar en þess má geta að slíkar úlpur eru algengt þýfi.

Út frá lýs­ingum í aug­lýs­ingum innan hóps­ins má telja lík­legt að margt þar sé þýfi. Ekki er hægt að segja annað en Dóp fyrir dót sé mjög virkur hópur, not­endur eru vel ríf­lega 2.000 manns og fjöl­margar aug­lýs­ingar birt­ast dag hvern. „Er með 150 mg tramol 1 og hálft spjald eftir, svo verð ég með sobril 15 mg 10 stk og stesolit 2 mg 10 stk og imovan 7,5 mg 10 stk seinna í dag. Er með slatta af lamba­fil­let, læri og skel­hreins­aðan humar 1 kg fros­inn. Get nálg­ast hvað sem er nán­ast úr Krónunni, Nettó og eitt­hvað af smærri hlutum úr Ikea,“ skrifar not­andi undir nafn­inu Alltaf Vakandi Vokuson.

Margir not­endur taka skýrt fram að varan þeir sé ekki þýfi. Einn sem aug­lýsir borð­tölvu tekur fram að hann hafi kvitt­anir.

Hér fyrir neðan má sjá skjá­skot af nokkrum vel völdum aug­lýs­ingum á Dóp fyrir dót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár