Skipasmíðastöðin sem smíðar nýjan Herjólf notar vinnuþræla
Fréttir

Skipa­smíða­stöðin sem smíðar nýjan Herjólf notar vinnu­þræla

Íslensk stjórn­völd hafa samið við pólsku skipa­smíða­stöð­ina Crist S.A. um smíði á nýrri Vest­manna­eyja­ferju en skipa­smíða­stöðin hefur notað vinnu­þræla frá Norður-Kóreu. Halldór Ó. Sig­urðs­son, for­stjóri Rík­is­kaupa, segir Rík­is­kaup og Vega­gerð­ina ekki hafa hald­bærar heim­ildir um að Crist hafi orðið upp­víst að brotum sem geta fallið undir skil­grein­ingu á man­sali. Sigurður Áss Grét­ars­son, fram­kvæmda­stjóri sigl­inga­sviðs Vega­gerð­ar­innar, ætlar að krefj­ast skýr­inga af pólska fyr­ir­tæk­inu.
Myndskeið sýnir Birnu með símann sinn á Skólavörðustíg
FréttirHvarf Birnu Brjánsdóttur

Mynd­skeið sýnir Birnu með sím­ann sinn á Skóla­vörðu­stíg

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur rann­sakað upp­töku úr örygg­is­mynda­vél við Skóla­vörðu­stíg, en eng­inn þeirra sem sést á gangi á sama tíma og Birna Brjáns­dóttir hafa gefið sig fram við lög­reglu. Útgerð græn­lenska tog­ar­ans Polar Nanoq segir engar sann­anir liggja fyrir sem tengir áhafn­ar­með­limi við hvarf Birnu. Grímur Grímsson, yfir­lög­reglu­þjónn, segir lög­regl­una hafa yfir­heyrt fjölda fólks með stöðu vitnis. Enginn hafi þó verið yfir­heyrður með stöðu grun­aðs.
Ný ljósmynd sýnir Birnu fyrir hvarfið - lögreglan vill ræða við fólk af myndbandi
FréttirHvarf Birnu Brjánsdóttur

Ný ljós­mynd sýnir Birnu fyrir hvarfið - lög­reglan vill ræða við fólk af mynd­bandi

Skip­stjóri Polar Nanoq, Julian Nolsø, seg­ist stefna til Íslands. Talið er að um 22 séu í áhöfn tog­ar­ans sem hefur oft komið til Íslands. Grímur Grímsson rann­sókn­ar­lög­reglu­maður segir lög­reglu vilja ná tali af fólki sem sést á mynd­bandi. Síðasta ljós­myndin sem sýnir Birnu fyrir hvarfið sýnir hana kaupa mat á veit­inga­stað við Ing­ólfs­torg um klukkan fimm um nótt­ina.
Lögreglan leitar í rauðri bifreið í Breiðholti
FréttirHvarf Birnu Brjánsdóttur

Lög­reglan leitar í rauðri bif­reið í Breið­holti

Þrjár lög­reglu­bif­reiðir stöðv­uðu rauða bif­reið í Bökkunum í Breið­holti og leit­uðu í henni hátt og lágt. Ekki er vitað hvort aðgerð lög­regl­unnar teng­ist leit­inni að Birnu Brjáns­dóttur. Í bif­reið­inni voru tveir menn en ekki liggur fyrir hvort þeir hafi verið hand­teknir eða þeim sleppt. Bif­reiðin er enn á sama stað, óhreyfð eftir leit­ina.

Mest lesið undanfarið ár