Samherji hyggst yfirtaka Eimskip með félagi sem á Kýpurfélagið sem greiddi mútur
FréttirSamherjaskjölin

Samherji hyggst yfir­taka Eimskip með félagi sem á Kýp­ur­fé­lagið sem greiddi mútur

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji gæti orðið eini eig­andi Eim­skipa­fé­lags­ins ef aðrir hlut­hafar sam­þykkja lög­bundið yfir­tökutil­boð félags­ins. Fyr­ir­tækið sem Samherji notar til að halda utan um hluta­bréfum í Eim­skipum á einnig félög á Kýpur sem halda utan um útgerð Samherja í Namibíu og sem greitt hafa mútur. Innlend og erlend starf­semi Samherja teng­ist með beinum hætti í gegnum umrætt félag.
Hundrað nýnasistar sagðir á leiðinni til Lesbos
Fréttir

Hundrað nýnas­istar sagðir á leið­inni til Lesbos

Frönsk nýnas­ista­sam­tök hafa sent frá sér herkvaðn­ingu sem gengur um spjall­rásir nýnas­ista í Evrópu. Þar eru þeir hvattir til þess að fjöl­menna á grísku eyj­unni Lesbos til þess að herja á blaða­menn og sjálf­boða­liða. Þá full­yrða þeir að hund­rað hægri öfga­menn séu þegar á leið­inni, og að sumir þeirra hafi reynslu af hern­aði í Króatíu, Líbanon, Bosníu og Donbass.
Staðfestir frestun brottvísunar en segir hana þó enn standa til
Fréttir

Stað­festir frestun brott­vís­unar en segir hana þó enn standa til

Upp­lýs­inga­full­trúi Útlend­inga­stofn­unar segir ekki rétt að grísk stjórn­völd hafni því að taka við ein­stak­lingum sem hafi fengið alþjóð­lega vernd þar í landi. Brott­vísun fjöl­skyldu og ein­stak­lings til Grikk­lands sé enn í bígerð, þó að henni hafi verið frestað aftur. Lögmaður fjöl­skyld­unnar kallar stefnu stjórn­valda í mál­efnum hæl­is­leit­enda harð­neskju­lega og segir með ólík­indum að bjóða barna­fjöl­skyldu upp á þann hringl­anda­hátt sem ein­kennt hefur málið.
Hamfarirnar í Færeyjum: Strokulax úr færeyskum sjókvíum getur komið til Íslands
FréttirLaxeldi

Ham­far­irnar í Færeyjum: Stroku­lax úr fær­eyskum sjó­kvíum getur komið til Íslands

Stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki Færeyja, Bakka­frost, „glat­aði“ einni milljón eld­is­laxa fyrir nokkrum dögum. Fyr­ir­tækið hefur ekki full­yrt að þessir laxar hafi allir drep­ist og er óljóst hvort ein­hverjir sluppu úr kvíum fyr­ir­tæk­is­ins. Sér­fræð­ingur hjá Haf­rann­sókn­ar­stofnun segir að eld­is­lax sem veidd­ist á Íslandi í fyrra sé mögu­lega stroku­fiskur frá Færeyjum.
Ísland sendir flóttabörn til Grikklands á meðan önnur ríki heita því að taka við fólki þaðan
Fréttir

Ísland sendir flótta­börn til Grikk­lands á meðan önnur ríki heita því að taka við fólki þaðan

Grikkir hafa þegar tekið við 115 þús­und flótta­mönnum. Flótta­manna­búðir eru yfir­fullar og aðstæður fólks­ins hrylli­legar. Portú­galir, Frakkar og Finnar hafa heitið því að taka við fólki frá land­inu til þess að létta undir með Grikkjum. Íslensk yfir­völd hyggj­ast nú senda fimm barna­fjöl­skyldur til Grikk­lands. Ástandið er eld­fimt, þar sem hægri öfga­menn herja á flótta­fólk og grískar lög­reglu­sveitir mæta því með táragasi á landa­mær­unum.

Mest lesið undanfarið ár